Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Page 46
4« FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Helgarblaö DV
.i f
Charles Starkweather Eftir
fyrsta morðið fannst honum hann
vera kominn á annað tilverustig.
Kattaraugu
Engilsaxneskt máltæki segir
að forvitnin hafi orðið kett-
inum að aldurtila, en sú varð
ekki raunin hjá einum slíkum í
Austin í Texas-íylki í Bandaríkj-.
unum.Fyrir tilviljun fann hann
mikið magn barnakláms og
stuðlaði að handtöku eiganda
þess. Kötturinn var að kanna ný
híbýli sín og fjölskyldu sinnar
þegar hann rakst á gat í einum
veggnum. Við nánari athugun
kom í ljós fjöldi geisladiska sem
komið var í hendur lögreglunn-
ar. Lögreglan komst fljótlega að
því að þeir innihéldu barnaklám
og var í lófa lagið að finna fýrri
íbúa íbúðarinnar. Sá heitir Luis
limenez og hefur verið ákærður
fýrir vörslu barnakláms og á yfir
höfði sér tíu ára fangelsi.
Neyðarleg
símtöl
Starfsfólk neyðarþjónust-
unnar í Hróarskeldu í Dan-
mörku hafði ekki undan að
svara símanum í byrjun febrúar.
Ekki var því um að kenna að svo
margir þyrftu á aðstoð að halda
heldur var um að ræða afar
einmana fimmtíu og þriggja ára
konu. Frá miðnætti 1. febrúar
og í þrjá tíma samfleytt hringdi
konan í neyðamúmerið og á
endanum var bmgðið á það ráð
að senda lögregluna heim til
hinnar einmana konu. Þar fann
lögreglan tvo farsíma og heim-
ilissíma sem allir voru gerðir
upptækir. Konan mátti sækja þá
þegar hún væri orðin allsgáð.
Smávaxmn
vekurkátmu
Tuttugu og eins árs Þjóðverji
fór heldur betur flatt á eigin
dónaskap. Einhverra hluta
vegna fann hann hjá sér þörf til
að senda mynd af kynfærum
sínum í farsíma nokkurra
stúlkna. Þar sem hann hafði
ekki fyrir því að hylja slóð sína
vissi hann ekki fyrr en hann
var dreginn fyrir dóm vegna
athæfisins. Þótt sönnunargögn
gegn honum væru yfirgnæfandi
vöktu þau almenna kátínu í
dómssalnum og viðstöddum
var hulin ráðgáta hvað bjó að
baki þessari sýniþörf. Dómarinn
j sagðiaðumfangjafnaldrans
hefði verið svo lítið að allir
viðstaddir skelltu upp úr.
Charles Starkweather fæddist í
Lincoln í Nebraska 1938. Sagan segir
að hann hafi ekki átt slæmar minn-
ingar úr bamæsku sinni og aldrei
liðið skort af nokkru tagi. Hann átti
sex systkini og í augum samfélagsins í
Lincoln var Starkweather-fjölskyldan
til fyrirmyndar og börnin vel upp
alin. Charles átti því óláni að fagna að
hafa fæðst með ágalla á fótleggjum og
einnig átti hann við örlitla málhelti að
stríða. Þetta varð hvort tveggja til þess
að honum var oft strítt og varð jafnvel
fyrir barsmíðum á sínum yngri árum.
Charles Starkweather fann til
samkenndar með James Dean og
samsamaði sig þeim uppreisnaranda
sem hann varð þekktur fyrir. Arið 1957
þegar Charles var átján ára kynntist
hann Caril Ann Fugate, sem þá var
íjórtán ára og kenndi henni að keyra
bfl. Einn góðan veðurdag lenti Caril
Ann í árekstri og lenti kostnaður vegna
þess tjóns á föður Charles. Vegna þess
upphófst mikið ósætti milli feðganna
og endaði það með því að Charles var
vísað úr föðurhúsum.
