Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 82

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 82
82 FIMMTUDAGUR 24. APR(L 2008 Fókus 0V wnNnÐNiawvNpmiw do ínoj nwoooa oaw vho vho vho voasavw was Heimsþekktur baritón Miðasala er haiin á tónleika hins heimsþekkta baritónsöngvara sir Willard White í íslensku óperunni sem haldnir verða næsta þriðjudag. White kemur hingað með tónleika sína sem farið hafa sigurför um heiminn, „Kvöldstund með Willard White - til heiðurs Paul Robeson", þar sem hann syngur tónlist sem bandaríski söngvarinn og baráttu- maðurinn Paul Robeson var þekktur fyrir að flytja. Þar á meðal eru negra- sálmar, rússnesk lög, þjóðlög frá Bretíandseyjum og gömul djasslög og tengir frásögn af lífi Robeson at- fiðin á efnisskránni. HVERT ER LAGIÐ? „Þeir gera þetta, þeir gera hitt, allt þar tiFgestirnir garga á spritt" DIMM OG DRUNGALEG DÁSEMD Það er vandasamt verk að gera góða sögu og gott umhverfi í tölvuleik. í flestum tilfellum er eitthvað hallæri í gangi, eitthvað sem ekki passar, eitthvað sem er einum of, eitthvað sem hefði alveg mátt missa sig. I Dark Sector hins vegar tekst þeim hjá Digital Extremes vel upp. Leikurinn gerist í nánustu framtíð austantjalds megin og það er allt á rúi og stúi. Notkun efnavopna hefur umturnað heiminum, afleiðingar sem enginn sá fyrir. Eins og helvíti hafi skyndilega birst í sovéskum rústum. Aðalhetja leiksins er CIA- gæinn Hayden Tenno, sem hefur verið sendur inn til að hafa upp á einhverjum andskotanum að hætti herskárra Bandaríkjamanna. Hayd- en kemst því miður í snertingu við banvænan vírus sem umturnar honum. Hann fær ofurkrafta, hálf- gert ofurvopn og allt í gangi. Þá byrjar leikurinn fyrir alvöru. Frábærir skotbardagar, drungi og dimma sem DARK SECTOR nc ★★★★ Hasarleikur PS3/Xbox360 fá punghárin á manni til að panta sér einn tvöfaldan með lime og svo er meiru kebabbi vafið upp á þráðinn, svo leikurinn verði ekki samansafit af hakki og slasji, heldur einhverju aðeins meira. Graffldn er virkiiega TOLVULEIKUR flott og hefur ekkert verið til sparað til þess að fullkomna andrúmsloftið. Stýringamar vefjast heldur ekki fyrir manni. Dark Sector er klassaleikur. Hann skorti samt broddinn til að verða að einhverju mega-dæmi. Ég er hrifiiari af þessum leik en kollegar mínir ytra. Mæli með honum, en mæli ekki með því að menn spili einir einhvers staðar í myrkrinu, því eins og sagt er, margt gerist í þeim fjandans óskunda. DóriDNA » * Stuttmyndadagar í Reykjavík Stuttmyndadagar 2008 verða haldnir í Kringlubíói 29. maí næstkomandi. 'Stuttmyndadagar hafa verið haldn- ir í Reykjavík frá árinu 1992 og eru Reykjavíkurborg, Kvikmyndamiðstöð- in, Vífilfell, menntamálaráðuneytið og Sjónvarpið helstu bakhjarlar hátíðar- innar. Á hátíðinni eru veitt verðlaun fyrir bestu stuttmyndina að verðmæti 100.000 krónur. Annað sætið fær 75.000 krónur og það þriðja 50.000 krónur. Vinningsmyndin verður þar að auki kynnt á Short Film Comer á kvikmyndahátíðinni í Cannes og höf- undi myndarinnar boðið á hátíðina. Skilafrestur á myndum er til 11. maí en hægt er að skila myndum til Kvik- myndafélags íslands eða rafrænt á heimasíðunni stuttmyndadagar.is. Heimsljós að sloklai Sýningu Gunnars Salvarssonar á portrettmyndum frá þróunarlönd- um lýkur í næstu viku í Fótógrafi við