Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Page 11
10 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 Helgarblað DV PV Helgarblað FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 11 Kvótakerfið skilur eftir sig sviðna jörð við strendur Islands. Frá því kerfið var sett á fyrir aldarfjórðungi hefur fólk flúið landsbyggðina vegna atvinnuleysis. Verðlausar fasteignir á verst stöddu svæðunum gera mörgum þó erfitt um vik að flytja. Margir sjómenn sem keypt hafa sig inn í kvótakerfið hafa misst húsnæði og lýst yfir gjaldþroti vegna skuldsetningar og hás aflaverðs. Nýliðun í sjávarútvegi er hverf- andi og fiskvinnslan er deyjandi atvinnugrein. §§f ERLA HLYNSDÓTTIR bladamadur skrifar: erla@dv.is Aldarfjórðungur er síðan kvóta- kerfið var sett. Yfirlýst markmið kerf- isins voru að sporna gegn ofveiði og veita fiskistofnum rými til að ná sér á strik eftir mikla veiði áranna á undan. Flestir töldu víst að kvóta- kerfið yrði aðeins við lýði í skamm- an tíma enda myndi það skjótt leiða til þess að fiskistofnar stækk- uðu til muna. I dag líta menn öðrum augum á kvótakerfið og ljóst er að hrapallega hefur mistekist að ná settum mark- miðum varðandi friðun. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um sífellt minni afla er sönnun þess. Fiskveið- ar við ísland eru í sögulegu lágmarki. Mest hafa hér veiðst um 500 þúsund tonn á ári en nú er aflinn farinn nið- ur í 130 þúsund tonn. Landsbyggðin átti að blómstra sem aldrei fyrr eftir að kvótakerfið komst á en niðurstaðan er önnur og dapurlegri. Jón Þ. Þór, sagnfræðing- ur og höfundur Sögu sjávarútvegs á Islandi, nefnir Isafjörð sem eitt skýr- asta dæmið um bæjarfélag þar sem var útgerðin dafnaði fyrir tilkomu kvótakerfisins og næg atvinna var til staðar. Eftir að það var sett á og sér- staklega eftir 1991 þegar farið var að selja kvótann úr byggðunum fór hins vegar að halla undan fæti. Á ísafirði voru tvö af stærstu og öflugustu frystihúsum landsins, íshúsfélag ísfirð- inga og Norðurtangi, og stór hluti bæjarbúa hafði atvinnu af sjávarútveg- inum; ýmsir beint en aðrir óbeint. Afleidd störf sjávarútvegs- ins eru til dæm- is viðhalds- þjónusta við skipin, veit- ingasala til þeirra sem stunda sjóinn og af- Það er verið að selja mannréttindi á milli byggðarlaga NÝ STEFNA Guðni Agústsson, formaðut Framsóknarflokksins, braut blað í sögu flokksins þegar hann gagnrýndi kvotakerfið opinberlega á Alþingi i vikunni en Flaildór Ásgrímsson, fyrrverandi formaður flokksins, var einn af forkólfum þess að kerfið var sett á. greiðsla eldsneytis. Þegar skipin hverfa hefur það því áhrif á allt at- vinnulíf bæjarins; fólk missir vinn- una og þeir sem enn halda vinnu flnna fýrir skertri þjónustu í bæjar- félaginu. Raufarhöfn varð úti Hallgrími Guðmundssyni, smá- bátasjómanni á Akureyri, þykir sorg- legt hversu litlum kvóta er úthlutað til áður öflugra sjávarbyggða. „f raun er vinnslan hjá Brim það eina sem er að gerast í sjávarútveginum hér. Ýmsar sögur hafa síðan gengið um að þegar vinnslan sem verið er að byggja upp á Rifi verði öllu lokað hér fyrir fullt og allt," segir hann. Sigurjón Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra og fýrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, bendir sérstaldega á Raufarhöfn sem hefur misst um níutíu prósent af aflamarki frá 1991. Á sama tíma hefur íbúum fækkað um meira en helming og því greinilegt hvernig niðurskurðurinn leikur þær byggðir sem starfa nær eingöngu í kringum sjávarútveginn. Vestmannaeyjar eru eitt þeirra bæjarfélaga sem halda kvótan- um. Þrátt fyrir það hefur verið mik- ill fólksflótti frá Eyjum. Hallgrím- ur bendir á að kvótaúthlutunin gefi ekki rétta mynd af starfseminni á svæðinu þar sem mestur hluti aflans sé fluttur út óunninn. Þannig sé ekki jafnvægi á milli þess fisks sem kem- ur að landi og atvinnutækifæra sem hann veitir. Svört skýrsla um fiskveiði Uppruna kvótakerfisins má rekja til svartrar skýrslu frá áttunda ára- tugnum þegar sérfræðingar á sviði fiskifræða komust með mælingum að þeirri niðurstöðu að stærð fiski- stofnsins væri alltaf minni og minni. Til að tryggja verndun fiskistofn- anna samþykkti Fiskiþing að koma á kvótakerfi árið 1984, en 1991 var allur fiskiskipaflotinn kvótasettur og hverju skipi skammtaður hlutur árlega. Kvótinn er í raun nýting- arréttur sem heimilt er að selja, leigja eða nýta sjálf- ur eins og hverja aðra eign. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Tekist hef- ur ver- ið á um áhrif þessa stjórn- unar- MANNRETTINDITIL SOLU Kristinn Pétursson, fyrrverandi fiskverkandi, líkir þvi við sölu mannréttinda þegar kvótinn er seldur úr bæjarfélögum með þeim afleiðing- um að íbúarnir sem eftir standa missa vinnuna og standa uppi slyppir og snauðir. kerfis í fiskveiðum og hefur þar sitt sýnst hverjum, ekki síst vegna þess að að undanförnu hafa margir hagn- ast gífurlega á að selja kvóta sem þeir fengu úthlutað án endurgjalds. Skerðing á atvinnuréttindum Því hefur verið haldið fram að sú regla að úthluta aflakvóta til skipa í hlutfalli við veiðireynslu á árun- um 1981 til 1983 skerði atvinnu- frelsi manna. Þeir sem ekki áttu skip á veiðum á þessum árum geta ekki hafið útgerð nema með því að kaupa sig inn í útgerðarfyrirtæki sem til eru. Andstæðingar kvótakerfisins segja að til þess að réttlæta svo mikla skerðingu á atvinnufrelsi þurfi að rökstyðja að hún sé nauðsynleg fyrir þjóðarhag. Meðan sá rökstuðningur er ekki borðleggjandi beri Alþingi að leita leiða til að haga stjórn fiskveiða þannig að menn eigi kost á að stofna ný útgerðarfyrirtæki. Það er langt því frá að allir hafi átt þess kost að veiða úti fyrir ströndum fslands fyrir kvótasetninguna 1984. Því hefur úthlutun kvótans til fárra útvalinna verið álitin skerðing á at- vinnufrelsi. Henni hefur verið líkt við þá skerðingu sem menn mega þola þegar tiltekin störf eru lögvernduð eða sett eru ströng skilyrði um hverj- ir megi stunda þau. Yfirleitt telst slík skerðing á atvinnufrelsi ekki órétt- lát ef hún styðst við lög og er nauð- synleg til að tryggja almannaheill. I 75. grein stjórnarskrárinnar er þetta orðað: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess." Kvótinn ekki sameign þjóðarinnar Úrskurður mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá ársbyrjun um íslenska fiskveiðistjórnunarkerf- ið markaði tímamót. Vitanlega hafa sjávarútvegsráðherrar frá upphafi kvótakerfisins haldið því fram að kerfið skipti sköpum fýrir framþró- un í atvinnuveginum. Frá fyrstu tíð hafa háværir sjómenn hins veg- ar haldið hinu gagnstæða ffarn. Einar K. Guðfinns- son sjávar- útvegsráð- herraereinn þeirra sem mótmæltu kerfinu har- kalega á sín- um tíma en eins og kunn- ugt er hefur hann skipt um skoðun. „Nytjastofnar á (slandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum." -1. grein laga um fiskveiðistjórnun frá 1990. Að mati mannréttindanefndar- innar er það lögmætt markmið ís- lenskra stjórnvalda að vernda fiski- stofna með kvótakerfi. Hins vegar byggir núverandi kerfi ekki á sann- girni því það hyglir þeim sem upp- haflega fengu úthlutað varanlegum kvóta. í úrskurðinum er vísað í fýrstu grein laga um stjórn fiskveiða þar sem segir að fiskistofnar við ísland séu sameign íslensku þjóðarinnar en mikill styr hefur verið um túlkun greinarinnar og þá sér í lagi hvern- ig skilgreina skuli sameign þjóðar- innar. Mannréttindi til sölu Kristinn Pétursson, fyrrverandi fiskverkandi á Bakkafirði, hefur í tvo áratugi talað fýrir því að opna um- ræðuna um þau lagalegu atriði sem álit mannréttindanefndarinnar tek- ur á. Hann sat á þingi fyrir Sjálfstæð- isflokkinn á árunum 1988 til 1991 og reyndi að setja málið á dagskrá en án árangurs. Hann segir úrskurðinn ekki koma sér á óvart: „Því miður er þetta það sem ég hef haldið fram allan