Fyrsta morðið
Forsaga fyrsta morðsins var á
þá leið að Charles hafði komið við
á bensínstöð í Lincoln í nóvember
1957. Þar ætlaði hann að láta skrifa
hjá sér leikfangahund handa Caril
Ann. Afgreiðslumaðurinn, Robert
Colvert, var ekki tilbúinn að verða
við þeirri umleitan og Charles yfirgaf
bensínstöðinaæfurafreiði.Morguninn
eför fór Charles á bensinstöðina
vopnaður haglabyssu. Hann fór þó
óvopnaður inn og komst að því að
Colvert var einn við afgreiðslu. En
tvær grímur virtust renna á Charles og
hann settist upp í bíl sinn og ók á brott.
Hann sneri þó aftur að stöðinni og fór
inn og keypti tyggjópakka og yfirgaf
stöðina enn á ný.
Charles lagði bíl sínum skammt
frá bensínstöðinni og fór síðan
fótgangandi og vopnaður til baka
og eftir að hafa haft eitt hundrað
dali úr kassanum neyddi hann
Colvert með sér að bílnum. Charles
ók síðan á fáfarinn stað og skipaði
Colvert út úr bílnum. Til átaka kom
á milli þeirra sem enduðu með því
að Charles tók Colvert af lífi. Charles
viðurkenndi ránið fyrir Caril Ann, en
sagði að Colvert hefði verið myrtur
af einhverjum öðrum. Hún trúði
honum ekki.
Fjölskylda Caril Ann myrt
I janúar 1958 fór Charles heim
til Caril Ann til að heimsækja hana.
Þegar hann komst að því að hún var
ekki heima rann á hann mikið æði og
þegar upp var staðið hafði hann myrt
móður hennar og stjúpföður og barið
tveggja ára systur Carol Ann til ólífis.
Líldn faldi Charles hér og þar á bak
við húsið. Þegar Caril Ann kom heim
hengdu þau miða á útidyrahurðina
þar sem fólk var varað við flensu á
heimilinu. Þau dvöldu á heimilinu í
sex daga eftir morðin.
Amma Caril Ann fylltist grunsemd-
um og hafði samband við lögregluna,
en þegar hún kom á staðinn voru
skötuhjúin flogin úr hreiðrinu. Charl-
Þegar upp varstaðið
hafði hann myrt móður
hennar og stjúpföður.
es og Carii Ann fóru til Nebraska
og heimsóttu fjölskylduvin Stark-
weather-fjölskyldunnar, hínn sjötuga
August Meyer og Charles, sem var
kominn á bragðið, skaut hann í
höfuðið. Skömmu eftir að þau yfirgáfu
heimili Meyers þurftu þau að yfirgefa
bíl sinn sem var fastur í leðju. Þeim til
happs stoppuðu tveir táningar, Robert
Jensen og Carol King, hjá þeim og
buðu þeim far. Charles neyddi þau til
að aka á yfirgefið býh og þar voru þau
myrt í kjallaranum. Síðar viðurkenndi
Charles að hafa myrt Jensen, en hélt
því fram að Caril Ann hefði myrt King.
Nýr fararskjóti og ný
fórnarlömb
Nú voru skötuhjúin komin með
farartæki og óku til Lincoln. Þar
stefndu þau á auðuga bæjarhlutann
og tóku hús á C. Lauer og Clöru
Ward. Húsbóndinn var ekld heima,
en húsmóðirin Clara Ward og
þjónustustúlkan Lillian Fencl mættu
þar örlögum sínum. Báðar voru þær
smngnar til bana. Síðar um kvöldið
kom húsbóndinn heim og Charles
skaut hann til bana. Síðan fylltu
Caril Ann og Charles Packard-bifreið
Lauers af þýfi úr húsinu og óku sem
leið lá til Wyoming. Þegar þar var
komið sögu þurftu þau á nýjum bíl
að halda því Packardinn vakti mikla
athygli.
Þau óku fram á sölumanninn
Merle Collison sem hafði ákveðið
að fá sér hænublund í Buick-bifreið
sinni. Charles vakti hann og skaut til
bana. En þegar hann ætlaði að aka af
stað drap bíllinn á sér. Handbremsan
var ekki „handbremsa" heldur fót-
stigi sem þurfti að stíga á. Þetta var
nýtt fyrir Charles og hvorki gekk
né rak að koma bílnum af stað.
