Málfregnir - 01.11.1991, Blaðsíða 12
hand-, úti-, inni- o.s.frv. Svo undarlega
vill til að þessi orð eru notuð í afar tak-
mörkuðum mæli í samsetningum, eins
og bíllugt, gaslugt, fjóslugt og tjaldlugt.
Orðið lugt (eða lukt) er tökuorð, líklega
úr lágþýsku luchte (eða dönsku lygte),
sbr. Leuchte í þýsku.
4. Nefndarskipan
í upphafi voru kjörnir 3 menn í Orða-
nefnd RVFÍ vorið 1941. Helst svo til árs-
ins 1948 að Guðmundur Marteinsson ber
upp þá tillögu á aðalfundi RVFÍ að Jakobi
Gíslasyni verði bætt við. Hann rökstuddi
tillögu sína með því „hve mikinn áhuga
Jakob hefði sýnt á smíði nýyrða“. Víst er
að Jakob hefur staðið mjög nærri starfi
nefndarinnar fyrstu ár hennar, þó að
dráttur hafi orðið á að hann tæki formlega
sæti í henni. Árið 1959 bættist enn við
maður í nefndina, Eðvarð Ámason. Hann
er ýmist nefndur ritari nefndarinnar eða
framkvæmdastjóri. Um skeið var hann út-
gáfustjóri Raftœkni- og Ijósorðasafns (I)
en síðast er hann kosinn í nefndina 1968,
rúmum tveimur árum fyrir andlát sitt.
Á aðalfundi RVFÍ 1962 baðst Gunn-
laugur Briem undan endurkosningu í
nefndina. Jakob Gíslason verður for-
maður en Jón A. Skúlason er kosinn í
nefndina. Pað urðu því ekki miklar
breytingar á mannaskipan hennar. Árið
1969, 28 árum eftir stofnun, var „bylting-
arkennt“ í sögu nefndarinnar að því leyti
að þá bættust þrír ungir verkfræðingar í
nefndina, Bergur Jónsson, Sigurður
Briem og Jón D. Þorsteinsson, en Eð-
varð Árnason var hættur störfum í nefnd-
inni og var ekki endurkjörinn. Kosnir
nefndarmenn voru þar með orðnir sjö.
Bergur og Sigurður starfa enn í nefndinni.
Árið 1974 varð mesta breyting á nefnd-
inni í sögu liennar. Alls hættu fjórir
nefndarmenn störfum, Guðmundur Mar-
teinsson, Jón D. Þorsteinsson, Jón A.
Skúlason og Steingrímur Jónsson. Af
öldungum nefndarinnar var formaðurinn,
Jakob Gíslason, þá einn eftir. Samtímis
hófu fimm nýir verkfræðingar störf með
nefndinni, og eru tveir þeirra enn starf-
andi, Gísli Júlíusson og ívar Þorsteins-
son. Kosnir nefndarmenn voru nú níu.
Næsta ár, 1975, bætist svo við enn einn
þeirra áhugasömu félaga sem starfa í
nefndinni, Jón Þóroddur Jónsson.
Á næstu árum og allt til þessa hafa
breytingar orðið nærri árlega í nefnd-
inni. Nefndarmenn hafa ýmist látið af
störfum eða nýir bæst við, enda taka
nefndarstörfin mikinn tíma af tóm-
stundum manna. Nefndarmenn úr hópi
rafmagnsverkfræðinga eru kosnir á aðal-
fundi RVFI sem er haldinn að vori.
Fjöldi þeirra hefur verið frá sjö til níu.
Að auki hefur nefndin um margra ára
skeið haft málfræðilegan ráðunaut frá
íslenskri málnefnd á fundum sínum, og
hafa nokkrir málfræðingar gegnt því
starfi. Undanfarin 10 ár hefur Hreinn
Jónasson rafmagnstæknifræðingur einnig
verið í nefndinni. Yfirleitt eru fundir
haldnir í hverri viku, allt árið um kring,
og hafa komist upp í 42 á ári, enda þótt
stundum hafi reynst erfitt að halda viku-
lega fundi á sumrin á undanförnum
árum. Fundirnir standa allt að 3 klukku-
stundir, utan venjulegs vinnutíma.
Sá nefndarmanna, sem starfað hefur
lengst í nefndinni, er Jakob Gíslason.
Hann starfaði sem kjörinn nefndar-
maður frá 1948 til dauðadags, í árs-
byrjun 1987, eða 39 ár og sennilega
lengur í raun. Hann var einn sérfræði-
legra ráðunauta Orðanefndar Verk-
fræðingafélagsins, eins og fram hefur
komið, og átti því nálægt 60 ára starf-
sferil að baki við íslenska nýyrðagerð á
12