Skólavörðustíg. Þessa síðustu sýningarhelgi verður opið frá klukkan 10 til 18. Heimsljós - por- trettmyndir frá þróunarlöndum er yfirskrift sýningarinnar sem sam- anstendur af 34 svarthvítum por- trettmyndum ff á sex samstarfs- löndum Islendinga í alþjóðlegri þróunarsamvinnu: Malaví, Mós- ambík, Namibíu, Úganda, Ník- aragva og Srí Lanka. Þetta er fyrsta einkasýning Gunnars en hann hefur áður tekið þátt í samsýning- um bæði hér heima og erlendis. BÓFALOGGUR OG LÖGGUBÓFAR Leikstjóranum og handritshöf- undinum David Ayer eru fátækrahverfi Los Angeles greinilega hugleikin. Ayer er höfundur myndarinnar Training Day frá árinu 2001, en einnig hefur hann gert myndirnar Dark Blue og Harsh Times, sem gerast á sömu slóðum, þó sú seinni hafi verið meira í anda Training Day. Nýjasta kvikmynd Ayers, Street Kings, á ansi mikið skylt við Training Day, þótt hún sé ekki skrifuð af honum sjálfum. Myndin fjallar um lögreglumanninn Tom Ludlow sem fer eigin leiðir í starfi sínu, falsar sönnunargögn, skýtur menn, en allt í þágu réttlætis. Yfirmaður hans, Jack Wander, leikinn af Forrest Whitaker, hvetur hann til dáða. Hins vegar fer innra eftirlitið að skipta sér af. Gamall félagi Ludlows er drepinn. Hann veit ekki hverjum hann getur treyst og hefur eigin rannsókn á málunum. Sannleikurinn reynist beiskur og súr, allt fer í voll. Street Kings hefur ákaflega sterkt minni úr Training Day. Til dæmis er borðað á sama lögguveitingastað og sást þar, menn virðast vinna eftir sömu viðmiðum og gildum. Það er því óneitanlega erfitt að bera myndirnar ekki saman við hvor aðra og skemmst er frá því að segja að Street Kings fölnar í samanburði. Söguframvindan í handritinu er oft brösótt og slysaleg. Stígandin er tílviljanakennd, sem auðvitað endar þá á rosalegum anti- climax. Myndatakan skraufþurr, þó útlit Los Angeles geti oft virkað vel og tónlistin alveg ömurleg. Keanu Reeves er ofmetinn og daufur leikari. Borinn saman við óskarsverðlaunahlutverk Denzels Washington í títtnefndri Training Day, er hann bara aulalegur. Þeir Hugh Laurie og Common standa sig vel, hinir virðast ekki vera á heimavelli, þó að rapparinn The Game virðist það i orðsins fýllstu merkingu í sínu stutta innskoti. Ég 4 “NÍU * xlfe % • .• W \ m ... Common Á kraftmiklar og virkilega vel leiknar 10 minútur í Street Kings. STREET KINGS ★★ Leikstjóri: David Ayer — Aðalhlutverk: Keanu Reeves, SgÆX Forrest Whitaker, Hugh Laurie, ___Chris Evans, Terry 1^^^»^ Crews og Jay Mohr. BIODOMUR skil áhuga Ayers á gettóinu í Los Angeles vel. Frumskógurinn inni í borginni, þar sem sá hæfasti lifir af. En hins vegar eru takmörk fýrir því hvaða látbragðsleiki er hægt að setja á svið í þessu umhverfi. Á meðan Training Day var fersk, óvænt og öflug, er Street Kings klisjukennd, fyrirsjáanleg og illa upp byggð. Training Day setti fram siðferðislega togstreitu sem átti erindi við mann; Má stela frá glæpamönnum, ef maður setur þá í steininn eða gröfina í leiðinni? En Street Kings gerir ekki einu sinni heiðarlega tilraun til þess að skilja eitthvað eftir sig. Kvikmyndin byrjar af krafti, en sígur svo jafnt og þétt niður. Ég kannski bjóst við miklu, en í málefnum svikulla lögreglumanna í LA er standardinn hár og Street Kings er fyrir neðan meðallagið. DóriDNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.