Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 Umræða DV HVAÐ BAR HÆST í VIKUNNI? Harðar aðgerðir lögreglu „Ég er eiginlega bara í sjokki yfir fréttunum sem ég var að heyra. Lögreglan að nota piparúða á vörubílstjórana og mótmælendur. Mér finnst löggan ganga aðeins of langt í þessum málum núna. Það er gott að einhver tekur loksins af skarið og mótmælir fyrir alvöru. Þetta er eins og úti í heimi. Allir eru voðalega hissa og finnst bfistjóramir einhverjir trúðar en þetta er það sem gerist og gengur. Þótt það sé erfitt að hafa stór orð um lögguna finnst mér þetta aðeins of langt gengið. Hjá mér ber hæst leiksýninguna Mamma- mamma sem ég er í hverja helgi. Það er afrek út af fyrir sig að sýna það. Við erum með aðeins nokkrar sýningar í viðbót og ég hvet fólk til að koma og sjá áður en við hættum að sýna. Síðasta sýningin er 11. maí næstkomandi." Birgitta Birgisdóttir, ieikkona Átta mig ekki á mótmælunum „Maður er alltaf að heyra fféttir um þetta ástand á fjármálamörkuðunum. Það virðist nú ekki vera bara bundið við okkur á íslandi, heldur alls staðar í kringum okkur. Það er alltaf verið að tala um að við séum í sérstaklega slæmri stöðu. Raunin er að það virðist ekki bara eiga við um okkur á þessu skeri heldur um allan heim. Svo virðist endalaus umræða vera um inngöngu í ESB og upptöku evrunnar. Á þeim tímapunkti þegar allt lék í lyndi var enginn að tala um það. Svo á það alveg að bjarga okkur núna þegar allt stendur upp í bólið hjá okkur. Um vörubflamótmælin er það að segja að ég átta mig ekki alveg á þeim lengur. Það vita allir að eldsneytisverð hér er ekki með því hæsta í heiminum. Fólk verður bara að sætta sig við að það kemur ekki til með að lækka, það kemur til með að hækka. Sama hversu mikið menn mótmæla. Þetta kemur illa við budduna hjá öllum." Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins Sumarið að koma „Það eru eiginlega tvö atriðið sem standa upp úr í vikunni. Hið fyrra er að sumarið er að koma af fullum krafti. Þegar himnamir opnuðust og landsmenn böðuðu sig í sólaryl alls staðar á landinu og ekld síst í höfuðborginni og vestan til. Það er alltaf gaman þegar maður sér vorboða í kortunum. Með því kemur vonin. Maður finnur á fólki að þetta hefur gríðarleg áhrif á andlega h'ðan. Hitt atriðið er þessi sorgarsaga um að- gerðaleysi ríkisstjómarinnar. Fyrir ári stóð Geir H. Haarde fremstur frammi fyrir þjóð og sagði að varðveita þyrfti stöðugleika í landinu. Nú hafa þeir komið árinni þannig fyrir borð að þeir em úrræðalausir. Og þeir hafa stýrt málum þannig að þeir virðast enga lausn hafa. Fólkinu í landinu blæðir og svíður. Þetta er mikil sorgarsaga." Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur Upptekin af efnahagsástandinu „Eins og eflaust flestir hefur maður verið svobtið upptekinn af mnræðunni um efnahagsástandið. Við mættum svo sannarlega aðeins hægja á allri neyslu. Á sama tíma finnst mér hættuleg þessi mikia svartsýna umræða vegna þess að hún dregur úr okkur kraftinn frekar en að koma með hugmyndir og tfilögur að því hvemig við getum farið á flug aftur. Síðan finnst mér orðið tímabært að taka höndum saman og fara að hugsa af alvöru um hvemig við getum varðveitt og gert upp gömlu húsin okkar í miðbænum. Þau em mörg hver í vondu ástandi og það er mjög auðvelt að gera þau falleg. Þannig er líka hægt að varðveita söguna í arkitektúr fyrir komandi kynslóðir. Torfan við Lækjargötu er gott dæmi um vel heppnaðar endurbætur. Á sínum tíma trúðu margir ekki að hægt væri að gera neitt úr þeim kofum sem fyrir vom." Valgerður Matthíasdóttir, arktitekt og sjónvarpskona HÁGÆÐA ETANÓL ELDSTÆÐI ENfirS LANDSINS MESTA ÚRVAL AF ETANÚL ELDSTÆÐUM I 6LÆSILEGRI VERSLUN YLIEIIR fyrin heimiliö Bæjarlind 2 - 201 Kópavogur - S:564 5700 blomus conmoto safretti www.ylur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.