Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008
Fréttir DV
FJARMALARAÐI
fyrirfalskt heimili
Fjármálaráðherrann Árni M. Mathiesen hefur fengið tæpar
milljón krónur i húsnæðiskostnað fyrir það eitt að vera með
lögheimili á Kirkjuhvoli við Þykkvabæ. Hann býr ekki þar
og hefur aldrei gert. Aftur á móti leigja tveir pólskir verka-
menn húsið. Samkvæmt lögum fær ráðherrann greitt mán-
aðarlega fyrir að vera með rangt lögheimili á Suðurlandi.
Fantasía og
fjölbreytileiki
Á dögunum fór fram glæsileg
förðunarkeppni og tískusýning
á Rúbín í Öskjuhlíð. AÍls tóku tíu
keppendur þátt í förðunarkeppn-
inni en þemað var Street Fantasy
og bar hin ólærða en efnilega
Bríet Guðmundsdóttir sigur úr
býtum. Meðan dómnefnd gerði
upp hug sinn sýndu verslunin
Fígúra, hönnuðurinn Arndís Ey
og 101 Skjöldur litríkan og flottan
fatnað eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum.
Aukin
samvinna
Lögreglustjórinn á höfuð-
borgarsvæðinu og Tollstjórinn
í Reykjavík hafa skrifað undir
samkomulag um aukið sam-
starf og samvinnu á sviði fíkni-
efnamála. Embættin munu
meðal annars hafa samvinnu
um rekstur og þjónustu fíkni-
efnaleitarhunda og samvinnu
við rannsóknir á innflutningi,
sölu og dreifingu fíkniefna og
greiningarvinnu á því sviði.
Samvinna embættanna við
rannsóknir og greiningarvinnu
á sviði fíkniefnamála felst
meðal annars í gagnkvæmum
aðgangi starfsmanna embætt-
anna að starfsaðstöðu og að-
stoð starfsmanna hvors emb-
ættis um sig.
Franskirflugmenn
ívanda
Lítílli einkaflugvél með tvo
Frakka um borð hlekktist á í flug-
taki á flugvellinum á Patreksfirði
seinni partinn í gær. Að sögn
lögreglunnar á ísafirði skemmd-
ist vélin töluvert en mennirnir
sluppu án meiðsla. Ekki er vitað
hvað olli óhappinu en fulltrúi frá
Rannsóknarnefnd flugslysa fer
á vettvang og rannsakar málið
í dag ásamt fulltrúum lögregl-
unnar.
Enn þorsk-
niðurskurður
Þorskkvótinn verður mink-
aður annað árið í röð, sam-
kvæmt veiðiráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar sem kynnt
var í gær. Stofnunin leggur til
að þorskaflinn verði 124.000
tonn fýrir næsta veiðiár.
Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra sagði
við fjölmiðla að hann teldi
það ákveðin vonbrigði að
viðmiðunarstofn þorsks væri
ekki stærri en fram kemur í
skýrslunni.
„Við höfum aldrei séð hann hérna
í sveitinni," sögðu sveitungar
Árna M. Mathiesen fjármálaráð-
herra en hann er með lögheim-
ili að Kirkjuhvoli í Þykkvabæ eftir
að hann bauð sig fram til þings á
Suðurlandi fyrir síðustu alþingis-
kosningar. Samkvæmt lögum um
þingfararkaup alþingismanna og
þingfararkostnað hefur Árni feng-
ið um það bil 960 þúsund krónur
greiddar í dvalarkostnað frá rík-
inu fyrir það eitt að vera með lög-
heimili að Kirkjuhvoli síðastliðna
tólf mánuði. Þegar blaðamaður
bankaði upp á heimili ráðherrans
kom í ljós að þar búa tveir Pólverj-
ar sem starfa við kartöflufram-
leiðslu í sveitinni. Þar hafa þeir
búið í hálft ár.
íbúar segjast aldrei hafa séð
ráðherrann í bænum.
Pólverjar en ekki ráðherra
Það var fyrir síðustu þingkosn-
ingar sem Árni M. Mathiesen bauð
sig fram til Alþingis á Suðurlandi.
