Málfregnir - 01.12.2004, Blaðsíða 38

Málfregnir - 01.12.2004, Blaðsíða 38
ARI PÁLL KRISTINSSON Um ritreglur og Stafsetningarorðabók í íslenskri málstöð er um þessar mundir unnið af kappi að gerð Stafsetningarorðabókar. Stefnt er að útgáfu í mars 2006. Bókin er samin í umboði Islenskrar málnefndar og skv. 5. tölul. 2. gr. laga nr. 2/1990, um íslenska málnefnd. I bókinni verða m.a. ritreglur þær sem hér á undan eru birtar í íyrsta sinn á prenti. Þær eru byggðar á gildandi auglýs- ingum menntamálaráðuneytis um stafsetn- ingu og greinarmerkjasetningu. Ritreglumar er einnig að finna á vef Islenskrar málstöðvar á Netinu, www.islenskan.is. Stafsetningarorðabók Allt ffá útgáfu Réttritunarorðabókar handa grunnskólum (1989), ritstj. Baldur Jónsson, hefúr Islensk málnefnd stefnt að útgáfu enn stærri stafsetningarorðabókar. Réttritunarorðabók Baldurs Jónssonar var geysilega vel heppnað verk sem nýst hefúr i öllu samfélaginu enda þótt titillinn beri með sér að grunnskólanemendur hafi verið sá notendahópur sem einkum var hafður í huga við gerð bókarinnar. Eigi að síður má ljóst vera að þörf er á mun umfangsmeiri staf- setningarorðabók hér á landi eins og tíðkast hefur að gefa út í nágrannalöndunum. Baldur Jónsson vann að undirbúningi stærri stafsetningarorðabókar einkum á árunum 1996-1999 eða uns hann lét af störf- um í íslenskri málstöð fýrir aldurs sakir. Á stjórnarfúndi Islenskrar málnefndar 11. desember 2001 var ályktað að útgáfa Stafsetningarorðabókar yrði meðal helstu forgangsverkefna málnefndar og málstöðv- ar á næstu árum. I ljósi undirbúningsskýrslu eftir Dóru Hafsteinsdóttur, starfsmann íslenskrar málstöðvar, dags. 8. nóvember 2001, og með hliðsjón af skýrslum eftir Baldur Jónsson, dags. 29. desember 1998 og 10. september 1999, var samþykkt að beina því til íslenskrar málstöðvar að hún semdi tillögur að áætlun um verkstjóm, rit- stjórnartilhögun og fjárhagsáætlun og legði fyrir endurnýjaða málnefnd eða stjórn henn- ar árið 2002. Miðað yrði við að öll verk- stjórn yrði á vegum málstöðvarinnar og að þar hefði Dóra Hafsteinsdóttir forsögn. Á stjórnarfúndi nýskipaðrar íslenskrar málnefndar 12. mars 2002 var kynnt minn- isblað eftir forstöðumann Islenskrar mál- stöðvar og Dóru Hafsteinsdóttur með áætl- un um verkstjóm, ritstjómartilhögun og íjárhagsáætlun um Stafsetningarorðabók. Þar kom fram markmið, tími, mannafli og efnisöflun og var gert ráð fyrir að verkið hæfist þegar í þeim mánuði og útgáfa á bók og á Netinu yrði orðin að veruleika í síðasta lagi í mars 2006. Dóra Hafsteinsdóttir yrði ritstjóri. Þörf væri á aðkeyptri tölvuþjónustu til að leggja síðustu hönd á sérhannað forrit fyrir bókina. Stjóm Islenskrar málnefndar féllst á ofan- greinda áætlun og hefúr því síðan verið unnið að bókinni í samræmi við hana. I stefnuskrá íslenskrar málnefndar 2002-2005, sem gengið var ffá 16. nóvember 2002, var enn fremur áréttað að útgáfa Stafsetningarorðabókar væri forgangsverkefni á tímabilinu. Stjóm íslenskrar málnefhdar myndar ráðgefandi ritnefnd og fær handrit til yfirlestrar fyrir útgáfú. Stjórn Islenskrar málnefndar áréttaði á fúndinum 12. mars 2002 að um yrði að ræða stafsetningarorðabók og því ætti ekki að þurfa að birta þar ýmis misjafúlega aðlöguð erlend orð o.þ.h. sem bundin væru óformlegu talmáli. Stjórnin var einhuga um að leggja skyldi áherslu á leiðbeiningar um vandaða beygingu í bókinni. Ritreglur Þegar Baldur Jónsson lét af störfum var hann 38

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.