Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Það er framið sjálfsmorð á fjörutíu sekúndna frestí og
fjöldi fórnarlamba ermeiri en fellurí stríði eða er myrtur.
Sjálfsmorðsaldan sem skall á
samfélaginu í Bridgend í S-
Wales fyllti íbúa þar miklum
óhug. Nú hefur komið í ljós
að tíðni sjálfsmorða er mun
hærri en i fyrstu var talið.
Lögregluyfirvöld í S-Wales
hafa undanfarið rannsakað
Qölda óútskýrðra og
óvæntra dauðsfalla. Þrátt
fyrir að í ljós hafi komið
ákveðin tengsl milli þeirra
sem frömdu sjálfsmorð hefur
lögregla hafnað þeim mögu-
leika að um eitthvert fyrir-
fram ákveðið samkomulag
hafi verið að ræða.
% i —*
orrm sin - %
<3 :} 3 SMISÍI
.... ... ■«kM.
Japan Skjmynd sem sýnir heimasíðu
sjálfsmorðsklúbbs í Japan.
SJÁLFSMORÐ Á ÁRI
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blodamodur skrifai: kolbelnn@dv.is
Sjálfsmorðstíðni í Wales er mun
hærri en á Englandi, allt að þrjátíu
og fimm prósentum hærri að því
að talið er. í síðasta mánuði komst
bærinn Bridgend í Suður-Wales
í fréttirnar vegna óvenju margra
sjálfsmorða. Þá var vitað um sjö
ungmenni sem höfðu framið
sjálfsmorð á um tólf mánaða
tímabili. I kjölfar umræðunnar og
rannsóknar lögreglunnar vöknuðu
grunsemdir um að tíðnin væri mun
hærri en áður hafði verið talið.
Lögregluyfirvöld í Wales hafa
ekki viljað gefa upp nákvæman
fjölda eða önnur smáatriði, en tal-
ið er að allt að fjórtán ungmenni
hafi framið sjálfsmorð, en ekki sjö
eins og áður var talið. Lögreglan
hefur einnig viljað ítreka að eng-
ar sannanir renndu stoðum undir
þá kenningu að um sjálfsmorðs-
samning hefði verið að ræða, og
sú kenning væri ekki undan þeirra
rifjum runnin.
Það er sjálfgefið sá fjöldi sjálfs-
morða sem framin hafa verið í
Bridgend eru mikil blóðtaka fyr-
ir bæjarfélagið. Bridgend er lítið
samfélag og tengsl íbúa þess mik-
il og harmur eins er harmur ann-
ars og foreldrar eru óttaslegnir.
Síðastliðið sumar greip svipaður
ótti um sig í þorpinu Craigavon í
Armagsýslu á Norður-írlandi, en
þá hengdu tveir unglingsdreng-
ir sig eftir að hafa verið viðstaddir
jarðarför drengs sem framið hafði
sjálfsmorð.
Tengsl við vefsíðu
Fljótlega eftir að rannsókn hófst
BRIDGEND
Bridgend í Suður-Wales Tfðni sjálfsmorða hærri en áður var talið.
komu í ljós tengsl ungmennanna
viðákveðnavefsíðuogþáupplýstist
að um tylft ungra stúlkna hefði
rætt möguleikann á sjálfsmorði
við kennara sinn. Phillip Walters,
sem er dánardómstjóri í Bridgend
og Glamorgan Valleys í Wales,
rannsakar nú þessa vefsíðu og
fleiri til að komast að því hvort
og þá á hvaða hátt unglingar hafi
verið hvattir til sjálfsmorðs. Fyrir
fjórum árum gerðu tvær stúlkur
með sér sjálfsmorðssamkomulag
eftir að hafa kynnst gegnum
spjallþráð á netinu og Walters
hefur verulegar áhyggjur af þætti
vefsvæða eins og MySpace í fjölg-
un sjálfsmorða ungs fólks í blóma
lífsins. Á vefsíðu News Wales
kemur fram að Walters hafi á
ellefu mánaða tímabili árið 2006
fengið til rannsóknar eitt tilfelli
sjálfsmorðs í hverri viku.
Madeleine Moon, þingmaður
Bridgend, sagði í viðtali við BBC
að vandamálið væri ekki eingöngu
bundið við bæinn Bridgend.
Hún sagði að um væri að ræða
tuttugu og fimm kílómetra radíus
í kringum bæinn. Moon sagði að
það væri hryllileg tilhugsun ef
vitneskjan um að nafn viðkomandi
á einhverri minningarsíðu á netinu
nægði til að reka ungt fólk til að
binda enda eigið líf.
