Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Feröir DV
TEQUILA Stórt hliö verndar
göinlu verksmiöjuna enda stafar
mikíl eldhsetta af alkóhólgufum.
1\D1A\ LUNCll
I rom I I : !0 1 >:(*(>
ÍNDIAN DINNLR
l'rom 10:00 22:00
£Á FERÐINNI
Golf a Flonda
Ferðaklúbbur Golfbúðarinnar í
Hafnafirði skipuleggur nú
golfferðirtil Flórída með
lcelandair - frá janúar til aprfl
2008. Það er þó þegar orðið
uppselt (sumar ferðirnar en enn
eru laus sæti í tveggja vikna
ferðirnar 11.2. -26.2 og 25.2,-
10.3. Verð á manninn er hundrað
þúsund krónur og er flug,
bílaleigublll, gisting og ótakmark-
að golf á fjórum golfvöllum.
Tilvalið fyrir golfara að skella sér
og stytta með því veturinn.
Nánari upplýsingar á golfbudin.is.
INDIAN - PAKISTANl CUISINE
AUSTURSTRÆTI 4, Tel: 551 0292 . www.shalimar.is
Tónleikaferðir
Express-ferðir bjóða upp á mjög
svo spennandi tónleikaferðir
með heimsfrægum listamönn-
um. Flestir tónleikarnir eru
haldnir (London. Við erum að
tala um nöfn á borð við Björk í
London 14. apríl, Foo Fighters í
London 6. júní, Radiohead í
London 24. júní og Bruce
Springsteen (Gautaborg.
Páskaferð til
hálandanna
Skosku hálöndin eru án efa
meðal fallegustu svæða (Evrópu
og þó víöar væri leitað. Þetta er
hérað fjalla, djúpra dala, vatna og
eyja með stórbrotnu landslagi og
merkilegri sögu. Ferðaskrifstofan
Úrval Útsýn býður nú upp á
páskaferð um skosku hálendin. (
Hálöndunum eru frægustu og
bestu viskí heimsins búin til og (
ferðinni verðurframleiðsluferlið
og saga þessarar mikilvægu
útflutningsafurðar Skota könnuð.
Að sjálfsögðu verður einnig farið
á slóðir hinna sívinsælu þátta um
Hálandahöfðingjann. Fararstjórar
eru Ingibjörg Geirsdóttir og
Snorri Guðmundsson.
í Jalisco-héraði í Mexíkó, skammt
frá stórborginni Guadalajara,
stendur lítill og syfjulegur bær sem
ber hið kunnuglega nafn Tequila. Af
óteljandi smábæjum í þessu stóra
landi, sem allir virðast við fyrstu
sýn vera eins, er þessi fátæklegi bær
þó líklega sá allra frægasti. Orðspor
hans er margfalt á við það sem
stærð hans og íbúatala gætu nokk-
urn tíma gefið tilefni til. í Tequila
og á hásléttunum allt í kring varð
hinn heimsfrægi samnefndi drykk-
ur nefnilega til. Og enn í dag er
miðstöð ffamleiðslu og bruggunar
tequila að finna í bænum. Drykkur-
inn heimsffægi er upphaflega unn-
inn úr plöntunni agave tequilana
sem vex aðeins í kringum Tequila,
sem er í um 1.600 metra hæð yfir
sjávarmáli. Margar tegundir af
plöntunni vaxa þó víða um landið,
en samkvæmt Mexíkóskum lögum
verður 51 prósent af hráefninu sem
drykkurinn er unninn úr að vaxa á
svæðinu í kringum Tequila.
Mörg hundruð ára hefð
Miðað við það að tequila er ein
mest selda áfengistegund í heimin-
um og hversu gífurlega miklir hags-
munir eru af ffamleiðslu drykkjar-
ins, er yfirbragð bæjarins látlaust
og afar hefðbundið. Ætla mætti að
fyrir tilstilli markaðsafla væri búið
að ferðamannavæða staðinn meira
en raun ber vitni. En þar er hvorki
að finna minjagripabúð né stór
áberandi skilti sem minna gestinn
á að hann sé kominn til eins konar
vöggu ofurölvunar og minnisleysis,
en segja má að drykkurinn hafi öðl-
ast það orðspor í Bandaríkjunum
og Evrópu. Kannski er það ekkert
skrítið þar sem svo miklar áfengis-
gufur eru í loftinu við gömlu verk-
smiðjuna að innandyra er bann-
að að taka ljósmyndir með flassi,
vegna eldhættu.
Hvorki salt né sítróna
fbúar Jalisco-héraðsins eru
stoltir af afurðum sínum og varla
er hægt að panta áfengan drykk á
svæðinu án þess að hann innihaldi
Tarantúla
Tarantúlurfmnast 1 suövesturfylkjum Bandaríkjanna, aðallega f
Kaliforníu, Arizona og Texas. Einnig eru þær algengar á
skógarsvæðum Mið-Amerlku, Mexíkó og um alla Suður-
Amerlku. Algengt er að þær grafi sig I litla holu (jörðinni og '3
bíði þar eftir bráð sem þær stökkva síöan á og blta.Tarantúlur
veiða aðallega á næturnar og er helsta bráð þeirra skordýr,
smávaxnir froskar og körtur, mýs og önnur lítil spendýr. ■
tequila. Þegar sá sem hér skrifar
ræddi við starfsmann einnar verk-
smiðjunnar sagðist hann ekki skilja
drykkjumenninguna á Vesturlönd-
um, sem felur í sér að sleikja salt
og bíta í sítrónu á sama tíma og
tequila er drukkið. Slíkar aðferð-
ir eru aðeins til þess að gera út af
við hið sérstaka bragð sem áralangt
ffamleiðsluferli hefur gætt drylck-
inn. Rétt er að drekka drykkinn
óblandaðan og án aukaefna, en af
illri nauðsyn geta nokkrir dropar úr
lime-ávextinum verið réttlætanleg-
ir til aðstoðar.
HeimsókntilTequila er að mörgu
leyti eins og að stíga aftur í tímann
og upplifa gamla og sögulega
Mexíkó. Sömu fjölskyldurnar
hafa plægt jörðina kynslóð eftir
kynslóð og breytingar hafa verið
mjög hægfara. Landbúnaðurinn
er ffumstæður og ekki að sjá að
breytinga sé að vænta. Sá veruleiki
sem blasir við gestum í Tequila
er gífurlega langt ffá Tex-Mex-
væðingunni í stórborgum landsins
sem verða sífellt vestrænni. í
Tequila hefur gamli tíminn enn
ekki sleppt takinu og konur jafnt
sem karlar drekka tequila og segja
svo: „Salút!" Alveg eins og þau hafa
alltaf gert. -vör
SHALimAR^