Bændablaðið - 06.03.2014, Qupperneq 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014
Lesendabás
Þjóðin vill halda sínum landbúnaði
Evrópusambandið býður
umsóknarríki aðeins tímabundna
aðlögun að lögum og regluverki
sambandsins. Sumir kalla það
sérlausnir. Umsóknarríkið
sækir um á forsendum ESB og
heitir því að gangast undir og
samþykkja sáttmála, vinnureglur
og lagaverk Evrópusambandsins.
– „Að umsóknarríkið geti og vilji
samþykkja og innleiða regluverk
ESB og grundvallarmarkmið
sambandsins í stjórnmálum og
efnahagsmálum“.
Í kjölfar umsókna Austur-
Evrópuríkjanna var hert mjög á
skilyrðum í aðildarvinnunni og í
ferlinu:
„...nú urðu ríkin m.a. að
aðlaga stjórnsýslu sína til að
tryggja innleiðingu á réttarreglum
bandalagsins“.
Þær breytingar á aðildarferlinu
sem urðu með umsókn Mið- og
Austur- Evrópuríkjanna gáfu
Evrópusambandinu yfirhöndina
í aðildarviðræðum. Ríkjunum er
ekki eigöngu gert að samþykkja
löggjöf sambandsins á fyrstu stigum
„...heldur einnig að laga sig að
stefnu sambandsins og hrinda
löggjöf þess í framkvæmd fyrir
gerð aðildasamnings og gildistöku
hans“. (Úr skýrslu Hagfrst.)
Til þess að framfylgja
þessari breyttu stefnu sinni tók
Evrópusambandið sér einhliða vald
til að setja opnunar og lokunarskilyrði
á hvern samningskafla. Þetta hafði
m.a. í för með sér að væru þessi
opnunarskilyrði ekki uppfyllt við lok
rýnivinnu í upphafi samninga getur
Evrópusambandið einhliða neitað
að opna á viðræður um kaflann.
Þessu var m.a. beitt á Íslendinga í
landbúnaðar og dreifbýlisköflunum.
Ábyrgð og skylda fagráðherrans
Rétt er að benda á að hver fagráðherra
fer með samninga og ber efnislega
ábyrgð á málaflokkum sem heyra
undir hans ráðuneyti í samræmi við
samþykktir Alþingis.
Ég sem landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra bar því efnislega
ábyrgð á samningunum gagnvart
Alþingi og framvindu þeirrar vinnu.
Lagaumgjörðin um atvinnugreinar í
landbúnaði eru því með gjörólíkum
hætti á Íslandi annarsvegar og
ESB - löndum hinsvegar. Um
það var enginn ágreiningur milli
Íslands og ESB. Á Íslandi leggjum
við áherslu á fæðuöryggi og
framleiðslustöðugleika, byggðamál
og innlendan matvælaiðnað í
einstaka greinum.
ESB opinberar kröfur sínar
um aðlögun
Í lok rýnivinnunnar um landbúnað
sem lauk í janúar 2011 setti
samninganefnd ESB fram skriflega
kröfu og fyrirspurn um:
„Hvenær og hvernig ætlar Ísland að
aðlaga sinn lagaramma hvað varðar
lögbært stjórnvald, forsendur
faggildingar, stofnun greiðslustofu,
tilnefningu vottunaraðila?"
Þetta eru allt grunnatriði í
skipulagi landbúnaðarmála í ESB-
löndum. Ég sem ráðherra svaraði
þessari fyrirspurn og kröfu á
eftirfarandi hátt:
Stefna íslenskra stjórnvalda
er skýr um að ekki verði ráðist í
neina aðlögun að regluverki ESB
fyrr en að staðfestur samningur um
aðild liggur fyrir. Auk þess er það
álit stjórnvalda að vegna smæðar
landsins sé óþarft að setja á fót allt
það stofnanakerfi á Íslandi ef til
aðildar kæmi, sem kynnt hefur verið
sem nauðsynlegt til að framkvæma
hina almennu landbúnaðarstefnu
Evrópusambandsins. Um það
þurfi að semja milli aðila þegar að
samningum kemur.
Af áðurnefndum ástæðum mun
Ísland ekki hefja undirbúning að
skipulags-og lagabreytingum né
aðlaga sinn lagaramma fyrr en
að lokinni samningagerð, takist
samningar um aðild og fullgildingu
aðildarsamnings að lokinni
þjóðaratkvæðgreiðslu á Íslandi og
samþykkt hans af samningsaðilum
á formlegan hátt ".
