Málfregnir - 01.11.1991, Qupperneq 27

Málfregnir - 01.11.1991, Qupperneq 27
Ritfregnir eftir Ara Pál Kristinsson og Baldur Jónsson Áætlun um tilhögun íðoröastarfsemi. Tillögur. Eftir Sigrúnu Helgadóttur og Kristján Árnason. íslensk málnefnd. Menntamálaráðuneytið. Reykjavík 1991. 36 bls. Fjölrit. Þetta rit er skýrsla sem stjórn íslenskrar málnefndar lét taka saman að beiðni menntamálaráðuneytisins snemma á þessu ári. Þar er m.a. að finna glöggt yfirlit yfir þá íðorðastarfsemi sem hér er stunduð nú, markmið hennar og síðan tillögur um verkefni og hvernig að þeim skuli staðið. — BJ Drög að leiðbeiningarriti fyrir orða- nefndir og aðra þá sem áhuga hafa á vali og skráningu íðorða. Fjölritað sem handrit. íslensk málstöð 1991. 79 bls. Oft hefir verið um það rætt á undan- förnum árum að taka þyrfti saman leið- beiningar handa orðanefndum, bæði um orðmyndun og önnur vinnubrögð. Þörfin hefir verið augljós en skilyrði hefir skort til að bæta úr henni þar til nú. Menntamálaráðuneytið og íslensk mál- nefnd efndu í sameiningu til málþings 9. mars sl. með orðanefndum og öðrum sem hafa áhuga á íðorðastarfsemi, og í tilefni af því fékk sú hugmynd nýjan byr að efna þyrfti til rits af þessu tagi. Ari Páll Kristinsson, Sigrún Helgadóttir og Sig- urður Jónsson frá Arnarvatni tóku ritið saman, og var því útbýtt á fyrrnefndu þingi 9. mars. Fyrsti hluti ritsins er almennur inn- gangur að íðorðafræði og aðferðum hennar. Annar hluti fjallar um orð- myndun í íslensku, og þriðji hluti er lýs- ing á gagnagrunni fyrir skrásetningu á íðorðum ásamt dæmum úr frágengnu orðasafni og stuttri lýsingu á forritum til úrvinnslu. Enn er þetta ófullburða verk, en hefir þegar komið í góðar þarfir. — BJ Það er leikur að skrifa. Eftir Ólaf M. Jóhannesson. Iðnú. Reykjavík 1991. 196 bls. Höfundur bókarinnar, Ólafur M. Jó- hannesson, hefur fengist við íslensku- kennslu og greinaskrif. Hann er líklega þekktastur fyrir pistla sína í Morgun- blaðinu, „ljósvakarýni", en þar fjallar hann raunar oft um íslenskt mál og með- ferð þess í fjölmiðlum. Bókin Pað er leikur að skrifa er öðrum þræði samin með þarfir framhaldsskóla- nema í huga en jafnframt nýtist hún hverjum þeim sem leggja vill fyrir sig rit- gerða- eða greinaskrif. Á síðustu árum hafa komið fram nokkrar nýtilegar bækur um ritun og frágang. Þær sem helst hafa verið í notkun í framhaldsskólum eru Handbók um ritun og frágang, Fram á ritvöllinn, Ritgerður og Ritgerðabókin. Nú bætist Pað er leikur að skrifa \ þeirra hóp. Verður ekki annað sagt en að kennarar hafi úr ýmsu efni að moða á þessu sviði, og eru það mikil og góð umskipti frá fyrri árum. í þremur fyrstu köflum Pað er leikur 27

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.