Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2008, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2008, Qupperneq 15
DV Sport FIMMTUDAGUR 3. APRlL 2008 15 Fimmtudagur 3. apríi 2008 LIVERPOOL ER I GOÐRI STOÐU I MEISTARADEILDINNI EFTIR 1-1 JAFNTEFLI GEGN ARSENAL í GÆR. BLS. 16 „Myndi hjálpa ef frumkvæöið kæmi frá KSÍ,“ segir Þóra Helgadóttir: Ekkert útilokað hjá Þóru Markvarðamál íslenska kvennalandsliðsins í knattspymu eru í uppnámi eftir að Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður Vals, sleit hásin í Lengjubikarleik gegn KR í íyrradag. Guðbjörg hefur verið ásamt Þóru B. Helgadóttur besti markvörður fslands og tók landsliðssæti þeirrar síðarnefridu þegar Þóra lagði landsliðsskóna á hilluna vegna persónulegra ástæðna i fyrra. Landsliðið á fyrir hendi í sumar og haust þrjá leiki sem skera úr um það hvort íslenska lands- liðið komist á úrslitamót Evrópukeppninn- ar. „Þetta er svo sannarlega gífurlega mikilvæg verkefni sem eru fram undan. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég heyrði fréttimar var samt ekk- ert hvort ég ætti að koma aftur heldur hversu svekkjandi þetta er fyrir Guggu [Guðbjörgu] og landsliðið," sagði Þóra þegar DV hafði samband við hana í gær. Þóra leikur í atvinnumennsku með belgíska liðinu Anderlecht og sinnir mikilvægu starfi með. Vegna þessa hætti hún með landsliðinu í fyrra og bar við persónulegum aðstæðum. Nú situr Sigurður Ragnar uppi með tvo líklega kosti. Söndm Sigurðardóttur, óreyndan markvörður Stjömunnar, og fyrrverandi landsliðsmarkvörð- inn Maríu Björg Ágústsdóttur sem er nýkomin aftur í boltann eftir tveggja ára fjarveru. „Ég get engan veginn stokkið aftur í lands- liðið strax, ég er svona að velta þessu fyrir mér eins og staðan er núna. Svo veit ég heldur ekkert hvort ég er velkomin aftur í landsliðið. Eitt er allavega víst að ég hætti ekki vegna áhugaleys- is enda hefur landsliðið verið stór partur af lífi mínu undanfarin ár. Ég er vel tilbúin að ræða við knattspymtiforystuna en það myndi hjálpa ef frumkvæðið kæmi frá henni," sagði Þóra við DV í gær. tomas@dv.is Þóra B. Helgadóttir Útilokar ekki endur- komu í landsliðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.