Málfregnir - 01.12.2004, Page 9

Málfregnir - 01.12.2004, Page 9
Samsett fylgismannaheiti af leiðtoganafni eru með stórum upphafsstaf. Davíðsmaður • Valtýsmaður • Jóns Sigurðssonar maður Athuga hér mun á rithætti orða með viðskeytum: valtýingur o.s.frv. og samsettra orða: Valtýsmaður o.s.frv. Ýmis vöruheiti, sem upphaflega eru sérnöfn, eru rituð með stórum upphafsstaf ef þau koma fyrir í óbreyttu eða upphaflegu formi en með litlum upphafsstaf þegar um breytta orðmynd er að ræða. Adidas • Cadillac • Ford • Macintosh • Nike • Volvo bírópenni • kádiljákur • kók • lúxólampi • makki • volvóinn O Ekki er alltat au9li°st hvenær um er að ræða sérnafn. Upphafsstafur getur greint á milli í dæmum af því tagi. i námskrá frá 1929 er m.a. tilgreind Barnabiblía, saman hafa tekið Haraldur Níelsson og Magnús Helgason. Fyrir aðeins 400 kr. er hægt að útvega einu barni í Úsbekistan barnabiblíu. Jesús er sonur Guðs. Fornar þjóðir trúðu á ýmsa guði. ^ ^ Þegar óvissa eða valfrelsi ríkir um stóran eða lítinn upphafsstaf skal gæta samræmis í rithætti J pN í sömu ritsmíð og innan ritstjórnar eftir því sem unnt er. Ritstjórar og höfundar geta mótað eigin vinnureglur um slík tilvik til að auðvelda samræmi. III. UPPRUNI ORÐA islensk stafsetning byggist að miklu leyti á upprunasjónarmiðum. i því felst að oft er valinn ritháttur sem endurspeglar uppruna og skyldleika orða fremur en að leitað sé einföldustu samsvörunar milli bókstafa og nútimaframburðar. Þannig er að jafnaði tekið mið af stofni orðs, grimmd með tveimur m-um af þvi að orðið er skylt orðinu grimmur ritað y, ý og ey í samræmi við uppruna og fornan framburð, þynnri með y með hliðsjón af orðinu þunnur gerður greinarmunur á n og nn í greini og endingum orða, fyndinn i kk. en fyndin í kv. ritað fl, fn; II; nn; rl, rn. efla, eflt, nefna, nefnd: allur; beinn; árla, spyrna, spyrnti 9

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.