Þegar bílstjóri sem átti leið ffam hjá
bauðst til að hjálpa Charles kom til
handalögmála, en það var ókunna
manninum til happs að lögregluna
bar að í sömu mund. Charles reyndi
flótta en lögregluþjónninn skaut úr
byssu sinni á bifreiðina með þeim
afleiðingum að glerbrotum rigndi
yfir Charles. Charles hélt að hann
væri alvarlega særður og stöðvaði
bílinn.
Mótsagnakenndur framburður
Caril Ann hélt því fram að hún
hefði verið gísl Charles og hann
hefði hótað henni öllu illu. Charles
hélt því fyrst fram að hún hefði ekk-
ert komið nálægt morðunum, en
þegar frá leið breytti hann ffam-
burði sínum. Charles Starkweather
var tekinn af lífi í rafmagnsstólnum
í ríldsfangelsinu í Nebraska 25. júní
1959. Carif Ann var dæmd til h'fs-
tíðarfangelsis, en var náðuð 1976.
Kaldhæðni örlaganna háttaði því
þannig til að Starkweather er garfinn
í Wyuka-kirkjugarðinum í Lincoln,
þeim sama og geymir líkamsleifar
fimm fómarlamba hans.
Stjórnvöld í Mississippi í Bandarikjunum skera upp herör gegn offitu:
Bannað að fóðra feita
Meðalþyngd íbúa í Bandaríkjunum
er óvíða meiri en í Mississippi-fylki.
Löggjafarsamkundunni þar er nú loksins ofboðið
og lagt hefur verið fram lagafrumvarp til að taka
á vandamálinu. Óhætt er að segja aö ekki sé
ráðist á garöinn þar sem hann er lægstur og má
fullvíst telja að úrræðin sem mælt er með munu
verða umdeild.
Ef umrædd lög ná fram að ganga mun það
verða refsivert að afgreiða fólk, sem greinilega á
við offitu að stríða, á veitingastöðum. Heilbrigð-
isyfirvöld í fylkinu munu leggjtt línurnar í orðsins
fyllstu merkingu og gefa út opinber viðmiðun-
armörk. Lagafrumvarpið er runnið undan rifj-
um repúblikanans Teds Mayhall, en hann við-
urkennir fúslega að litlar líkur séu á því að það
verði að lögum.
Þrjátíu prósent of þung
Ted Mayhall vill með frumvarpinu vekja at-
hygli á því vandamáli sem offita er og þeirri
áhættu sem fylgir því að hlaupa í spik meira en
góðu hófi gegnir. Offitu getur meöal annars fylgt
sykursýki, en sá sjúkdómur íþyngir nú um stund-
ir verulega fjárlögum fylkisins. Samkvæmt tölum
síðasta árs eru þrjátíu prósent íbúa Mississippi-
fylkis þyngri en heilbrigt getur talist og er það
met í Bandaríkjunum. í öðru sæti er Vestur-Virg-
inía og Alabama í þriðja sæti.
Of snemmt er að segja fyrir um hvaða viðbrögð
lagafrumvarpið mun vekja. Þó er nokkuð öruggt að
feitir munu ekki sætta sig við að geta ekki lengur
farið á veitingastað og gert sér góðan dag með
vænni steik og tilheyrandi, enda þegar upp er
staðið ekki líklegt að frumvarpið verði að lögum.
En tillagan hefur vakið þá athygli sem vænst var.
I þyngri kantinum Offita íþyngir fjárlögum
Mississippi.
Charles Starkweather var fjöldamorðingi og var uppi um miðja siðustu öld. Á ferða-
lagi með vinkonu sinni skildi hann eftir sig slóð lika. Margar kvikmyndir hafa verið
byggðar á ferli hans og sú frægasta er án efa Natural Born Killers sem skartaði Woody
Harrelson og Juliette Lewis i aðalhlutverkum.
/
\ / / í \ \w \ 1 \ / / / 1 Wá\ \
Lögreglan í Flórida í Bandaríkjunum stöðvaði konu sem ók yfir á
rauðu Ijósi. Við nánari athugun kom í Ijós að bílstjórinn, Tina D.
Williams, var undir áhrifum áfengis og auk þess fannst lögreglunni
forgangsröðunin hjá henni frekar undarleg. Hún hafði spennt
bjórinn sinn í farþegasaetið frammi í en ungbarn hennar lá óspennt
í aftursætinu. Hún á yfir höfði sér kærur af ýmsum toga.