Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Síða 32
Litlar santlokur
+ lítit) gosglas
399 kr.
100 kr.
499
kr.
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
*
1.W
’JPA
Stefnir FLGroup
fyrir vanefndir
Kaupfélag Árnesinga hefur stefnt
FL Group vegna vanefnda og fór
aðalmeðferð málsins fram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Kaupfélag-
ið, sem hætt hefur störfum, lenti
í greiðslustöðvun fyrir nokkrum
árum og í kjölfarið var samið við
flesta aðila sem það átti í viðskipt-
um við. Angi starfseminnar tengdist
ferðaþjónustu og námu útistand-
andi skuldir Flugleiða við félagið
nokkrum milljónum. Kaupfélagið
fór í mál við Sparisjóð Mýrarsýslu
árið 2005 vegna anga af sama máli
en því var vísað frá dómi.
DV tekur breytingum
Allnokkrar breytingar verða
á DV frá og með deginum í dag.
Fréttasíðum fjölgar og aftari hluti
blaðsins tekur breytingum. Meðal
þeirra breytinga má nefna að ný
síða helguð fréttum af fólki birtist
í íyrsta sinn í dag og sjónvarps-
dagskráin tekur breytingum.
Einnig hefur göngu sína ný síða
þar sem áhersla er lögð á ættfræði
og afmælisbörn dagsins.
Markmiðið með þessum
breytingum er að efla DV enn
frekar og halda þannig áfram
sókn blaðsins.
Vilja að bæjarfull-
trúinn víki
Bæjarfulltrúinn Gunnar Helga-
son mótmælir ásökunum minni-
hluta bæjarfulitrúa í Vogunum varð-
andi ólöglegt sumarhús sem hann
byggði í Breiðagerði 3 nálægt Vogum
á Vamsleysuströnd. Sjálfur er Gunn-
ar formaður byggingar- og skipu-
lagsnefndar en nefndin hafnaði
beiðni hans um stöðuleyfi hússins á
fundi nú fyrr í febrúar. Bæjarfulltrú-
ar minnihlutans hafa krafist þess að
Gunnar víki úr starfi sem formað-
ur nefndarinnar á meðan unnið er í
málinu. Andmælaréttur er ekki lið-
inn og málið því í pattstöðu enn sem
komið er.
ÞarfClapton að
framvísa vottorði?
Hómópatalyf eru seld í apótekum þrátt fyrir að ekki hafi verið sýnt fram á virkni þeirra:
LYFSALARNIR FETA í
FÓTSP0R GRÆÐARA
1
Matthías Halldórsson aðstoðarland-
læknir segist fullur efasemda vegna
þeirrar ákvörðunar sumra apóteka
að selja hómópatalyf í apótekum.
Mikilla efasemda gætir í vísinda-
heiminum um gagnsemi hómópata-
lyfja en það kemur ekki í veg fyrir að
þau séu seld í apótekum. Eitt þeirra
apóteka sem bjóða hómópatalyf til
sölu er Skipholtsapótek sem hefur
auglýst þessar vörur undanfarið.
Ekki mikil trú á gagnseminni
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir segir vissulega
umhugsunarvert að apótek skuli
selja hómópatalyf, þó landlæknis-
embættið hafi aldrei skipt sér af slíku.
„Apótekin selja nú ýmislegt, allt frá
lakkrís til fæðubótarefna. Apótekin
eru auðvitað partur af heilbrigðis-
starfsemi og gerir það mann eilítið
hugsi, því þetta myndi flokkast undir
starfsemi græðara. Engu að síður
tíðkast þetta í apótekum um allan
heim að þau selji hómópatalyf."
„Það er tilhneiging til að vera
umburðarlyndur gagnvart þessu
þótt maður hafi kannski ekki mikla
trú á að þetta geri gagn. Fólk verður
bara sjálft að ráða því. En maður er
fullur efasemda með að það sé verið
að selja hómópatalyf í apótekum. En
það er Lyfjastofnun sem fjallar um
lögmæti þeirra sem slíkra"
Selja vöru en ekki lækningu
Hjá Skipholtsapóteki fengust þær
upplýsingar að ágætis sala væri í
hómópatalyfjum innan viss hóps.
Andri Jónasson lyfjafræðingur
hjá Skipholtsapóteki segir ekki
óvenjulegt að hómópatalyf finnist
í apótekum. „Ég sel bara vörurnar
ekki lækninguna, ég býð að vísu
upp á þjónustu þar sem hómópati
ráðleggur þeim sem vilja einhveija
fjóra tíma á viku".
