Málfregnir - 01.11.1991, Síða 14

Málfregnir - 01.11.1991, Síða 14
Lög um mannanöfin (nr. 37/1991) I. KAFLI Eiginnöfn 1. gr. Hverju barni skal gefa eiginnafn, þó ekki fleiri en þrjú. Þeir sem fara meö forsjá barns hafa bæði rétt og skyldu til að gefa því eigin- nafn eftir því sem greinir í lögum þessum. 2. gr. Eiginnafn skal vera íslenskt eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Það má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Eiginnafn má ekki heldur vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Hvorki má gefa stúlku karlmannsnafn né dreng kvenmannsnafn. Óheimilt er að gefa barni ættarnafn sem eiginnafn nema hefð sé fyrir því nafni. 3. gr. Mannanafnanefnd skv. 17. gr. skal til við- miðunar við nafngjafir semja skrá um þau eiginnöfn sem heimil teljast skv. 2. gr. og er hún nefnd mannanafnaskrá í lögum þessum. Hagstofa íslands gefur skrána út, kynnir hana og gerir aðgengilega almenn- ingi og sendir hana öllum sóknarprestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga. Skrána skal endurskoða eftir því sem þörf er á en hún skal gefin út í heild eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti. 4. gr. Barn getur öðlast nafn við skírn í þjóð- kirkjunni eða í skráðu trúfélagi eða með tilkynningu um nafngjöf til Hagstofu íslands, Þjóðskrár, prests eða forstöðu- manns skráðs trúfélags. Skylt er að gefa barni nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess. 5. gr. Eigi að gefa barni nafn við skírn sem prestur þjóðkirkjunnar, forstöðumaður eða prestur skráðs trúfélags á að annast skal forsjármaður þess skýra þeim, um leið og skírnar er óskað, frá nafni því eða nöfnum sem barnið á að hljóta. Sé nafn, sem barn á að hljóta, ekki á mannanafnaskrá skal prestur eða for- stöðumaður trúfélags ekki samþykkja það að svo stöddu né gefa það við skírn heldur skal málið borið undir manna- nafnanefnd. Hafi barn verið skírt skemmri skírn má, þegar skírn er lýst eða hún tilkynnt skv. 1. mgr. 4. gr., gefa barni nýtt nafn í stað þess sem því var áður gefið eða annað nafn til viðbótar áður gefnu nafni. Berist Þjóðskrá tilkynning um eigin- nafn, sem er ekki á mannanafnaskrá, skal það ekki skráð að svo stöddu heldur skal málinu skotið til mannanafnanefnd- ar. 6. gr. Mannanafnanefnd kveður upp úrskurði í þeim málum sem til hennar er vísað skv. 5. gr. Urskurðir skulu kveðnir upp svo fljótt sem við verður komið og ekki síðar en innan tveggja vikna frá því mál barst nefndinni. Ef felldur er synjunarúr- skurður skal forsjármaður barns velja 14

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.