Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 Ættfræði EJV Baldvin ReyrGunnarsson framkvæmdastjóri og eigandi Áróru ehf. Baldvin fæddist í Reykjavík en ólst upp á Seyðisfirði. Hann var í Bamaskóla Seyðisfjarð- ar, var í Verkmennta- skóla Neskaupstaðar, flutti síðan til Keflavíkur 1993 og var þar búsett- ur þar til ársloka 2006 er hann flutti í Haíhar- fjörð. Hann lauk hinu minna stýrimannaprófi frá Sjómannaskólanum í Reykjavík árið 2000. Baldvin byxjarði sex- tán ára að róa á trillu með föður sínum, festi kaup á sínum fyrsta smábát árið 2000 og hefur gert hann út síðan. 30 ára á föstudag Fjölskylda Dóttir Baldvins og Örnu Bjarkar Bjarnadótt- ur er Erna Lína Baldvins- /dóttir, f. 7.7.1998. Foreldrar Baldvins , em Gunnar Gunnlaugs- f son, f. 22.2.1951, sjó- maður, útgerðarmaður og leigubifreiðastjóri í Keflavík, og Hafdís Bald- vinsdóttir, f. 31.6.1952, húsmóðir og nuddari. Baldvinhéltuppá afmælið á Dubliners í Reykjavíksl. laugardag með pomp og prakt. Hann þakkar vinum og vandamönnum fýrir komuna og góðar gjafir. Sigrún A. Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri á slysavarnasviði Slysavarnafélagsins Landsbjargar Sigrún fæddist að Hömrum í Reykholtsdal og ólst þar upp. Hún var í barnaskóla á Kleppj árnsreykj um, síðan í Reykholti, lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, og lauk hjúkrunarfræðiprófi frá Hf 1992. Sigrún starfaði við FSA á Akureyri 1992- 97, við Landspítalann íFossvogi 1997-99 og hefur starfað við slysavarnir 40 ára á föstudag hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu frá 1999. Fjölskylda Eiginmaður Sigrúnar er Helgi Þór Jóhannsson, f. 10.6.1970, viðskiptafræðingur. Börn þeirra eru Andri Már,f. 11.12.1995, og Sara, f. 8.6.2000. Foreldrar Sigrúnar eru Þorsteinn Pétursson, f. 22.10.1930, kennari, og Ásta Hansdóttir, f. 9.4.1934, húsfreyja. Þau eru búsett í Árbergi í Reykholtsdal. Sveinn Bergmann Rúnarsson viðskiptastjóri hjá DM Sveinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. í Hann var í Austurbæj- arskólanum, smndaði P nám við Kvennaskólann í Reykjavík og hefur sótt fjölda námskeiða sem tengjast starfi hans. Sveinn starfaði hjá flutningafyrirtækinu DHL á árunum 1992- 2006, var síðan sölumað- ur hjá Pennanum í eitt ár en hefur verið viðskipta- stjóri hjá DM ffá 2007. Sveinn æfði og keppti í skíðadeifd KR frá fimm ára aldri og þar til hann varð átján ára. Hann er nú mikill áhugamaður um sleða- og hjólasport. Fjölskylda Eiginkona Sveins er Halldóra Ólafsdóttir, f. 10.4.1970, skrifstofu- maður. Börn Sveins eru Bertha Þyrí, f. 8.2.1995, og Ragnar Ágúst, f. 10.11. 1998. Foreldrar Sveins: Rúnar Þórhallsson, f. 16.1.1937, sjómaðurí Reykjavík, oglngibjörg Bergmann Sveinsdóttir, f. 6.6.1947, d. 16.11.2006, skrifstofumaður. Sveinn heldur upp á afmælið með fjölskyldunni. Karl Ómar Karlsson grunnskólakennari og golfþjálfari á Akranesi Karl fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp í Breiðholtinu. Hann var í Breiðholtsskóla, lauk stúdentsprófi frá MS 1988, stundaði síðan nám við fþróttakennara- skólann á Laugarvatni og lauk þaðan kennara- prófi 1993. Þá stundaði hann nám í golfkennslu í Svíþjóð á árunum 2000-2003 og lauk það- an HGTU-golfkennara- námi. Karl var grunnskóla- kennari við Grunnskólann á Eskifirði 1993-96, við Grunn- skólann í Borgarnesi 1996-98, við Grundaskóla á Ákranesi 1998-2000, við Veftbygdaskole í Spikkestad í Noregi 2000-2004 auk þess sem hann var þar golf- kennari þar hjá Eiker til 2005. Hann kom síðan heim 2005 og hefur verið grunnskóla- kennari við Grunda- skóla síðan. Aukþess stundar hann golf- kennslu á Akranesi og golfþjálfun. Fjölskylda Eiginkona Karls er Eygló Karlsdóttir, f. 12.3. 1970, grunnskólakenn- ari. Börn þeirra eru Unn- ur Inga, f. 22.3.1995; Yrsa Katrín, f. 9.4.1998; Hreimur Óskar, f. 31.12. 