Málfregnir - 01.11.1991, Qupperneq 26
vörusýningum og í minjagripaverslun-
um.
Ákvæði frumvarpsins ná til auglýs-
inga hér á landi og því ekki til auglýs-
inga í erlendum sjónvarps- eða hljóð-
varpssendingum né auglýsinga í erlend-
um blöðum, tímaritum og öðrum
prentgögnum sem berast til íslands
nema þeim sé beint sérstaklega að ís-
landi og unnt sé að koma fram ábyrgð
á hendur þeim sem stendur að baki
dreifingunni.
Verði frumvarpið að lögum verður
aðalreglan sem sé sú, eins og fyrr
greinir, að allar íslenskar auglýsingar
og þær erlendar auglýsingar, sem sér-
staklega er beint að íslandi, skuli vera
á lýtalausri íslensku. Við verðum að
trúa því að þarna verði byggður varn-
argarður sem eitthvert hald verður í.
Lokaorð
Eg hef nú nefnt nokkur nýleg dæmi um
ýmsar aðstæður sem íslenskt mál hefur
staðið frammi fyrir á síðustu misserum
og reynt að sýna hvernig viðbrögðum
hefur verið háttað. Of snemmt er um
að segja hvar vinnast sigrar og hvar
verður undan að láta.
Eins og nú horfir má segja að þótt
íslensk málrækt gæti þurft að láta hlut
sinn að nokkru leyti fyrir alþjóðlegri
fjölmiðlun sé e.t.v. að vænta betri
niðurstöðu af öðrum vígstöðvum sem
hér hefur verið greint frá. Einkum eru
miklar vonir bundnar við íðorðastarf
og þýðingar á ýmsum sviðum.
Á þessari stundu er okkur óhætt að
vera tiltölulega bjartsýn á að við
vinnum fleiri orrustur en við töpum.
En stríðinu er alls ekki lokið..
Mannanafnanefnd tekin til starfa
frh. af bls. 2
mannanafnanefnd og rökstuddi það
vandlega (sjá Málfregnir 8, bls. 16—17).
Endurskoðun mannanafnalaganna frá
1925 var mikið nauðsynjamál, en mjög
var það misráðið að tengja hana ekki á
neinn hátt við þá miklu skipulagsbreyt-
ingu sem orðið hefir síðan 1925 með
stofnun íslenskrar málnefndar 1964 og
lagasetningu um starfsemi hennar 1984
ásamt lagabreytingu um stækkun nefnd-
arinnar 1989.
Engin skýring hefir fengist á því
hvers vegna sjónarmið fslenskrar mál-
nefndar voru virt að vettugi á Alþingi.
í umræðum þingsins er ekki á þau
minnst og þá ekki heldur í dagblöðum
né hljóðmiðlum. Reyndar var fjarska
lítill almennur áhugi á þessu máli
meðan það lá fyrir Alþingi í frum-
varpsformi. Helst voru fjölmiðlar að
reka upp hljóð þegar allt var um seinan
og frumvarpið orðið að lögum.
Hér er ekki við Mannanafnanefnd að
sakast. Hennar bíða nú vandasöm verk-
efni, og henni mun ekki veita af árnað-
aróskum. Hún er því boðin velkomin til
starfa og henni óskað góðs gengis. — fíJ
26