Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008 Helgarblað PV Allar heimildir til kaupanna til staðar: FLEIRIFYRIRTÆKIMUNU KAUPA HEIMILDIR „Það er ljóst að það er heimild til að kaupa og selja sam- kvæmt þessu ákvæði og því er ekkert því til fyrirstöðu að fyrirtæki kaupi kvóta. Það verður trúlega þannig að fyrirtæki þurfi í auknum mæli að fara þessa leið og kaupa sér heimild- ir í framtíðinni," segir Sveinn Þorgrímsson, formaður úthlut- unarnefndar losunarheimilda. Sveinn leggur áherslu á það að þær heimildir sem voru veittar í september á síðasta ári gildi til ársloka 2012 og það sé því engin framtíðarskuldbind- ing fólgin í þessum úthlutunum. „Úthlutunin síðasta haust var á grundvelli þeirrar framleiðslu sem fyrirtækin höfðu þá og uppfyllti allar þær kröfur sem voru í þáverandi rekstri. Þetta tekur ekki á því sem gerist eftir árið 2012," segir Sveinn. Sveinn segir vilja stjórnvalda vera að minnka losun gróð- urhúsalofttegunda töluvert. Þá séu fyrirtækjum tvær leiðir llÉ|Sk^ 5 færar, annaðhvort að kaupa sér kvóta til losunar gróður- húsalofttegunda eða þá að taka upp framleiðsluaðferðir sem menga minna. Sveinn segir markmið Kyoto-samnings- ins nást betur með þessum heimildum innan samningsins. „Þetta er hvatning til fyrirtækja til að fara í umhverfisbætur," segir Sveinn. Ekki tímabært tal Talsmenn álfyrir- tækjanna á íslandi telja ekki tímabært að tala um hvort til greina komi að fjárfesta í mengunarkvóta frá öðrum löndum. -v, áásaiáaeji arheimilda miðaði við í úthlutun sinni síðasta haust. Ef þau stóriðjufyrirtæki sem hug- myndir eru uppi um að reisa myndu sækja um losunarheimildir miðað við fulla framleiðslugetu þeirra og núverandi forsendur stjórnvalda og heimildir, vantar rúmar 7 millj- ónir tonna upp á að kvóti Islands samkvæmt Kyoto-bókuninni dugi þeim. Þarna er vísað til hugmynda um stækkun álvers í Straumsvík, álver í Þorlákshöfn, álver í Helgu- vík, álver á Bakka við Húsavík, kís- ilverksmiðju Tomahawk Develop- ment í Helguvík og Olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Öll þessi fyrirtæki sóttu um losunarheimildir síðasta haust, en álverin sóttu einungis um heimildir sem dygðu fyrsta áfanga álveranna. Þar sótti Helguvík til að mynda um að fá 637 þúsund tonna kvóta úthlutaðan, en þyrfti í raun í framtíðinni um 1,8 milljóna tonna kvóta miðað við fulla framleiðslu- getu yfir fimm ára tímabil. Framtíð Kyoto-sáttmálans Framtíð Kyoto-bókunarinnar ræðst ekki formíega fyrr en á fundi í Kaupmannahöfn árið 2009. Þeg- ar hafa þó aðildarríkin að sáttmál- anum gefið til kynna að þau hygg- ist draga verulega úr losun, eða um allt að 40 prósent á næstu tólf árum, eins og vísindanefnd Sam- einuðu þjóðanna um loftslags- breytingar leggur til. Þegar hefúr ríkisstjórn fslands gefið til kynna að hún hyggist fara eftir þessum tillög- um í því skyni að koma í veg fyrir að hlýnun lofthjúps jarðar fari yfir til- tekin mörk. Ómögulegt er að segja hver stefnan verður í Kyoto-bókuninni að svo stöddu. Stefnan er þó sú að almennt verði dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda, en óvíst er hvort Island fái undanþágu á grundvelli þess að hagkvæmt þyk- ir að starfrækja stóriðju hérlendis vegna notkunar endurnýjanlegra orkugjafa við framleiðsluna. Miðað 8 MILLJÓI SIIRTONNA TILÁRSINS2012 ísland hefur heimild til að losa um 8 milljónir tonna koltvísýr- ings til ársins 2012 samkvæmt íslenska ákvæði Kyoto-bókunarinn- ar. Þetta jafngildir um 1,6 milljónum tonna árlega að meðaltali. 