Málfregnir - 01.11.1991, Side 29

Málfregnir - 01.11.1991, Side 29
Bögubókin. Eftir Ragnar Inga Aðal- steinsson. Höfundur gaf út. Reykjavík 1990. 64 bls. Þetta kver er tekið saman í því skyni að leiðbeina byrjendum við vísnagerð. Eins og allir vita hafa margir gaman af að setja saman vísur, en gengur misjafn- lega, og býsna oft virðast vísnasmiðir furðulega ósnortnir af þekkingu á íslenskum bragreglum, nema helst rími. Fagna má hverri heiðarlegri tilraun til að bæta úr því, svo sem þessari bók, sem höfundur segir í formála að ætlunin hafi verið að kenna í nokkrum framhalds- skólum í vetur sem leið. Hér eru kynnt undirstöðuhugtök og meginreglur íslenskrar braglistar með vísnadæmum frá höfundi sjálfum sem er vel hagmæltur. I ljóðstafakynningu í 7. kafla þar sem s er til meðferðar fá lesendur t.d. þessa vísu (bls. 24): Hér má eyðisveitir sjá sumum vekja trega. Sínrastaurar syngja þá söngva dapurlega. Efni vísnanna á við nútímann í sveitum og bæjum og ætti ekki að vera framand- legt íslenskum unglingum. Margar tengj- ast bílakstri. Rösklega 30 verkefni eru í bókinni og langflest „felast í því að raða saman orðum þannig að úr verði rétt gerð vísa“, segir höfundur í formála. Bókin skiptist í 15 kafla, og eru 14 þeirra helgaðir ferskeytlunni, en í síðasta kaflanunr eru kynntir nokkrir aðrir brag- arhættir með dæmum. Án efa er málþroskandi að læra góðar vísur og kvæði utanbókar í æsku, og hefir margur búið vel að því. Leiðbein- ingar um vísnagerð eru líklegar til að hvetja til kvæðalesturs, og eru því af hinu góða. Bókin endar á hvatningu til lesenda um að þeir virði eitt af æðstu boðorðum þeirra sem unna tungumálinu og láti annaðhvort frá sér fara rétt gerða vísu eða enga. Þess væri óskandi að Bögu- bókin gæti orðið til að glæða góða vísna- gerð og vekja áhuga á vel kveðnum vísum og kveðskap yfirleitt. Vonandi gleymist þá ekki að vont málfar getur spillt rétt kveðinni vísu. — BJ Sprákideologi og sprákplanlegging i Noreg. Ritstjórar: Helge Sandóy, Arne Torp, Kjell Ivar Vannebo og Lars S. Vikór. Nordisk institutt, Universitetet i Bergen. 1991. 211 bls. Ritstjórar þessarar bókar, sem eru mál- fræðingar í háskólunum í Björgvin og Ósló, gengust fyrir ráðstefnu í Noregi í fyrrahaust um það efni sem nefnt er í bókartitli og við getum líklega einna helst kallað málstefnu og málstýringu í Noregi. Bókin er afrakstur ráðstefn- unnar. Þar eru birtar 11 greinar eftir jafnmarga höfunda, að stofni til erindi sem þeir fluttu á ráðstefnunni. Flestir þeirra eru Norðmenn. En þó að efni bókarinnar sé í orði kveðnu bundið við Noreg er margt í umræðu um málstefnu og málstjórn sem aðra varðar um, a.nr.k. okkur íslendinga. Hugmynd þeirra fjórmenninga var að koma af stað umræðu um sambandið á milli málpólitískra hugmynda eða mál- hugsjóna annars vegar og skipulegra aðgerða til málsamræmingar hins vegar. Hið síðarnefnda, sem þeir nefna „sprák- planlegging“ og felur í sér skipulegar aðgerðir til afskipta af máli samfélagsins, vilja þeir telja til vísindastarfsemi, en hafa áhyggjur af því að ekki sé alltaf hnökralaust samband á milli þeirra hug- mynda sem settar eru fram um þau efni og framkvæmd þeirra, vegna þess að for- sendurnar, meginreglur og hugsjónir, séu ekki teknar vísindalegum tökum, ekki kannaðar og greindar vísindalega. Kenning og framkvæmd séu hvor í sínum 29

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.