Bændablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. ágúst 2014
Fréttir
Rússar hafa bannað innflutning
á kjöti, fiski, ávöxtum, grænmeti,
mjólk og mjólkurafurðum frá
löndum Evrópusambandsins,
Bandaríkjunum, Kanada,
Ástralíu og Noregi í eitt ár.
Ísland er ekki á bannlista Rússa.
Með innflutningsbanninu eru
Rússar að sýna tennurnar og
ögra Evrópusambandinu, Banda-
ríkjunum og fleiri vest rænum
ríkjum vegna afskipta þeirra af
framgöngu Rússa í Úkraínu.
Fyrir skömmu var dóttur-
fyrirtæki Aeoroflot bannað að
fljúga yfir Evrópu sem hluti af refsi-
aðgerðum Evrópusambandsins
vegna stuðnings Rússa við
uppreisnarmenn í Úkraínu.
Rússnesk yfirvöld íhuga að banna
flug evrópskra flugfélaga til Asíu
yfir lofthelgi Rússlands.
Miklir hagsmunir í húfi
fyrir ríki ESB
Landbúnaðarráðherra Rússlands
segir að í stað þess að flytja inn
matvæli frá ofangreindum löndum
verði meðal annars flutt inn meira
af matvælum frá löndum eins og
Brasilíu og Nýja-Sjálandi.
Bannið mun hafa gríðarleg
áhrif á útflutning matvæla frá
löndum Evrópusambandsins
en minn áhrif Bandaríkjunum.
Útflutningsverðmæti ESB-landa til
Rússland nam á síðasta ári um 11,8
milljörðum evra sem jafngildir
um 1832 milljörðum íslenskra
króna. Útflutningsverðmæti frá
Bandaríkjunum eru mun lægri
eða 1,3 milljarðar Bandaríkjadala
eða um 150 milljarðar íslenskar
krónur.
Árið 2013 fluttu Danir land-
búnaðar vörur til Rússlands fyrir
rúmlega 4,3 milljarða danskra
króna, eða um 90 milljarða
íslenskra. Norðmenn, sem einnig
eru á bannlistanum selja um10%
af fiskútflutningi sínum til
Rússlands.
Þessa má geta að barnamatur
og gæludýrafóður eru undanskilin
banninu.
Mikilvægt að halda
viðskiptatengslum við Rússa
Ágúst Andrésson forstöðumaður
kjötafurðasviðs Kaupfélags
Skagfirðinga, segir mikilvægt að
átta sig á því strax að Ísland sé ekki
á lista Rússa yfir lönd sem bannað sé
að flytja inn matvæli frá og gríðarlega
mikilvægt sé að við höldum okkur
utan við þann lista. „Okkar áætlanir
gera ráð fyrir að Rússlandsmarkaður
sé að taka milli 600 og 800 hundruð
tonn af íslensku kjöti á ári og því er
um mikilvægan markað að ræða. Að
mínu mati er því nauðsynlegt fyrir
okkur að halda góðum samskiptum
við Rússa og ekki láta þessar deilur
skaða viðskiptamöguleika okkar við
þá.“
Að sögn Ágústs hefur hann verið
í samskiptum við viðskiptavini
Kaupfélags Skagfirðinga í Rússlandi
frá því að viðskiptabannið var sett á.
„Okkar á milli ríkir skilningur um að
Ísland sé ekki á listanum og viðskiptin
eiga því að geta haldið áfram eins
og áður.“
Aukinn áhugi á íslenskum
búvörum
Ágúst segist hafa orðið var við
aukinn áhuga Rússa á íslenskum
landbúnaðarvörum undanfarið.
„Innflutningsbannið var ekki ákveðið
á einni nóttu og það hefur smám saman
verið að taka gildi. Samhliða því hefur
áhugi Rússa á landbúnaðarvörum frá
Íslandi verið að aukast og eftirspurnin
er gríðarleg í dag.“
Kaupa talsvert af íslensku kjöti
Erlendur Garðarsson markaðs-
fræðingur hefur flutt út kjöt til
Rússlands í mörg ár og þekkir því til
matvælamarkaðarins þar. „Ísland er
ekki hluti af þessu banni og vonandi
lendum við ekki á þeim lista enda
engin ástæða til.