Þessi yfirlýsing, sem var í algjöru
samræmi við fyrirvara Alþingis,
fylgdi með af ráðuneytisins hálfu við
lokaskil rýniskýrslunnar í ársbyrjun
2011 og þykir mér rétt að hún sé birt
hér.
ESB neitar að opna á viðræður
um landbúnað
Þetta skýra og skorinorða svar mitt og
höfnun á kröfu Evrópusambandsins
um fyrirfram aðlögun varð til
þess að framkvæmdastjórnin setti
opnunarskilyrði á samningskaflann
í nóv. 2011 og neitaði að hefja
viðræður fyrr en lögð hefði verið
fram „viðunandi" aðgerðaráætlun
um breytingar á íslenskum lögum
og uppbyggingu nýs stofnanakerfis
sem væri í samræmi við það sem gilti
í ESB - löndum.
Ég hafði áður gert „varnarlínur"
Bændasamtaka Íslands að
grunnskilyrðum mínum sem
ráðherra í samningaviðræðunum. Eru
þær einnig viðmið í greinargerð
utanríkismálanefndar með þings-
ályktunartillögunni. Hafði ég tilkynnt
Bændasamtökunum það skriflega.
En á þeim forsendum sem ég kynnti
höfðu Bændasamtökin tekið þátt í
vinnunni við landbúnaðarkaflann.
Samningamenn þeirra héldu síðan
fast í þær forsendur enda voru þær
í samræmi við þá fyrirvara, eða
„rauðu strik“ Alþingis.
Umsóknarferlið í landbúnaði varð
stopp í nóvember 2011
Umbylting á markmiðum, grunngerð
og stjórnsýslu íslensks landbúnaðar
er stórpólitískt mál og um það var
grundvallar ágreiningur við ESB.
Óljós tilvitnun í töluð orð og loðinn
texta embættismanna ESB er að mínu
mati ekki mikils virði. Mín reynsla
sem ráðherra var sú að hafa bæri allt
skriflegt og skorinort sem þar færi á
milli ef ætti að vera mark takandi á.
Ferli þessarar umsóknar sem
send var ásamt fyrirvörum Alþingis
er efnislega og pólitískt algjörlega
stopp af beggja hálfu og getur ekki
farið óbreytt af stað aftur. Þessa
umsókn á því að afturkalla formlega.
Jón Bjarnason
fyrrverandi sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Jón Bjarnason.
Umsóknarríkið sækir um á forsendum ESB og heitir því að gangast undir og samþykkja sáttmála, vinnureglur og
lagaverk Evrópusambandsins. Evrópusambandið býður umsóknarríki aðeins tímabundna aðlögun að lögum og
regluverki sambandsins.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
auglýsir starf garðyrkjuráðunautar
Garðyrkjuráðunautur mun veita alhliða og markvissa
ráðgjöf í garðyrkju og ylrækt með það að markmiði að
stuðla að aukinni framleiðni, hagkvæmni og eflingu
þessarar mikilvægu greinar landbúnaðarins.
Ábyrgðarsvið
• Markviss fagráðgjöf og þróunarstarf fyrir framleiðendur í ylrækt og
garðyrkju.
• Uppbygging ráðgjafar á sviði garðyrkju
• Þverfaglegt samstarf við ráðunauta á öðrum fagsviðum RML.
• Hugmyndavinna, nýjungar og mat á viðskiptahugmyndum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í garðyrkju/búvísindum/líffræði og þekking í
rekstrarfræðum.
• Reynsla úr garðyrkju og þekking á starfsumhverfi greinarinnar.
• Reynsla og þekking á ráðgjafarstörfum.
• Metnaður, frumkvæði og leiðtogahæfileikar.
• Samviskusemi, skipulögð vinnubrögð og góð hæfni í mannlegum
samskiptum.
Áhugasömum er bent á að sækja um á heimasíðu RML, ekki seinna en
15. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur Berglind Ósk Óðinsdóttir starfsmannastjóri
RML boo@rml.is
RML áskilur sér rétt til að velja hvern sem er úr hópi umsækjenda eða
hafna öllum umsóknum sem berast.
Heima er best
fasteignir!
Einstakt tækifæri,
Norðurtún 7, 225 Garðabær
Flott hús, mögnuð staðsetning,
gróið og fjölskylduvænt hverfi.
Verð: 48.300.000,-
Viltu lækkun?: 1.000.000,-
Eigum við að ræða þetta?:
Lækkun 500.000,-
Ok, lækkun um 300.000,-
Samtals lækkun: 46.500.000,-
Þú ert harður viðsemjandi, ók gef eftir,
það fylgir verkpakki upp á 3.000.000
(húsið heilmálað ofl.)
Uppl. í síma 544-2200