SIGUROUR MIKAEL JÓNSSON
bladamadur skrifar: mikaekwdv.is
Kári Sturluson fór hamförum gegn Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni:
Umkringd fuglum Vetrarhörkurnar að undanförnu hafa ekki síður verið slæmarfyrir dýrin en manneskjur. Fuglarnirtóku því
þess vegna vel þegar þessi kona fór niður að Tjörn og gaf þeim að borða. DVmyndSiguröur
Bloggari bað borgarstjóraefni afsökunar
Á bloggi Kára Sturlusonar tón-
leikarahaldara um helgina var
að finna mjög rætin skrif um Vil-
hjálm Þ. Vilhjálmsson. Kári talaði
þar um að Vilhjálmur væri alkó-
hólisti og furðaði sig á því af hverju
Vilhjálmur þyrfti ekki að framvísa
heilbrigðisvottorði líkt og kollegi
hans, Olafur F. Magnússon, gerði.
Hann rakti síðan dæmi um það
hvernig Vilhjálmur hefði orðið sér
til skammar á fundi borgarstjórnar.
Kári er bróðir Oddnýjar Sturludótt-
ur, borgarfulltrúa fyxir Samfylking-
una.
Kári segir að hann vilji lítið tjá
sig um umrædda bloggfærslu.
Hann segist hafa áttað sig á því
skömmu eftir að færslan fór á vef-
Kári Sturluson „Ég klppti þessu strax út
af vefnum og bað Vilhjálm auðmjúklega
afsökunar," segir Kári.
inn að skrifin væru meiðandi fyr-
ir æru Vilhjálms og ákvað því að
taka færsluna út skömmu síðar.
DV náði hins vegar afriti af text-
anum áður en færslan hvarf. Kári
segist hafa sent Vilhjálmi tölvupóst
og beðið hann innilega afsökunar.
Aðspurður hvort hann hafi fengið
einhver viðbrögð frá Vilhjálmi eft-
ir umrædda bloggfærslu segir Kári
að hann hafi ekki enn fengið svar.
„Hann hefur örugglega nóg að gera
þessa dagana," segir Kári.
Eftir að færslan birtist ákvað
Kári að loka bloggsíðu sinni fyr-
ir fullt og allt en hann var einn af
fjölmörgum bloggurum sem not-
ast við Moggabloggið. „Ég ákvað
að vera ekkert að fikta við þetta
dót meira. Ég ákvað að loka jjessu
bara alveg," segir Kári en hann hef-
ur staðið í ströngu þessa dagana
við að koma tónlistargoðinu Eric
Clapton til landsins. einar@dv.is
„Ég sel bara vörurnar,
ekki lækninguna."
Ekki sýnt fram á virkni
Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri
Lyfjastofnunar, segir í viðtali við DV
að ekki sé gerð athugasemd við sölu
apóteka á hómópatalyfjum enda
séu þau inni í Evrópulöggjöfinni.
„Við gefum leyfi fyrir hómópata-
lyfjum, en í Evrópu er hefðin fyrir
hómópatíu miklu meiri og eldri
heldur en hér. Þetta er grein sem er
að byrja að þróast hérna heima, og
nokkrir hérlendis sem hafa menntað
sig á þessu sviði í Bretlandi meðal
annars. Hómópatalyfin falla undir
Evrópulöggjöfina en það má ekki
auglýsa þau sem svo að þau lækni,
enda hefur ekki verið sýnt fram á að
þau hafi einhver áhrif."
Yahoo hafnaði
Microsoft
Yahoo hafnaði yfirtökutilboði
Microsoft á þeim forsendum að
það sé of lágt. Stjórn Yahoo vill
að minnsta kosti 40 bandaríkja-
dollara á hlut en tilboðið hljóðaði
upp á 31 dollara, samtals 44,6
milljarða doliara eða rúma 3 þús-
und milljarða króna.
Jerry Yang, forstjóri Yahoo,
hyggst sannfæra hluthafa um að
hann geti fengið hærra tilboð eða
komið með áætlun um vöxt í net-
auglýsingatekjum. Markaðurinn
gæti allt að tvöfaldast fyrir 2011
en Yahoo hefur misst markaðs-
hlutdeild til Google og síðna eins
og Myspace og Facebook.
Grensásvegl 51 Reykjavík i Sfmi 588 8585
Opib alla daga 11:00 - 22:00