Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008 Umræða DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Visir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bín Ragnarsdóttir RIT5TJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dvjs og Reynir Traustason, rt@dv.is FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson, janus@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason, asi@birtingur.is DREIFINGARSTJÓRI: Jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is DVÁNETINU:DV.1S AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: S12 7010, ÁSKRIFTARSlMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 70 40. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Arvakur. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins á stafrænu formi og (gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaösins eru hljóðrituö. SWDKOKN ■ Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, fékk góðar viðtökur í íslandsheimsókninni í fyrradag. ‘íslending- ar eru býsna hliðhollir málstað Pal- estínumanna, sem bíða enn eftir sínu sjálfstæða ríki semvarboð- að í samhengi við stofnun Ísraelsríkis. Jónas Kristjánsson ritstjóri bloggar oft um sannleika sem látinn er liggja á milli hluta. f gær kallaði hann Abbas valdaræningja og vestrænan lepp, þar sem hann hefði rekið samsteypustjóm Hamas-flokksins ffá völdum. ■ Lögreglan barði niður mót- mæli flutningabílstjóra við Rauðavatn í gær. Svo virðist sem mælir yfirvaldsins hafi fyllst í kjölfar þess að bílstjór- amirgripu til aðgerða íkringum heimsókn Malunouds Abbasar. Á staðnum vom með- limir úr víkingasveit Bjöms Hjarnasonar, sem hann hefur stækkað til að tryggja almanna- öryggi, ásamt óeirðalögreglu. Ástæða þess að óeirðalögreglan var send á staðinn var ekki sú að óeirðir hefðu orðið, heldur mun lögreglan hafa sett bílstjórun- um þá afarkosti að hverfa frá eða verða fjarlægðir. ■ Þeir tveir starfsmenn sem hafa hvað mest fyilt almenn- ing undrun vegna stjamffæði- legra iaunakjara hafa nú gengið í sameiningu til liðs við banda- ríska fjárfestingarsjóðinn Paine & Partners. Þetta em þeir Bjami Ánnannsson, sem fékk 900 milljónir króna fyrir að hætta hjá Glitni, og FrankO. Keite, sem fékk 510 milljónir við starfslok hjá Noregsarmi sama banka. Bjami segist í viðtalið við Mark- aðinn að hann sé ekki bjartsýnn á þróun efnahagsmála í heimin- um. Ólíklegt er þó að persónuleg fjárhagsmál plagi hann. ■ BjörgólfúrThorBjörgóifsson sagði við danska viðskip tablaðið Börsen að hann hygðist halda að sér höndtim í fjárfest- ingum í það minnsta framað áramótum. Hann telur að verðið muni lækka á næstu mán- uðum og bíður þess að bank- ar neyðist til að seija fyrir hönd viðskiptavina sinna. Heyrst hef- ur að sumir íslenskir fjárfestar beitti þeirri einföldu fjárfesting- arstefnu að fylgja Bjöggunum og fjárfesta alltaf í kjölfar þeirra, enda hefur flest breyst í gull sem þeir snerta, líkt og hjá Mídasi forðum. Gullkálfar í féþúfu LEIÐARI REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRISKRIFAR. M Lífeyrissjóðir á íslandi eru fyrirbæri sem fæstir skilja þótt þeir séu í eigu launafólks. Sjóðimir hafa dafnað af fé sem er án hirðis. Stjómend- ur þeirra em gjarnan gull- kálfar sem ná að smjúga inn í féþúfuna og fara helst ekki út aftur. Raunvemlegt lýð- ræði í skipan stjóma lífeyr- issjóðanna er ekki til. Klíkur skipa stjórnarmenn og halda hinum almenna sjóðfélaga fjarri. Dæmi em um að stjórnarmenn fari í mútuferðir til útlanda á vegum aðila sem em að næla sér í rekstrarfé með ósmekklegum hætti. Þeir fjármunir sem streyma frá almenningi inn í sjóðina em gríðarlegir. Lögbundin iðgjöld em að lágmarki 10 prósent af launum sem þýðir að meðaljóninn greiðir yfir 300 þúsund krónur á ári. Til að sanngirni sé gætt skal tekið fram að sumir lífeyrissjóðanna hafa af alúð ávaxtað sitt pund og hafa sett sér reglur um það með hvaða hætti stjórnendur koma fram fyrir hönd sjóðanna. Fœstir sjóónmui liafu leglur Uvaö varöar niútiiferðirstjórnenda siiina. Fæstir sjóðanna hafa regl- ur hvað varðar mútuferð- ir