Samskipti Íslands og Rússlands
eru mjög góð og hafa farið batnandi
síðustu ár. Rússar kaupa mikið ær-,
dilka- og hrossakjöt auk fisks frá
Íslandi og markaðurinn þar er einn
sá stærsti fyrir íslenskt kjöt. Rússland
er því mjög góð viðskiptaþjóð fyrir
Ísland.“
Sama verð og í Bandaríkjunum
Útflutningur á dilkakjöti frá
Íslandi til Rússlands hefur aukist
mikið undanfarin ár og að sögn
Erlends fæst sama verð fyrir það
og í Bandaríkjunum. „Millistéttin í
Rússlandi fer ört vaxandi og hún gerir
auknar kröfur um góðan mat.“
Erlendur segir óvíst hvort
innflutningsbannið núna muni auka
sölu á landbúnaðarvörum og fiski
til Rússlands á meðan á því stendur
en slíkt sé þó ekki ólíklegt. „Þrátt
fyrir að magnið af matvælum sem
við flytjum til Rússlands sé stórt á
okkar mælikvarða vegur það ekki
stórt í heildarinnflutningi Rússa á
matvælum.“
Vonandi leysist deilan sem fyrst
„Ég vona allra vegna að þetta mál
leysist sem allra fyrst því að staðan
eins og hún er nú er ekki neinum til
góðs. Innflutningsbann á matvælum
frá ESB til Rússlands er verulegt
áfall fyrir löndin sem tilheyra
Evrópusambandinu og Rússar vita
alveg hvað þeir eru að gera.“
/VH
Rússar banna innflutning á matvælum frá ESB, Bandaríkjunum og víðar:
Miklir hagsmunir í húfi fyrir matvæla-
framleiðendur víða um heim
Mynd / smh
Kartöfluvöxtur góður á Hornafirði þrátt fyrir votviðri:
Uppskeran lofar góðu og lítið
um skemmdir vegna bleytu
Þrátt fyrir óvenju votviðrasamt
sumar byrjuðu bændur í Nesjum
að taka upp kartöflur snemma í
júlí. Uppskeran lofar góðu og lítið
er um skemmdir vegna bleytu.
Seljavallabændur reikna með að
taka allt upp fyrir lok ágúst ef tíð
leyfir.
„Vorið var gott og ekki annað
að sjá en að kartöfluuppskeran á
Hornafirði verði góð,“ segir Hjalti
Egilsson, bóndi á Seljavöllum í
Nesjum. „Ég setti fyrstu kartöflurnar
niður 9. apríl, sem er óvenju snemmt,
og hef verið að taka upp frá því
snemma í júlí og senda á markað í
Reykjavík.“
Lítið um skemmdir vegna bleytu
„Fyrstu kartöflurnar sem ég tók upp
voru premier en svo fylgdu gullauga
og rauðar fljótlega á eftir. Júlí var
reyndar óvenju votviðrasamur en við
höfum sem betur fer að mestu sloppið
við skemmdir vegna bleytunnar þrátt
fyrir að hún hafi gert okkur erfitt
fyrir fyrstu dagana í júlí. Við fluttum
okkur því yfir í þurrari garða og
gátum þannig þjónað markaðinum
að mestu leyti.“
Góðar horfur
Hjalti segist kartöflurnar það góðar
að hann sé þegar farinn að taka þær
upp til geymslu. „Í fljótu bragði
mundi ég áætla að við værum búnir
að taka upp um 60 tonn af kartöflum.
Ég er þó viss um að við hefðum getað
verið búnir að taka upp meira ef tíðin
hefði verið betri.“
Að sögn Hjalta ræktar hann
kartöflur á um það bil 22 hekturum
og þar af eru fimm undir plasti.
Rófur vaxa vel á Hornafirði
„Auk kartaflna ræktum við svolítið
af rófum, sem við gætum örugglega
gert meira af því að uppskeran er
yfirleitt mjög góð. Hér er aftur á móti
lítið um annars konar grænmeti og þá
er það einungis til heimabrúks,“ segir
Hjalti Egilsson bóndi á Seljavöllum.
/VH
Góð berjaspretta fyrir norðan
og austan en lakari á Vesturlandi
Berjaspretta er mjög góð á
Norður- og Austurlandi en
minni á Vesturlandi, að sögn
Sveins R. Haukssonar, læknis
og áhugamanns um ber og
berjatínslu.
„Berjatínsla er raunar hafin bæði
fyrir norðan og austan og á það við
um allar venjulegar tegundir sem
flestir eru að sækjast eftir, eins og
aðalbláber, bláber og krækiber.“
Þrátt fyrir að sprettan sé lakari á
Vesturlandi en fyrir norðan og austan
er samt víða ber að fá í nágrenni við
höfuðborgina, eins og í Esjunni, í
fjallendi uppi af Hvalfirði, í Svínadal
og á Draghálsi. Ég ráðlegg fólki á
Vesturlandi að bíða þar til um næstu
mánaðamót með að fara í berjamó
langi það að tína eitthvað að gagni.“
Sveinn segir að sólarleysið
á Vesturlandi í sumar sé helsta
ástæðan fyrir lakri berjasprettu í ár.
