Málfregnir - 01.12.2004, Blaðsíða 23
í stað orðasambandanna alls staðar, sums staðarer heimilt að rita atstaðar, sumstaðaren
fremur er mælt með rithætti í tveimur orðum.
alls staðar alstaðar
sums staðar sumstaðar
Athuga orðasambönd með fornöfnum:
hvor tveggja annar hvor
hvortveggi annar hver
hvorutveggja annartveggja
Þangað fór önnur hvor systranna, Jóna eða Linda.
Þangað fór annað hvort barnanna, Sigga eða Jón.
77
78
Orðið annaðhvort er ritað í einu lagi sem hluti samtengingarinnar annaðhvort... eða.
Þangaö fór annaðhvort Jóna eða Linda.
Orðið megin er ritað áfast undanfarandi nafnorði ef nafnorðið er samnafn án greinis.
aðaidyramegin • bakborðsmegin • bakdyramegin • bílstjóramegin • brekkumegin • farþega-
megin • gjaldamegin • hlémegin • sjávarmegin • sólarmegin
Annars er orðið megin ritað laust frá undanfarandi orði.
austan megin • barnanna megin • beggja megin • Gunnars megin • hans megin • hennar
megin • hérna megin • hægra megin • Jóns Sigurðssonar megin • mannsins megin • mín
megin • norðan megin • okkar megin • réttum megin • sín megin • stjórnarinnar megin •
Suðurgötu megin • sunnan megin • vestan megin • vinstra megin • ykkar megin • þarna
megin • þeim megin • þeirra megin • þín megin • Þýskalands megin
Ef næst framan við megin er fornafn með -um er heimilt að slá orðunum saman þrátt fyrir
fyrrnefnda reglu.
báðum megin báðumegin
hinum megin hinumegin
hvorugum megin hvorugumegin
hvorum megin hvorumegin
sömum megin sömumegin
öðrum hvorum megin öðruhvorumegin
öðrum megin öðrumegin
Valfrjálst er hvort orð eða orðasamband með fyrri lið í þágufalli, á borð við vitiborinn, eru rituð
í einu eða tveimur orðum.
tjöðrum fenginn fjöðrumfenginn
goðum likur goðumlíkur
sigri hrósandi sigrihrósandi
viti borinn vitiborinn
Þegar valið er milli ritháttarins viti borinn o.s.frv. og vitiborinn o.s.frv. er mælt með því að
áhersla fái að ráða; sé skýr áhersla á síðari lið er mælt með rithætti í tveimur orðum.
23