Frjáls Palestína - 01.06.2007, Page 11
FRJÁLS PALESTÍNA 11
Egill Bjarnason dvaldi í Palestínu frá september til desember 2006
og tók meðal annars þátt í mótmælum
heimamanna gegn hernáminu og Múrn-
um, aðstoðaði við ólífutínslu og vann
ýmis önnur störf í sjálfboðavinnu. Í
desember bárust þær fréttir að hann
hefði verið tekinn fastur af ísraelskum
hermönnum á vegatálma við Nablus,
sem heitir Huwwara. Hann var í varðhaldi
og yfirheyrslum í fimm klukkustundir
á landtökubyggð þar skammt frá. Þeg-
ar fréttir bárust af honum var hann
æðru laus – þótt hann hefði ekki verið
meðhöndlaður af sanngirni, þá væru það
fyrst og fremst Palestínumennirnir sem
athyglin ætti að beinast að.
Egill
handtekinn
Ortrud Gessler Guðnason hefur ver ið í Palestínu síðan í vor, og unnið mest
með Alþjóðlegu samstöðuhreyfingunni
(ISM). Í byrjun maí veittust börn ísra-
elskra landtökumanna að henni og
fleiri aktívistum í Hebron. Það var
laugardagur og þar sem vinna og skóli
lágu niðri og landtökumennirnir keyra
ekki bíl af trúarlegum ástæðum, verja
þeir tíma sínum í staðinn í að gera
Palestínumönnum lífið leitt. Krakkarnir
köstuðu rotnum ávöxtum í aktívistana,
og bálreiddust þegar þau tóku atvikið
upp á myndband. Þeim var vörnuð
för af landtökuunglingum sem tepptu
gönguleið. Eftir að hafa fengið ísraelska
hermenn til að stugga við unglingunum,
ákváðu þau að vakta gönguleiðina.
Viti menn, kennari í trúarlegum skóla
landtökumanna ákvað að halda kennslu-
stund í þröngu sundinu.
Palestínsk kona þurfti að komast
leiðar sinnar og aktívistarnir aðstoðuðu
hana við að komast í gegn um hóp
hálfstálpaðra nemenda trúarkennarans.
Allt var tekið upp á myndband – og
nemendurnir fokreiddust þegar þeir sáu
það. „Engar myndir, engar myndir,“ æptu
þau – útlendingarnir létu myndavélina
síga. Það hefðu þeir ekki átt að gera,
því þá réðust ungmennin á þá. Ortrud
og félögum hennar var hrint, sparkað í
fæturna á þeim og einn félagi hennar fékk
Ráðist á
Ortrud
Guðnason
spark í magann. Fullorðnir landtökumenn
hindruðu að hægt væri að festa árásina
á filmu – en aftur kom hjálpin úr sömu
óvæntu áttinni og fyrr, frá ísraelskum
hermanni sem gekk á milli. Eftirmál urðu
engin fyrir landtökukrakkana.
Enn komst Ortrud í hann krappan um
miðjan maí. 16–18 ára óknyttaungmenni
úr landtökubyggð í Hebron réðust á hana
og fleiri ISM-liða með höggum, spörkum
og grjótkasti. Félagi hennar, Grikki,
fékk hnullung í höfuðið og heilahristing.
Ortrud fékk sjálf spark í kviðinn, ljótan
marblett, en slapp sennilega við innvortis
blæðingar. Hvað höfðu þau til saka unn-
ið? Jú – þau höfðu reynt að koma í veg
fyrir að þessi hópur ungmenna réðist á
tvo palestínska krakka og einn fullorðinn
Palestínumann. Enn lauk „viðureigninni“
með því að ísraelskir hermenn komu,
skökkuðu leikinn og komu útlendingunum
undan. Ísraelarnir veittu þeim samt
ekki fyrstu hjálp – hana fengu þau á
palestínsku sjúkrahúsi sem þau komust
á endanum á við illan leik.
Af íslenskum aktívistum í Palestínu