tímann. Það er verið að selja mannréttindi á milli byggðarlaga. Innifalið í aflaheimildum er miklu meira en réttindi útgerðarmanns- ins. Þarna er um að ræða réttindi allra hinna í bæjarfélaginu og það eru þau sem eru seld." Sjálfur missti Kristinn allt sitt vegna kvótakaupa og hefur því reynt á eigin skinni hvernig kerfið virkar. Aðspurður hvaða mat Kristinn leggi á að Ólafsvík, sem dæmi, fær nú úthlutað þriðjungi þess kvóta sem úthlutað var til bæjarfélags- ins árið 1991 segir hann: „Ég myndi vilja orða þetta þannig að þetta mik- ill hluti af mannréttindum íbúanna hafi verið seldur í burtu. Þessi sala er ástæða þess að fasteignaverð í fyrrverandi siávarbyggðum fer hríð- lækkandi. Ófarir byggðarlaganna hefjast þegar sala mannréttinda hefst," segir hann. Vanþekking stjórnmálamanna á stjórnarskránni Kristinn efast stórlega um að stjórnmálamennirnir sem stóðu upphaflega að kvótakerfinu hafi gert sér grein fyrir afleiðingunum. Hann vísar í eigin reynslu sem þing- maður og bendir á að þingmenn fái ekki leiðsögn óháðra lagaprófessora í stjórnsýslufræðum og grundvall- aratriðum stjórnarskrárinnar: „Ég held að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir þessu vegna vanþekkingar á löggjöfinni og að mínu mati er það skýringin á þessari hörmungasögu. Stjórnarskrá lýðveldisins var sett til verndar almenningi en ekki til verndar stjórnvaldinu," segir hann. Guðni brýtur blað í sögu Framsóknar Einar K. Guðfinnsson hefur ítrek- að verið spurður um viðbrögð sjáv- arútvegsráðuneytisins við úrskurð- inum. Hann segir málið í skoðun hjá ráðuneytinu en hefur jafnframt gef- ið út að hann telji ekki ástæðu til að gera grundvallarbreytingar á kerf- inu og að álitið kalli vart á lagabreyt- ingu. Halldór Ásgrímsson, fýrrverandi formaður Framsóknarflokksins, var einn af baráttumönnunum fyrir því að kvótakerfið komst á og hafa for- kólfar flokksins talað fýrir kerfinu. f kosningastefnuskránni fýrir síð- ustu Alþingiskosningar segir að nú- verandi stjórnkerfi fiskveiða sé ein mikilvægasta forsenda þeirra efna- hagsframfara sem einkennt hafa undanfarin ár. Því vakti það mikla athygli á dögunum þegar Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar- flokksins, vakti máls á því að kvóta- kerfið þarfnaðist endurskoðunar með hliðsjón af niðurstöðu mann- réttindanefndarinnar. Því er ljóst að spjótin eru farin að beinast að kvóta- kerfinu úr ólíklegustu átt. Forsætisráðherra styður núverandi kerfi Friðrik J. Arngrímsson, forstjóri Landssambands íslenskra útvegs- manna, mótmælti harðlega gagn- rýni Guðna og ítrekaði mikilvægi kvótakerfisins fyrir arðbæran sjáv- arútveg. Hann gekk einnig til liðs við Ein- ar K. Guðfinnsson og minnti á að FÓLK OG KVÓTI FLYST MILLILANDSHLUTA 1991 2007 1991 2007 BOLUNGARVlK ci «tcvdi * 1591 1007 ,w' M07 FLATEYRI • • IsAFJÖRÐUR 5. EÁ B. 1991 2007 1991 1991 2007 1991 2007 1». J007 M SÚÐAVlK ÞINGEYRI ■á Ei. 1991 2007 1991 2007 BfLDUDALUR 1991 2007 1991 2007 PATREKSFJÖRÐUR He 1991 2007 1991 2007 HÓLMAVfK 1991 2007 1991 2007 SIGLUFJÖRÐUR # 1991 2007 1991 2007 sauðArkrökur 1991 2007 1991 2007 RAUFARHÖFN 1W1 2007 1901 2007 HÚSAVlK 1991 2007 1991 2007 BLÖNDUÓS 1991 2007 1991 2007 AKUREYRI 1991 2007 1991 2007 NE5KAUPSTAÐUR 1991 2007 1991 2007 STYKKISHÓLMUR 1991 2007 1991 2007 ÓLAFSVlK 1991 2007 1991 2007 AKRANES 1991 2007 . 1691 2007 REYKJAVlK 1991 2007 1991 2007 KEFLAVlK _ '991 2007 1991 2007 HAFNARFJÖRÐUR 1991 2007 1991 2007 ESKIFJÖRÐUR ÍJL 1991 2007 1991 2007 BREK)DAL$VfK 1991 2007 1991 2007 SANDGERÐI 1991 2007 1991 2007 GRINDAVlK 1991 2007 1991 2007 • VESTMANNAEYJAR [ IBÚAFJÖLDI* | ÚTHLUTAÐ AFLAMARK** * Heimild: Hagstofa Islands. ** í þúsundum þorskigildistonna. Tæpum 434 þúsundum þorskigildistonna var úthlutaö áriö 1991 en tæpum 315 þúsundum áriö 2007. Árið 1991 var framsal aflaheimilda geflð frjálst.Tólur frá Fiskistofu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.