Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Side 37
PV Helgarblað FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 37 Fyrir rúmu ári greindist ANNA HELGA GUÐMUNDS- DÓTTIR aðeins þrítug að aldri með heilaæxli. Fréttirn- ar urðu til þess að hún bjó til lista yfir drauma sem hún vinnur nú markvisst í að láta rætast. Einn þeirra var að syngja opinberlega og það gerði hún með stæl í þættin- um Bandið hans Bubba nú á dögunum. //■ ,ÉG FRÉTTIÞAÐ LÖNGU SEINNA AÐ HALDIN HEFÐI VERIÐ LÍTIL BÆNASTUND FYRIR MIG Á BOLUNGARVÍK." Lifir í óttanum Síðar í þessum mánuði fer Anna Helga í fyrstu skoðunina og mynda- tökuna eftir að í ljós kom að hún væri með heilaæxli. „Ef rannsóknirnar sýna að æxlið hefur breyst, stækkað eða færst úr stað verður það líklega fjarlægt," segir Anna Helga. Það hlýt- ur að vera undarleg tilfinning að vita af æxli í höfði sér og þurfa að óttast það að allt gæti mögulega breyst til verri vegar. „Fyrst eftir fréttimar var ég meðvituð um æxlið á hverjum einasta degi, það hefur sem betur fer lagast. Það verður þó að viður- kennast að ég lifi í þeim ótta að góð- kynja æxlið breytist í illkynja." Framtíðin á Bolungarvík Anna Helga vinnur á leikskól- anum á Bolungarvík og er afar sátt í starfi sínu. „Ég vinn sem stuðn- ingsfulltrúi fýrir fadað barn og fæ virkilega mildð út úr því starfi." Þar sem það er bara einn leikskóli á Bol- ungarvík er þriggja ára sonur henn- ar á þessum sama leikskóla. „Hann er einmitt nýkominn yfir á eldri deildina, sem ég vinn á. Þetta geng- ur svona misjafnlega vel hjá okk- ur mæðginunum, hann reynir að komast svolítið langt með mömmu sína, svona eins og þriggja ára gutt- ar gera." Þau mæðginin búa í góðu yfirlæti á Bolungarvík og stefna á að gera það í nánustu framtíð. „Hér höfum við allt til alls og hér h'ður okkur vel," segir Anna Helga sem ætíar sér að nýta hvern einasta dag lífsins til hins ítrasta. kolbrun@idv.i5 Allir ættu að taka önnu Helgu sér til fyrimyndar og skrifa niður drauma sfna og markmiö. DV hefur útbúið einfalda uppskrift að draumalista sem auðvelt er að fylla út. Settu þér tvö til þrjú markmið íhverjum flokki. Um leið og þú skrifar niður markmið þfn hefur þú tekið fýrsta skrefið I átt að draumum þfnum. Gangi þér vel! DRAUMALISTINN MINN 1. MAKI 2. FJÖLSKYLDA. 3. VINIR_______ 4. ATVINNA. 5. HEILSA 6. ÁHUGAMÁL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.