„Berjaspretta fyrir sunnan og vestan
var líka fremur léleg á síðasta ári. Maí
á þessu ári var reyndar mjög góður og
það er líklega helsta ástæða þess að
þar vaxa á annað borð ber í ár. Þeim
sem langar virkilega að komast í góð
ber er því ráðlegast að fara austur eða
norður og tína þar með öðrum sem
tilheyra berjatínsluhreyfingunni.“
/VH
Fyrstu verðskrár birtar
Vætutíð dregur úr uppskeru útiræktaðs grænmetis á Flúðum:
Grænkál kemur best út en verri
horfur eru með geymsluhvítkál
Sólarleysi og rigningar það sem af
er sumri gera það að verkum að
jarðvegur er víða kaldur og erfiður
í vinnslu. Uppskera útigrænmetis
er með minna móti á Flúðum
enda garðar sums staðar vatnsósa.
Áframhaldið ræðst af tíðinni næstu
vikur.
„Við erum eingöngu með útiræktað
grænmeti og sumarið er búið að vera
ansi blautt það sem af er og útlitið með
margar tegundir mætti vera betra,“
segir Sigrún Hrafnhildur Pálsdóttir,
grænmetisbóndi á Flúðum.
Gengur best í sendnum jarðvegi
„Grænkál og sumarhvítkál er að koma
best út og rauðkálið sleppur líklega
fyrir horn en annað vex verr. Verst
líst mér á horfurnar með blómkál
og geymsluhvítkálið.“ Sigrún segir
ástandið svipað hjá öðrum ræktendum
á sínu svæði en þó misjafnt eftir
jarðveginum sem ræktað er í. „Vætan
hefur minni áhrif hjá þeim sem rækta
í sendnum jarðvegi en meiri hjá þeim
sem eru í mýrlendi eins og ég.“
Sigrún ræktar grænmeti á um
það bil tíu hekturum og mest af
því er hvítkál sem hún setur í
kæligeymslu eftir uppskeru og selur
yfir vetrartímann. „Ég rækta talsvert
af rauðkáli, spergilkáli, kínakáli,
blómkáli og grænkáli þannig að þetta
er svona bland í poka.
Ég á von á talsverðum afföllum
af geymsluhvítkáli en á eftir að sjá
hvað það verður mikið þegar upp er
staðið enda seinsprottnara afbrigði
en sumarhvítkálið.“
Vantar sól
Sigrún segir að júlí hafi verið
einstakleg blautur í ár og uppskeran
minni en á sama tíma í fyrra.
„Lofthiti í ár er hærri en í fyrra en
sólskinsstundir færi og sólarleysið
er greinlega að draga úr vexti. Við
plöntuðum út upp úr miðjum maí
og aðeins farinn að taka grænkál,
sumarhvítkál, kína- og spergilkál og
núna allra síðast blómkál.“
Garðar víða á floti
„Ég á ekki von á öðru en að
uppskeran bjargist að einhverju
leiti ef það fer að þorna en garðarnir
eru nánast á floti víða og plönturnar
hreinlega að drukkna á köflum.
Jarðvegurinn er kaldur í vætutíð og
það dregur úr vexti en arfinn dafnar
aftur á móti vel.
Við verðum bara að sjá hvað gerist
á næstu vikum og vona að það rigni
minna. Bleytan gerir alla vinnu við
uppskeruna erfiðar, maður sekkur
í hverju skrefi og traktorinn kemst
varla áfram,“ segir Sigrún að lokum.
/VH
Sauðfjárslátrun hófst hjá
sláturhúsi KVH á Hvammstanga
síðastliðinn mánudag. Á sjöunda
hundrað fjár var þá slátrað
til að útvega kjöt í sendingar
til Whole Foods-verslananna í
Bandaríkjunum. Áfram verður
slátrað næstu tvo mánudaga á
Hvammstanga en regluleg slátrun
hefst þar í fyrstu viku september.
Þá gaf SKVH út verðskrá í gær
fyrir slátrun haustsins. Fljótt á litið
virðist verðskráin vera lítið breytt
frá fyrra ári að viðbættri þeirri 15
króna uppbót á kíló sem SKVH
og KS greiddu út fyrr á þessu ári.
Verðskráin mun einnig gilda fyrir
KS, en þar hefst slátrun í fyrstu viku
september.
Aðrir sláturleyfishafar hafa
ekki gefið út verðskrár en búast
má við þeim öllum um eða eftir
helgi. Í samtölum við forsvarsmenn
sláturleyfishafa kemur fram að
reikna má með því að verðskrár
verði á svipuðu róli og sú sem
SKVH kynnti í gær. Flestir hinna
sláturleyfishafanna munu hefja
slátrun strax upp úr mánaðamótum,
utan SS sem hyggst slátra 20. ágúst,
27. ágúst, 3. og 4. september og
hefja svo reglulega slátrun 10.
september.
/fr