Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008 Helgarblað DV Frændsystkyni öryggisvarðarins sem var í lífshættu eftir fólskulega árás í miðbæ Reykjavíkur fyrr í april eru óttaslegin nálægt honum vegna þeirra áverka sem hann fékk. Móðir þeirra, Sunneva Jónsdótt- ir, segir erfitt að útskýra fyrir börnunum að frændi þeirra hafi verið við dauðans dyr. Hún leggur áherslu á að hvert slys og hver árás snerti ekki aðeins fórnarlambið heldur alla fjölskylduna. Blæddi 700 millilítra inn á heilann Óttar Jónsson var lengi mumm K milli heims og helju eftir að ölvaður viðskiptavinur 10-11 barði liann í höfuðið með glerflösku þannig að blæddi inn á heilann. i-- ipb 05. WA ■ .'f mmsm s ’1. £ fíl f* ■ •ýí: / . / y, y' , „Það varnæstum því búið að myrða hann. Það er ekki árásar- manninum að þakka að hann erálífi." BORNIN HRÆDAST F0RNARLAMBIÐ ERLA HLYNSDÓTTIR bladomaðut skrifar: erfa&dv.ls „Yngsta dóttirmíner smeykvið hann og sonur minn sem er að verða sex ára þorir ekki að vera hjá honum. Hann er auðvitað með hryllilegan skurð á höfðinu," segir Sunneva Jónsdóttir, systir Ottars Þórs Ómarssonar, 21 árs öryggisvarðar sem var í lífshættu eftir árás í verslun 10-11 í Austurstræti aðfaranótt sunnudagsins 6. apríl. Hún segir erfitt að útskýra fyrir börnunum að frændi þeirra hafi verið við dauðans dyr: „Sonur minn skilur þetta ekki alveg. Hann veit bara að Ottar meiddi sig." Óttar varð fyrir fólskulegri árás- inni þegar hann var við vinnu. Árásarmaðurinn barði hann í höfuðið með glerflösku og voru áverkar Óttars mjög alvarlegir. Á slysadeild Landspítalans kom í ljós að blætt hafði inn á heila og var honum vart hugað líf. Um 700 millilítrar blæddu inn á heila Óttars. Lögregla hafði fjarlægt árásarmanninn úr versluninni fyrr um nóttina vegna óláta en um hálfri annarri klukkustund síðar birtist hann aftur og veittist að Óttari, að því er virtist í hefndarskyni. Þjáist af minnisleysi og höfuðverk „Það var næstum því búið að myrða hann. Það er ekki árásarmanninum að þakka að hann er á lífl," segir Sunneva. Hún er afar þakklát því heilbrigðisstarfsfólki sem aðstoðaði Óttar við að halda lífinu og segir lækninn sem sá um bróður sinn hafa unnið kraftaverk. Líðan Óttars er breytileg eftir dögum. Hann er kominn heim af spítalanum og býr hjá móður sinni. Óttar getur lítið hreyft sig og þreytist fljótt. Hann fær reglulega höfúðverkjaköst og þjáist af minnisleysi. Sunneva segir það eðlilegt miðað við hversu stutt er liðið frá árásinni og ekki endilega til marks um að þessir kvillar komi til með að hrjá hann til langframa. Með dauðann við dyrnar Sunneva segir frá því að síð- ustu tvö árin hafi áföllin dunið yfir fjölskylduna. „En ég hugsa oft um Hrædd frændsystkyn Frændsystkini Óttars verða smeyk nálægt honum vegna þeirra áverka sem hann hlaut við árásina. Þau gera sér illa grein fyrir hvað kom fyrir frænda þeirra. hvað við erum ofsalega heppin. Maður getur ekki vorkennt sér þeg- ar dauðinn er svona nálægt okkur. Hann var þarna alveg við dyrnar," segir Sunneva. Henni er mikið í mun að gefinn sé gaumur að því að á bak við hvert slys og hverja árás er ekki aðeins fórnarlamb og persónulegur harm- leikur þess, heldur heil fjölskylda: „f fréttum kemur aðeins ffam að einhver hafi slasast. Mér finnst oft gleymast hvernig aðstandend- um líður," segir hún; „Þetta snertir okkur öll ákaflega mikið. Nú skilur maður hversu mikils virði lífið er." „Verður hann svona alltaf?" Hún rifjar upp nýlegt slys á Reykjanesbrautinni en fjölmörg önnur höfðu þar áður átt sér stað. Það var síðan ekki fyrr en þekktir einstaklingar lentu í slysi sem far- ið var að ræða við aðstandendur og virkilega vekja athygli á alvarleika málsins: „Að mfnu mati þarftu ekki að vera frægur til að skipta máli. Það eru líka öryrkjar, gamalmenni og ungt fólk sem lendir í slysunum, og þau eru alveg jafnmerkileg fyr- ir það." Einna erfiðastar fannst henni stundirnar þegar Óttar var nýkominn upp á gjörgæslu. Hún sá að hann gat hvorld hreyft hönd né fótlegg öðrum megin á líkamanum, og ekki opnað annað augað: „Ég gat ekki hugsað annað en: Verður hann svona alltaf?" Fyrstusólarhringarnir voru fjölskyldunni þungbærir. „Hann datt reglulega í djúpan svefn og við vorum í mikilli óvissu." Hún segir saumana á sárum bróður síns minna hana á árásina: „Auðvitað þakka ég fyrir að ekki fór verr. Við vitum vel hversu nálægt hann var dauðanum." Sunneva segir Óttar sjálfan ekki tilbúinn til að fyrirgefa árásar- manninum. Óttar vonar þó að sá sem réðst á hann leiti sér sjálfúr hjálpar til að geta lifað í sátt og samfyndi við meðborgara sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.