Málfregnir - 01.12.2004, Side 25

Málfregnir - 01.12.2004, Side 25
Bandstrik má nota í ýmsum lýsingarorðum sem eru samsett af tveimur eða fleiri liðum. þýsk-franskur • grísk-katólskur • dansk-norsk-sænskur 85 86 87 88 89 Bandstrik má nota i samtengdum fyrirtækjaheitum. Landflutningar-Samskip • Sjóvá-Almennar Bandstrik má nota milli tölustafa þegar svo ber undir. Ég verð erlendis í 3-4 ár. Hún var formaður 1978-1983. Námskeiðið verður haldið dagana 3.-6. júlí. Bandstrik er stundum notað í stað orðliða i orðasamböndum til að komast hjá endurtekningu. I tösku- og hanskaframleiðsla • töskuframleiðsla og -sala • framsóknar-/sjálfstæðismenn Bandstrik er notað í samsettum og afleiddum orðum þar sem fyrri liðir eru tölur, tákn eða skammstafanir af einhverju tagi. a-liður • fob-verð • 13-menningarnir • KFUM-maður • 1,5%-reglan • x-ás • KR-ingur • BA-próf • OECD-skýrslan • B-hluti • B-hlutastofnun • 68-kynslóðin • í n-ta veldi Mælt er með þvi að nota bandstrik í samsettum orðum þar sem erlent sérnafn er fyrri liður ef ritháttur þess samræmist ekki ritvenju í íslenskum orðum. Bernoulli-lögmál • Boeing-þota • Chicago-búar • Gaza-svæðiö • Mitsubishi-umboðið • Nairobi-samkomulag • Washington-fundurinn Athuga til samanburðar: Góbíeyðimörkin • Rómarsáttmáli • Jerúsalemsamkomulag • Kaírófundurinn • Ríóferlið Ef fyrri liður í samsetningu er erlent heiti (eða skammstöfun) í tveimur eða fleiri orðum er síðari hluti samsetningarinnar tengdur við fyrri hlutann með bandstriki. fyrri liður samsetning Boeing 747 Boeing 747-flugvél Jan Mayen Jan Mayen-svæðið New York New York-ríki New York New York-búar Tel Avív Tel Avív-háskóli Rocky IV Rocky IV-myndin Hong Kong Hong Kong-menn dr. phil. dr. phil.-ritgerð cand. mag. cand. mag.-próf Hatton-Rockall Hatton-Rockall-svæðið F-15 F-15-þota Heimilt er að nota bandstrik til að tengja forliðina all-, hálf-, jafn- og lang- við næsta orðlið. all-óhugnanlegur jafn-áferðarfallegur hálf-utan við sig lang-frambærilegastur 25

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.