Málfregnir - 01.12.2004, Qupperneq 26
Heimilt er að nota bandstrik til að tengja eignarfallsliði, sem auka vægi merkingar, við næsta
orölið.
afbragðs-afleysingamaður • grundvallar-misskilningur
Bandstrik er sett þegar orðum er skipt milli lína.
Samsettum og afleiddum orðum er skipt á mótum orðhluta. Ósamsettum orðum og orðliðum
er skipt þannig að síðari hlutinn hefjist á sérhljóði viðskeytis, beygingarendingar eða greinis.
Síðari hlutinn má þó ekki vera aðeins einn stafur og á sú regla einnig við þegar slík orð eru
fyrri liður i samsetningum.
(Skiptingarnar *karf-a, 'körf-ubolti, 'rek-a, 'rek-istefna o.s.frv. eru því óheimilar.)
borðdúk- borð- bún- dýraverndunarfé- dýraverndunar-
ur dúkur aður lag félag
dýraverndun- dýravernd- dýra- gatna-
arfélag unarfélag verndunarfélag mót
manns- sannleik- sann- skipan- skip-
ins ur leikur anna ananna
skip-
un
skip-
ana
strák-
lingur
Ýmsum tökuorðum má þó skipta þannig að síðari hlutinn heljist á samhljóða.
abba- apó- kakka- krókó-
dís tek lakki díll
XIV. STRIK
Strik má nota til að afmarka ýmis innskot eða viðauka. Ræður stíll og merking hvort valin eru
strik fremur en kommur eða svigar í hverju tilviki. Ávallt er haft bil framan og aftan við strik.
Á íslandi - og hvergi nema á íslandi - er þetta náttúrufyrirbæri að finna.
Mér líkaði vel við hann - oftast.
XV. PUNKTUR
Punktur er settur á eftir málsgreinum og ígildum þeirra nema þar komi komma, semikomma,
spurningarmerki, tvípunktur, upphrópunarmerki eða úrfellingarpunktar.
Ég geng alltaf í vinnuna.
Réttu mér bollann.
Jón hafði ekki hugmynd um hvort hún hefði komið.
Mörður hét maöur er kallaður var gigja. Hann var sonur Sighvats hins rauða.
Hann bjó á Velli á Rangárvöllum.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að merkja handklæði og peysur. Einnig húfur.
Fór í vinnuna. Ekkert sérstakt gerðist. Helgi hringdi eftir kvöldmat.