stjórnenda sinna þótt jákvæðar undantekning- ar sé að finna svo sem hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Aðrir sjóðir em gjarnan með loðið orða- lag um að forðast skuli að starfsmenn komist í þá stöðu að þiggja gjafir eða boðsferðir. Skýrar siða- reglur skortir og dæmi em um að menn hagi sér eins og viðkomandi sjóðir séu í einkaeigu þeirra. DV spurði nokkra stærstu lífeyrissjóðina um boðsferðir á þeirra vegum og bað um sundurliðun á hverri ferð. Þessu gátu engir þeirra sem þiggja boðsferðir svarað skýrt þar sem ekki væri haldið bókhald yfir mútuferðirnar. Gullkálfarnir halda ekki bókhald. Full ástæða er til þess að Alþingi komi til skjalanna og setji þau lög um lífeyr- issjóði sem tryggja að mútuferðir verði ekki sjálfsagðar. Eðlilegt er að löggjafinn setji sjóðunum siðaskrá sem gætir fullkomiega hags almennings sem á enga lýðræðislega leið inn í sjóðina. SVEIFLAÐU KYLFUNNI SVARTHÖFÐI DV-MYND ÁSGEIR Loksins, loksins, loksins. Loks- ins. Var ekki kominn tími á almennileg átök milli lögreglu og almennings? Var ekki kominn tími á piparúða og kylfur á lofti? Stóra skildi og skapmikla mótmæl- endur? Og lögreglu að störfum? Um að gera að láta mótmælendur vita að þeir komast ekki upp með hvað sem er. Lögreglan hefúr lengi verið gagnrýnd fyrir að taka ekki með sömu hörku á mótmælum atvinnu- bílstjóra og fýrri mótmælendum. Þannig tók lögreglan almennilega á Bjargvættum íslands (sem voru reyndar ekki betur að sér í íslenskri tungu en svo að þeir kölluðu sig Saving Iceland), fylgdist vel með þeim, jafnvel svo kalla megi njósnir og handtók nokkra - fyrir utan að hafa að sögn keyrt viljandi á einn þeirra. Og að sjálfsögðu Iét lögregl- an gulu mótmælenduma við Jiang Zemin ekki komast upp með neitt múður og keyrði á einn þeirra, þó það hafi víst verið óvart. En lögreglan hefur sem sagt verið harðlega gagn- rýnd fyrir að taka ekki á uppsteyt atvinnubíl- stjóra af nægilegri hörku. Og kannski hefur sviðið undan gagnrýninni. En nú hefur lögreglan loksins rek- ið af sér slyðruorðið, tekið á mótmælendum af fullri hörku, beitt piparúða (með miklum tilþrifum) og sveiflað kylfúm og danglað í ein- hverja. Og ekki skorti handtökumar í gær. Fjöldinn allur af mót- mælendum handtekinn. Svarthöfði man ekki svo langt aftur að hann hafi nokkm sinni orðið vitni að svona löguðu. Reyndarhefur Svarthöfði heyrt af slíkum átökum og jafnvel lesið um þau í sögubókum. En að verða vitni að svona er algjörlega nýtt. Gefúr Svarthöfða meira að segja nýja sýn á lögregluna. Það getur ekki annað en fýllt hvem íslenskan ættjarðar- vin miklu stolti að verða vitni að því að lögreglumenn, vopnaðir kylf- um, úða og skjöldum, raði sér upp í óvígan vegg til að ryðja skrflnum burt Þetta sem við höfum hingað til bara vanist að sjá frá útlöndum. Nú loksins getum við sagt að við stönd- um í fremstu röð á heimsvísu. Nú skulum við bara vona að varaliðið hans Bjöms Bjamasonar verði að vem- leika sem allra fýrst, og sem best vopnum búið. En auðvitað nær ekki nokk- urri átt að einn þeirra sem lögreglan átti við skyldi kasta grjóti að lögreglu og beint í andlitið á einum lögreglumann- inum. Slíkt er ofbeldi og með öllu óafsakanlegL DÓMSTÓLL GÖTUIVIVAR Á AÐ LEVFA ÁFENGISAUGLÝSINGAR? .Nei, það finnst mér ekki. Það hefur slæm áhrif á fólk og þær auka drykkju að einhverju leyti." Kjartan Björnsson, rafvirki, 20 ára. Já, það má alveg auglýsa þetta eins og allt annaö. Ef það er verið að selja áfengi þá má alveg auglýsa það. Þetta er hvort sem er auglýst sem léttöl eða eitthvaö." Helgi Hannesson, nuddari, 33 ára. „Já, af hverju ekki segi ég bara. Það er náttúrlega verið að auglýsa þetta erlendis svo mér finnst það bara ailt í lagi. Kannski ekki sterkt vín en bjór og léttvín mætti alveg auglýsa. Ólafía Ólafsdóttir, matráður, 42 ára. „Nei, alls ekki, hreint ekki. Já, ég held að það myndi örugglega auka drykkju. Ég sé það á Spáni hvað það hefur allt önnur áhrif, fólk drekkur miklu meira áfengi. Magnús Kristjánsson, fyrrverandi kaupmaður, 78 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.