2003. Foreldrar Karls eru Karl Jó- hannsson, f. 23.4.1934, fyrrv. starfsmaður við Landsbankann í Reykjavík, og Unnur Óskarsdótt- ir, f. 9.12.1938, starfsmaður við Landsbankann. Karl heldur upp á afmælið með vinum og vandamönnum. Ættfræði DV Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp frétt- næma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra (slendinga. Lesendur geta sentinntilkynningarum stórafmæli á netfangið kgk@dv.is AFMÆLISBVKiX VIKILWVK: EIRÍKURS. JÓHANNSS0N FRAMKVÆMDASTJÓRI FASTEIGNASVIÐS BAUGS Eiríkur S. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Fasteignasviðs Baugs, er fertugur í dag. Starfsferill Eiríkur fæddist á Alcureyri og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi ffá MA 1988, BS-Econ-prófi í hagfræði frá HÍ 1991 og Ph.D.-prófi í alþjóða- hagfræði og fjármálum frá Vander- bilt University í Nashville í Tenness- ee í Bandaríkjunum 1994. Eiríkur var hagfræðingur hjá Landsbanka íslands frá 1991, útibús- stjóri Landsbanka íslands á Alcur- eyri og svæðisstjóri bankans á Norð- urlandi 1996-98, kaupfélagsstjóri KEA 1998-2002, framkvæmdastjóri Kaldbaks hf. 2002-2004, forstjóri Og Vodafone (Og fjarskipta hf.) og síðar Dagsbrúnar hf. 2004-2005, forstöðu- maður Nordic fjárfestinga hjá Baugi 2005-2007 og er ffamkvæmdastjóri Fasteignasviðs Baugs frá sumri 2007. Eiríkur var stundakennari við Hf 1990-92, aðstoðarkennari við Vand- erbilt University 1993-94 og stunda- kennari við HA 1995 Eiríkur var stjórnarformaður Súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu, Slippstöðvarinnar Odda hf. og Foldu hf. og hefur setið í stjórn fjölda fyrir- tækja, s.s. íslenska fjársjóðsins hf; íslandsbanka, VÍS, TM, Fasteigna- félagsins Stoða, Goldsmiths Ltd. og Icelandic Group, er núverandi stjórnarformaður Samherja hf. og situr í stjórnum Atlas Ejendomme, Keops og Capinordic. Fjölskylda Kona Eiríks er Friðrika Tómas- dóttir, f. 20.10. 1969, leikskólakenn- ari og nemi í frönsku við HÍ. Hún er dóttir Tómasar Arnar Agnarssonar, f. 23.6.1948, bifvélaviriga og vélavið- gerðarmanns á Akueyri, og Rann- veigar Jónsdóttur, f. 20.6.1949, versl- unarmanns. Börn Eiríks og Friðriku eru Mar- ín Eiríksdóttir, f. 27.3. 1994; Tómas Veigar Eiríksson, f. 24.2. 1998; Ár- mann Atli Eiríksson, f. 3.4. 2000. Systkini Eiríks eru Stefán Jó- hannsson, f. 1955, sérffæðingur við HA; Helgi Jóhannsson, f. 1959, fram- kvæmdastjóri Eldvarnamiðstöðv- ar Norðurlands; Árni Jóhannsson, f. 1960, kennari við VMA; Hólmfríður Jóhannsdóttir, f. 1962, íþróttakenn- ari á Akureyri; Sigríður Jóhannsdótt- ir, f. 1963, skrifstofumaður á Akur- eyri; Jónína Þuríður Jóhannsdóttir, f. 1969, lífeðlisfræðingur hjá Matís. Foreldrar Eiríks eru Jóhann Helgason, f. 16.1. 1926, fyrrv. skrif- stofustjóri hjá Búnaðarbankanum á AJcureyri, og Sigríður Árnadóttir, f. 14.5.1920, húsfreyja. Ætt Jóhann er sonur Helga, b. á Þóru- stöðum í Öngulstaðahreppi Eiríks- sonar, b. á Geldingsá, bróður Bjarna hins ættfróða. Annar bróðir Eiríks var Guðlaugur, afi Hlyns veður- stofustjóra og Þrastar skipherra Sig- tryggssona, og afa Finns Sigmunds- sonar landsbókavarðar. Eiríkur var sonur Jóhannesar, b. á Svalbarði og í Meðalheimi Bjarnasonar og Sigríðar Árnadóttur. Móðir Helga var Guðrún Jósefsdóttir, b. á Hjalla og í Fossseli í Reykjadal Jósafatssonar, og Signýjar Einarsdóttur. Móðir Jóhanns var Hólmfríður Pálsdóttir, b. á Litlu-Tjörnum og á Þórustöðum Jónssonar, og Jónínu Þuríðar Guðmundsdóttur. Sigríður er dóttir Árna, b. á Finns- stöðum í Eiðaþinghá Jónssonar, b. á Finnsstöðum Árnasonar. Móðir Árna Jónssonar var Steinunn, syst- ir Hinriks, afa Geirs Hallsteinsson- ar handboltamanns. Steinunn var dóttir Hinriks, b. á Hafursá á Völlum Hinrikssonar, og Guðnýjar Árna- dóttur. Móðir Sigríðar er Stefanía Þor- valdína Guðjónsdóttir, b. á Uppsöl- um í Eiðaþinghá Þorsteinssonar, og Sigmundínu Þorvaldsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.