Hingað til hefur hann ávallt boð-
ið sig fram í Suðvesturkjördæmi
en hann býr raunverulega í Hafn-
arfirði. f stað Árna var Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir í fyrsta sæti
á ffamboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í kjördæminu. Árni flutti því
lögheimili sitt að Kirkjuhvoli við
Þykkvabæ á síðasta ári en þing-
menn verða að • hafa lögheim-
ili í þvf kjördæmi þar sem þeir
bjóða sig fram. Þegar blaðamaður
kannaði hverjir eigendur hússins
væru kom í ljós að það er í eigu
byggðarsamlags sveitarfélaganna
og hefur verið síðan árið
2000. Þorpsbúar sem
blaðamaður ræddi
við fullyrtu að hjón
hefðu búið á undan
Pólverjunum í hús-
inu. Og aldrei sáu
þau ráðherrann í
þorpinu, ekki einu
sinni í aðdraganda
þingkosninga.
Milljón í þingfar-
arkostnað
Samkvæmt lög-
um um þingfarar-
kaup alþingismanna og
þingfararkostnað kem-
ur í ljós að þingmenn
og ráðherrar fá mán-
aðarlegar greiðslur frá
ríkinu í húsnæðis- og
dvalarkostnað hafi þeir
lögheimili annars staðar
en á stórhöfuðborgarsvæð-
inu. Upphæðin er reiknuð
af kjararáði sem tekur mið
af launum þingmanna sem
og vísitölu þegar upphæðin er
reiknuð. En samkvæmt heim-
ildum DV flakkar upphæðin frá
áttatíu þúsundum upp í rétt rúm-
ar hundrað þúsund krónur. Af
samtölum við þingmenn sem
búa utan höfuðborgar-
svæðisins er ljóst
að greiðsl-
ur vegna
búsetu
ann-
ars
Sættir hafa náðst á milli Borces llievski og Hótel Cabin:
Agreiningurinn leystur
„Hótelið ákvað að semja við
okkur. Það eru því allir sáttir," segir
Ingólfur Þorleifsson, formaður KFl.
Starfsfólk Hótel Cabin og forsvars-
menn KFÍ áttu símafund í gær og
náðu sáttum um að leysa mál þjálf-
ara KFÍ í sameiningu.
Borce Ilievski, þjálfari KFÍ í
körfubolta, var rændur þegar hann
var gestur á hótelinu ekki alls fyrir
löngu. Þjófurinn tók allt sem Ilievski
var með á leið heim til Makedóníu.
Lögreglan vinnur enn að rannsókn
málsins. Meðal þess sem var stolið
var fartölva, sími og vegabréf, allt í
allt metið af lögreglu á um 300 þús-
und krónur. Einnig þurfti Borce að
fresta fyrirhugaðri heimför til Make-
dóníu þar sem vegabréfi hans var
einnig stolið.
„Þetta var ekki alveg það sem
ég átti von á hér á fslandi. Kannski
á Balkanskaganum en ekki hér,"
sagði Borce meðal annars um rán-
ið. „Ég held að þjófurinn hafi kom-
ist inn í herbergið með lykli. Það er
mín skoðun út af því að við fund-
um töskuna í öðru herbergi rétt hjá.
Það var hins vegar ekkert í henni.
Þarna hvarf allur minn fróðleik-
ur sem ég er búinn að sanka
að mér."
I yfirlýsingu sem sett var
á heimasíðu KFÍ kemur
fram að náðst hafi sættir.
„Samskipti milli Hótel
Cabin og KFÍ eru góð
og koma örugglega
til með að vaxa með
tímanum," segir
meðal annars.
benni@dv.is
Fékk smá bætur
Borce llievski hefurfengið
greiðslu frá Hótel Cabin.
Hótel Cabin
Forráðamenn KF( hafa
nú tekið hótelið í sátt.
VALUR GRETTISSON
blaðamaöur skrifar:
„Viðhöfum aldreiséð
hann hérna í sveit-
inni: