Frjáls Palestína - 01.06.2007, Blaðsíða 15
FRJÁLS PALESTÍNA 15
forvera sinn hafa tekið ranga ákvörðun
í þessu máli. Það er í áttina og guð láti
þar gott á vita.
Formaður Sjálfstæðisflokks telur sig
í engu þurfa að ræða þetta enda sem
fyrr fullviss um að flokksbræður hans
og kjósendur séu tilbúnir til að fylgja
Pentagon stefnunni í blindni. Þar fer
Geir Haarde villur vegar. Hinn almenni
kjósandi Sjálfstæðisflokksins veit að kalda
stríðinu er lokið þó þingflokkur þessa
sama flokks virðist ekki hafa áttað sig á
því. Ógnin af alheimskommúnismanum
sem var að einhverju leyti raunveruleg
er að baki. Öllum upplýstum almenningi
er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn á óunnið
uppgjör við Írakstríð, Palestínuvandamál
og fleiri ljóta kafla sem lesa má um í
gömlum Morgunblaðsleiðurum dóms-
mála ráðherrans.
Fyrir okkur Framsóknarmönnum er
einnig margt óafgreitt og eitt það stærsta
þar snertir vanda Palestínsku þjóðarinnar.
Því fer fjarri að íslenskir stjórnmálamenn
geti þar fríað sig allri ábyrgð.
Sjálfum er mér þetta hugleikið enda
naut ég gestrisni Palestínumanna fyrir
áratugum þegar ég dvaldi í landi þeirra
um hálfs árs skeið.
Bjarni Harðarson er blaðamaður
og bóksali á Sólbakka á Selfossi, og
nýkjörinn alþingismaður Sunnlendinga.
[Þessi grein birtist upphaflega í
Sunnlenska fréttablaðinu í janúar.]
lokaðar af í flóttamannabúðum frá seinna
stríði. Atvinnulíf er nánast ekkert og
lifibrauðið ölmusa Sameinuðu þjóðanna.
Hin svokölluðu sjálfstjórnarsvæði Pal-
est ínu manna eru litlir skikar inni á milli
landnemabyggða. Þar búa ofstækis-
fullir þjóðernissinnar sem hafa að tóm-
stundagamni að grýta palestínska bænd-
ur í skjóli hersins.
Það er löngu tímabært að íslenska
lýðveldið móti sjálfstæða og raunverulega
utanríkisstefnu í stað þess að dindlast
aftan í úreltum kaldastríðsórum banda-
rískra rebúblikana.
Íslendingar hafa allt frá lýðveldisstofn-
un verið undarlega ábyrgðarlausir í
sinni utanríkispólitík. Dindlast þar aftan
í Bandaríkjamönnum og láta jafnvel
enn eins og kalda stríðið sé í fullum
gangi. Versta birtingamynd þessa var
þegar tveir menn ákváðu að þjóðin væri
þátttakandi í stríði suður í Írak. Formenn
stjórnarflokkanna gerðu þar sitt stærsta
axarskaft en báðir þeir heiðursmenn eru
nú horfnir til annarra starfa.
Af orðum núverandi formanns Fram-
sóknarflokksins má ráða að hann telur
Gegndarlaus kúgun á Palestínu-mönnum er fyrir löngu komin fram
yfir það sem var nokkru sinni stundað í
Suður Afríku enda markmiðið allt annað
en þar nokkurn tíma. Markmið Ísraela er
að útrýma Palestínumönnum.
Það er löngu orðið tímabært að
Ísland slíti stjórnmálasamstarfi við Ísrael
og leiði baráttu Vesturlanda fyrir því
að frelsa þessa litlu þjóð. Ég held að
Íslendingar beri stóra og mikla ábyrgð á
því ófremdarástandi sem er þarna syðra.
Íslenska lýðveldið var einna fyrst í röðinni
að viðurkenna það Ísraelska sem var ef
til vill réttmæt ákvörðun á þeim tíma.
En allar götur síðan hafa Íslendingar
borið blak af ísraelum og þá sjaldan að
mótmælt er óhæfuverkum þeirra er það
gert hjáróma mjög. Í þessu máli sem
mörgum öðrum hafa Íslendingar fylgt
Bandaríkjunum eins og leppríki.
En sú ákvörðun og sagan öll síð-
an leggur ríkar skyldur þjóðarinnar
og íslenskrar utanríkisþjónustu að
standa þétt við hlið Palestínumanna
sem nú eru lokaðir inni í gettóum á
Vest ur bakka Jórdanár. Þéttar en gert
er hefur í utanríkispólitík núverandi
stjórn ar. Meðferð herraþjóðarinnar á
Palestínumönnum er löngu komin langt
yfir það sem Suður Afríkustjórnin leyfði
sér á tímum aðskilnaðarstefnunnar þar í
landi. Enda markmiðið talsvert annað.
Markmiðið með kúguninni á Palestínu-
mönnum er með einum eða öðrum hætti
þjóðarmorð. Kynslóðir hafa þar verið
Eftir
Bjarna
Harðarson
Palestínuvandinn
er á okkar ábyrgð!