Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Síða 29
DV Fólkið
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 29
ÁRNIVILHJÁLMSSON, SÖNGVARI FM BELFAST
FLUTTI
OG SIGRAÐ
Árnl Vilhjálmsson var settur í akstursbann og
andmælti með tilvísun í meðalhófsreglu
stjórnsýslulaga. Vinur Árna, Bergur Ebbi
Benediktsson, söngvari Sprengjuhallarinn-
ar, var honum innan handar í réttarsalnum
en Bergur er lærður lögfræðingur. Árni
vann málið.
„Þetta var fellt úr gildi, við unnum," segir
Ami Vilhjálmsson, söngvari hljómsveitarinnar
FM Belfast, en DV greindi frá því 4. febrúar að
Arni hefði talað máli sínu sjálfur í héraðsdómi
vegna umferðarlagabrots. Arni naut þó aðstoðar
félaga síns, Bergs Ebba Benediktssonar,
söngvara Sprengjuhallarinnar. Bergur er
lögfræðimenntaður maður, en hefur ekki orðið
sér úti um málflutningsréttindi ennþá. Þannig
var mál með vexti að 2. ágúst síðastliðinn gómaði
lögregla Arna fyrir að aka gegn rauðu ljósi
og stöðvaði hann. Þar sem Arni var enn með
svokallað bráðabirgðaökuleyfi komst lögregla að
þeirri niðurstöðu að hann skyldi sæta ökubanni.
í því felst að Árni þarf að sitja sérstakt námskeið
og taka bílprófið á nýjan leik. Það sem gerði málið
sérstakt er að akstursbannið átti að taka gildi
tveimur vikum efdr að Ámi fengi fúllnaðarskírteini.
f málflutningnum vísaði Arni meðal annars í
meðalhófsreglu stjórnsýslulaga
þar sem sagt er að stjórnvald
megi ekki taka íþyngjandi
ákvörðun ef hægt sé
að ná markmiðinu
með vægara móti.
„Svo ég held mínu
fullnaðarskírteini.
Þarf bara að fara
niður í Borgartún
ogsækjaþað," segir
Árni. „ Mér líður
stórkostlega vel. Ég
reiknaði ekki með
því að þetta myndi
fara svona. Undirbjó
mig undir að þetta
myndi fara á
hinn veginn og bjóst við
að þurfa að taka strætó og
leigubíl til þess að komast
leiðar minnar."
Bergur Ebbi útskrifaðist
sem lögfræðingur árið 2007
og hefur síðan þá unnið hjá
Útfhltningsráði. „Að sjálfsögðu
var akstursbanninu aflétt enda
var Ami beittur ranglæti af stjóm-
völdum. Auk þess erum við Ámi
sigurvegarar í lífinu og látum ekki
sjá okkur í dómsal nema til að vinna,"
segir Bergur af mikilli hógværð um
málið. Tónlistarmenn hafa löngum lotið
í lægra haldi gegn lagabókstafnum, eins
og segir í laginu I Fought the Law, sem flutt
hefur verið af ýmsum tónlistarmönnum í
gegnum tíðina. Ljóst er að þeir félagar geta
því lagt drög að nýju lagi, til mótvægis við
það gamla. don@dv.is
sm
Árni Vilhjálmsson, söngvari
hljómsveitarinnar Fm
Belfast Flutti eigið mál fyrir
héraðsdómi og vann.
s’V ’•
%__f
OPNAÐUR
ÁNÝÍWIA
r lokað síðasta haust, eftír
i íbúum. Staðurinn
mun verða opnaður á ný í mars á
nýjum stað en nákvæm staðsetn-
ing hefur enn ekki verið gefm
upp né heldur nákvæm dag-
setning. Jolene Bar komst fljótt á
kortið í Kaupmannahöfn og var
valinn einn af heitustu stöðum
borgarinnar í byens bedste net-
kosningu árið 2007.
Tónlistarmaðurinn Mugison var
á sunnudaginn útnefndur „Sómi
Súðavíkur". I viðurkenningarskjali
sem sveitarstjóri Súðavíkur, Ómar
Már Jónsson, veittí tónlistarmann-
inum kemur fram að popparinn hafi
með dugnaði sínum og sköpunar-
gleði verið öðrum í sveitarfélaginu
fyrirmynd. 1 viðtali við heimasíðuna
bb.is segir Mugison: „Þetta er mesti
heiður sem mér hefur hlotnast í við-
urkenningarformi. Þetta var helvíti
töff. Rúsínan í pylsuendanum var
verðlaunin sem ég fékk en bær-
inn minn ætlar að föndra fyrir mig
sautján þúsund
eintök af
plötunni
minni."
Bergur Ebbi Benediktsson Var Árna innan handar í
dómsalnum og segir ekki annað hafa komið til greina en sigur.
ERPURMEÐ
ROMMKLÚBB
Rapparinn Erpur Eyvindarson hefúr löngum verið þekktur fyrir aðdáun
sína á rommi. Nú hefur Erpur stofnað klúbb í kringum ástríðu sína og
heitir sá The Maradona Social Club. Aðgangur í klúbbinn er nokkuð
takmarkaður, en þeim sem vilja kynna sér um hvað hann snýst og jafnvel
sækja um inngöngu er bent á að fara á Hótel Keili í Keflavík 21. febrúar.
Þar verður sérstök rommkynning, Tómas R. Einarsson tekur nokkur lög
og að sjálfsögðu verða meðlimir klúbbsins á staðnum.
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON HEFUR SETT 339 FERMETRA GLÆSIHÓS SITT í FOSSVOGINUM Á SÖLU:
Ólafur F. Magnússon
Borgarstjórinn flytur sig um set.
Vogaland 5 339 fermetra villa
borgarstjórans er komin á sölu.
SELURVILLUNA
Ólafúr F. Magnússon, borgarstjóri
Reykjavíkur, hefur sett heimili sitt, Voga-
land 5, á sölu. Húsið er einbýli í Fossvog-
inum og er 339 fermetra villa. Brunabóta-
mat á húsinu, sem er á tveimur hæðum,
er 42.650.000 krónur en fasteignamatið er
56.950.000 krónur. Þrátt fýrir samdrátt á
fasteignamarkaði undanfarnar vikur má
búast við því að hús borgarstjórans rjúki
út enda á besta stað í borginni og sérlega
glæsilegt.
í lýsingu Re/Max á húsinu segir að það
sé einkar fjölskylduvænt og með stórum
garði og heitum potti. „Komið er inn í
rúmgóða, flísalagða forstofu með tveim
tvöföldum fataskápum. Úr anddyri er
komið inn f rúmgott hol þaðan sem gengið
er upp á efri hæð hússins," segir meðal
annars í lýsingunni en í húsinu eru ein átta
herbergi. Þar af tengjast hjónaherberginu
„fataherbergi og stórt sérbaðherbergi
með hvítum innréttingum og baðkari".
Glæsilýsing hússins heldur svo áfram og
endar á orðunum: „Sjón er sögu ríkari."
Blaðamaður DV heimsótti Ólaf á sunnu-
daginn og var þá stöðugur straumur fólks í
Vogalandið sem vildi berja villuna augum.
Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna Ólafur er
að flytja eða hvort hann sé búinn að finna
sitt nýja heimili. asgeir@dv.is