Málfregnir - 01.11.1991, Blaðsíða 13

Málfregnir - 01.11.1991, Blaðsíða 13
sviöi raftækni. Tuttugu og tvö ár var hann formaður Orðanefndar en lét af starfi í marslok 1984. Við formennsku tók Bergur Jónsson og gegnir henni enn. í fjölmörg ár hefur Orkustofnun og þar áður Raforkumálaskrifstofan séð nefndinni fyrir góðri fundaraðstöðu, og ýmsir starfsmenn stofnananna hafa reynst nefndinni hinar mestu hjálpar- hellur. Fyrir það er Orðanefnd þakklát. 5. Verkefni, leyst og óleyst Eins og fram hefur komið, voru viðfangs- efni Orðanefndar frá upphafi fram til 1950 valin af handahófi og orðum safnað eftir þörfum og tilviljunum. Árangur þess starfs er þó óneitanlega frambæri- legur þar sem eru nærri 2200 orð sem birtust í bókinni Orðasafn II. Rafmagns- frœði, út gefinni 1952, eins og áður segir. Um 1950 beindist athygli Orðanefndar að orðasafni IEC, International Electro- technical Vocabulary. Viðfangsefni nefnd- arinnar hafa síðan nær eingöngu verið í því orðasafni, þó með hliðarsporuin, eins og rakið hefur verið. Raftœkni- og Ijósorðasafn, sem út kom 1965, hefur að geyma rúm 2100 orð. Þar af eru rúm 500 orð úr orðasafni Alþjóða ljóstækninefnd- arinnar, CIE. Árið 1973 kom út Raf- tœkni- og Ijósorðasafn II með rúmum 2100 orðum eins og fyrra bindið. Þessi orð voru öll úr safni IEC. Árið 1988 hefst útgáfa nýrrar ritraðar Orðanefndar RVFI. Pá kemur út Raf- tœkniorðasafn I - Práðlaus fjarskipti með nærri 1050 uppflettiorðum. Næsta ár, 1989, kom út Raftœkniorðasafn 2 - Ritsími og talsími, með rúmlega 1100 orðum. Raftœkniorðasafn 3 - Vinnsla, flutningur og dreifing raforku geymir um 620 orð, og í Raftækniorðasafni 4, sem kemur væntanlega út i haust og fjallar um aflrafeindatækni og rafeindalampa, verða um 760 orð. Þá verða rétt innan við 10.000 upp- flettiorð komin á prent í 7 bókum Orða- nefndar rafmagnsverkfræðinga. Rúm- lega 1500 uppflettiorð til viðbótar hafa verið þýdd en verða aldrei gefin út, þar sem þau eru í orðabókarköflum frá IEC sem lýstir hafa verið úreltir. Þau nýtast hins vegar við vinnslu þeirra tæplega 2700 uppflettiorða sem nefndin vinnur við um þessar mundir og eru flest langt komin í umfjöllun. Þá eru eftir ótalin tæplega 600 orð sem nefndin hefur þýtt í safni World Energy Conference (WEC) en ekki hafa verið gefin út, ógrynni orða í íslenskum staðli, ÍST/IEC 117, sem nefndin fjallaði um fyrir Staðladeild Iðn- tæknistofnunar í nærri V/2 ár fyrir fáein- um árum og nærri 1600 uppflettiorð sem nefndin á í fórum sínum en ekki hefur verið ráðist á enn. Lætur þá nærri að Orðanefnd hafi ljallað um 15.000 upp- flettiorð á ferli sínum og gefið 10.000 þeirra út, um 2.500 séu að hljóta endan- lega meðferð fyrir birtingu og álíka mörg séu skemmra á veg kominn. Spyrja má hvað taki svo við. Því verð- ur ekki svarað með vissu nú en benda má á að bæði bindi Raftœkni- og Ijósorða- safns eru þrotin. Orðasafn IEC er sífellt að vaxa, og Orðanefnd telur sig ýmsa kafla varða sem enn hefur ekki verið lit- ið á vegna tímaskorts. IEC endurskoðar í sífellu eldri kafla orðasafns síns, og Orðanefnd RVFÍ þyrfti að fylgjast með þeim breytingum, ekki síst ef til endur- útgáfu einhverra binda í Raftœkniorða- safni kæmi. íslenskt raftæknimál er breytingum undirorpið eins og hin erlendu, og nýrra orða er þörf með nýrri tækni. Orðanefnd sér því fram á óþrjót- andi verkefni. 13

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.