250 þúsund tonna álver losar um 356 þúsund tonn af koltvísýringi árlega miðað við fulla framleiðslugetu. Samkvæmt Kyoto-sáttmálanum er aðilum heimilt að vinna sér inn losunarheimildir með því að vinna að verkefnum á sviði umhverfismála í þróunarlöndum. Ef kolaorkuveri væri skipt út fyrir vatnsafl gæti því fyrirtækið fengið þann ávinning sem hlýst af verkefninu í hendur. Þetta hefur gjarnan verið kallað CDM- ákvæðið, eða Clean Development Mechanism. Einnig er aðilum heimilt að kaupa losunarheimildir ifá erlendum aðilum. FERÐ MILLI LANDSHLUTA Ein ferð frá Reykjavík til Seyðisfjarð- ar á bensínknúnum jeppa losar yfir 200 kíló af koltvísýringi. FLUGFERÐTIL KAUPMANNA- HAFNAR Ferð til Kaupmannahafnar fram og til baka losar um 230 kíló af koltvísýringi á hvern farþega. HEIMILD: ORKUSTOFNUN við núverandi heimildir er þó ljóst að fyrirtækin færu langt fram yfir þær miðað við fulla framleiðslu- getu. Ekki tímabært að tala um kaup Talsmenn álfyrirtækjanna á fs- landi telja ekki tímabært að ræða um hvort til greina komi að fjár- festa í mengunarkvóta vegna fyr- irhugaðra framkvæmda. Erna Ind- riðadóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls, segir of snemmt að vera með vangaveltur um koltvísýrings- heimildir vegna byggingar álvers á Bakka við Húsavík. „Málið er ein- faldlega á undirbúningsstigi enn- þá og hugsanlegt álver verður ekki komið í gang fyrr en 2015," segir Erna. í sama streng tekur Magnús Þór Gylfason, upplýsingafulltrúi Alcan, sem segir ótímabært að velta þess- um spurningum fyrir sér og segir þurfa að horfa til þess hvað eigi sér stað eftir árið 2012 þegar nýtt tíma- bil Kyoto-samningsins tekur gildi. Orkuveita Reykjavíkur hefur ekki unniö sér inn losunarkvóta: Möguleikarnir til staðar hjá Orkuveitunni Möguleikarnir til þess að verða sér úti um losunarheimildir í tengslum við verk- efni Orkuveitu Reykjavíkur eða tengdra fyrir- tækja erlendis eru til staðar. Grundvöllurinn er til staðar vegna grænnar vottunar Nesja- vallavirkjunar, en samt sem áður eru verkefni Orkuveitunnar ekki unnin samkvæmt CDM- ákvæði Kyoto og því fær Orkuveitan ekki út- hlutað losunarkvóta vegna þeirra. Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður Orkuveit- unnar, segir ekki hafa komið til álita enn sem komið er að Orkuveitan hasli sér völl á þess- um markaði. „Orkuveitan hefur ekki gert þetta enn sem komið er, en það kann að vera að ráð- legt sé að huga að því í framtíðinni, en þá svo að kvótarnir verði nýttir í viðkomandi lönd- um," segir Ásta. Nýjasta verkefni Reykjavíkur Energy Invest, dótturfyrirtækis Orkuveitunnar, snýr að nýt- ingu jarðhita í smáríkinu Djíbútí, en raforku- framleiðsla landsins byggist að miklu leyti á olíu nú til dags. Að sögn Ástu er það ekki byggt á CDM-ákvæði Kyoto-bókunarinnar. Ásta segir stefnu Orkuveitunnar fyrst og fremst að framleiða vistvæna orku og koma henni til viðskiptavina sinna. Ásta segir það svo hlutverk orkukaupendanna að verða sér úti um losunarheimildir ef þess þarf. Möguleikinn á að verða sér úti um meng- unarkvóta í verkefnum Orkuveitunnar úti í heimi til að selja þá hefur ekki komið til um- ræðu innan stjórnar fyrirtækisins. Græn vottun Nesjavallavirkjunar Orkuvelta Reykjavíkur gæti hugsanlega fengið mengun- arkvóta vegna verkefna sinna úti í heimi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.