Sjálfsmorðsklúbbar í Japan
Japan er oft nefnt á nafn þegar
sjálfsmorð ber á góma. Þar í landi
hefúr til langs tíma verið ein hæsta
tíðni sjálfsmorða í heiminum og
síðan árið 1998 fremja árlega um
þrjátíu þúsund manns sjálfsmorð.
Úlíkt sjálfsmorðunum í Wales
er, samkvæmt upplýsingum ffá
Heilbrigðisstofnun Sameinuðu
þjóðanna, WHO, er stærstur hluti
þeirrasemffemjasjálfsmorðíjapan
karlmenn á aldrinum fjörutíu til
sextugs. Ástæða sjálfsmorðanna í
Japan er yfirleitt sú að viðkomandi
finnst hann hafa brugðist fjölskyldu
sinni, misst vinnu eftir að hafa eytt
stærstum hluta ævi sinnar hjá einu
og sama fyrirtækinu.
Árið 2004 leit ný tíska dagsins
ljós í Japan. Þar var um að ræða
netvædda sjálfsmorðsklúbba þar
sem fólk auglýsti eftir félaga sem
tilbúinn væri að fara yfir móðuna
miklu. Fjöldi fólks framdi sjálfs-
morð í félagsskap einhvers sem
það komst í samband við gegnum
þessa ldúbba, en á stundum urðu
lyktir aðrar en upphaflega var ætl-
að. Á síðasta ári var Hiroshi Maeue
FRÆG FÓRNARLÖMB
JÚDAS (SKARlOT
■ Frægasturþeirra sem framiö hafa
sjálfsmorð er sennilega Júdas
Ískaríot, en samkvæmt Matteusar-
guðspjalli hann hengdisig fullur
iðrunar eftlr að hafa svikið Jesú.
Samkvæmt Júdasarguðspjalli var
hann grýttur til dauða af
postulunum.
ADOLF HITLER, 1945
* Tók inn blásýru undir lok síðari
heimsstyrjaldar.
ERNEST HEMINGWAY, 1961
■ Þessi heimsfrægi bandarlski
rithöfundur skaut sig til bana.
VINCENTVAN GOGH, 1890
■ Hollenskur málari, byssuskot I
bringuna.
SID VICIOUS, 1979
■ Bassaleikari hljómsveitarinnar
Sex Pistols tók ofstóran skammt af
herólni.
VIRGINlA WOOLF, 1941
■ Gekk með fulla vasa afgrjóti I á
skammt frá heimili sínu.
ULRIKE MEINHOF, 1976
■ Vinstrisinnaður þýskur
hryðjuverkamaöur framdi
sjálfsmorð I fangaklefa slnum.
SIGMUND FREUD, 1939
■ Ofstór skammtur afmorflni.
KURT COBAIN, 1994
■ S öngvarl hljómsveitarinnar
Nirvana skaut sig með haglabyssu.
dæmdur til dauða fyrir þrjú morð.
Hann hafði gert sjálfsmorðssam-
komulag við fórnarlömbin en þeg-
ar til kom myrti hann þau með
köldu blóði.
Fleiri fórnarlömb
en vegna stríðs
Samkvæmt Heilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna falla fleiri en
ein milljón manns fyrir eigin hendi
í heiminum árlega. Það er framið
sjálfsmorð á fjörutíu sekúndna
fresti og fjöldi fórnarlamba er
meiri en fellur í stríði eða er
myrtur. Eystrasaltslöndin hafa
síðasdiðin ár verið í fararbroddi
í tíðni sjálfsmorða. í Lettlandi
frömdu fimm hundruð sextíu
og þrfr sjálfsmorð árið 2004, eða
sem svarar til rúmlega tuttugu og
fjögurra einstaklinga af hverjum
eitt hundrað þúsundum, flestir
voru karlmenn á miðjum aldri.
2005 ffömdu tvö hundruð sjötíu
og þrír sjálfsmorð í Eisdandi og
var yfirgnæfandi meirihluti þeirra
karlmenn. Það svarar til um
tuttugu einstaklinga af hverjum eitt
hundrað þúsundum. Litháen trónir
á toppnum, en þar ffömdu þrettán
hundruð áttatíu og einn sjálfsmorð
árið 2004, eða um fjörutíu af
hverjum eitt hundrað þúsundum,
þar af voru ellefu hundruð tuttugu
og Qórir karlmenn.
Til samanburðar má geta
þess að samkvæmt WHO ffömdu
þrjátíu og fimm sjálfsmorð á
íslandi árið 2004, þar af tuttugu og
sex karlmenn. Það svarar til um tólf
einstaklinga á hverja eitt hundrað
þúsund íbúa. Samkvæmt tölum
frá WHO eru hin Norðurlöndin á
svipuðum slóðum og ísland hvað
varðar hlutfall sjálfsmorða miðað
við íbúatölu.