Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Blaðsíða 27
PV Sviðsljós
FIMMTUDAGUR 5. JÚNf 2008 27
Ögrandi Hin
nýbakaða móðir
var í miklum ham.
Stelpudans
Christína og
vinkona hennar
stigu villtan dans.
Hjónin Chrcstina og
Jordan hafa venð gch
siðan 2005
•'-r 4
CHRIS MARTIN DREYM-
IR ÍTREKAÐ AÐRA
SÖNGVARA OG ÞÁ
SÉRSTAKLEGA BONO.
Söngvari hljómsveitarinnar Cold-
play, Chris Martin, uppljóstraði því á
dögunum að hann dreymdi oft Bono,
söngvara U2. Hann sagði auk þess að
hljómsveitin Radiohead laumaðist oft
inn í drauma sína en Bono væri þó tíð-
ari gestur.
„Mig dreymir nánast undantekn-
ingarlaust aðra tónlistarmenn. Alltaf
þegar mig dreymir annaðhvort U2 eða
Radiohead spyr ég þá hvernig þeir hafa
það en það er alltaf sama sagan. Þeir
hafa engan áhuga á að hanga með okk-
ur í Coldplay. Þetta er svona svipuð til-
finning og þegar maður var lítill í skóla
og stóru strákarnir nenntu ekki að leika
við þig," sagði söngvarinn.
Chris viðurkennir einnig að hann
hafi garnan af að prófaýmislegt í svefn-
herberginu. „Ég prófa mig mikið áfram
með danssporin mín fyrir framan speg-
ilinn inni í svefnherbergi. Ég vildi að ég
væri svona gæi sem gæti rokkað svo
feitt að ég gæti gripið um klofið á mér
í hita leiksins. Það virkar bara ekki fyr-
ir mig."
Chris Martin dreymir
Bono Söngvarinn segir að
i draumi vilji Bono aldrei
tala við hann
BER BOSSI
I.eikkonan Kate Walsh var við
tökur á þáttunum Private Practice
þegar vindhviða feykti pilsi leik
konunnar upp og beraði á henni
bossann. Að
sjálfsögðu voru
ijósmyndar-
arnir ekki langt
undan og náðu
myndum af
öllu saman.
Kate lét sér þó
ekki bregða og
skellti upp úr
eftir að hafa
múnað á alla á
tökustað. Þætt-
irnir hennar
eru systurþætt-
irGrey's Anat-
omy og hafa
náð miklurn
vinsældum í
Bandaríkjun-
um og víðar.
Tónlistarmaðurinn John May-
er og kærasti leikkonunnar Jenni-
fer Aniston var stoppaður í gær af
lögreglunni á Sunset Boulevard.
Ástæðan var sú að engin núemra-
plata var á bíl Mayers sem virtist
ekki vera allskostar sáttur við að
vera stoppaður. Mayer virðist því
ekki vera ólíkur Paris Hilton og fé-
lögum sem halda að sérstakar regl-
ur gildi um þau í umferðinni.
ARTHÚR: UÓS
www.fjandinn.com/arthur
Hvað í
ósköpunum
kom fyrir þig?
Uff. Ætlaði að
fara í Ijós í gær
fyrir djammið
En ákvaðst
í staðinn að
brenna þig
lifandi?
Nei nei, ég sofnaði í
bekknum. Konan sem
átti að reka mig út lést
óvænt á meðan á
tímanum stóð
Uff, bömmer.
Þannig að þú
hefur bara
slappað af
í gær?
Nei nei, ég lét
mig hafa það
og fór á djammið...
Hösslaði sjö stelpur