Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015
✝ Skúli Þór Jóns-son fæddist í
Melum á Kópaskeri
hinn 21. júlí árið
1941. Hann varð
bráðkvaddur á
Húsavík hinn 24.
júní 2015.
Skúli var sonur
hjónanna Jóns
Árnasonar frá
Bakka og konu
hans Kristjönu Þor-
steinsdóttur frá Litlu-Reykjum í
Reykjahverfi. Skúli Þór var
fimmti í röð sjö systkina. Eldri en
hann eru þau Þorsteinn, Ást-
fríður, Sveininna og Árni (látinn)
og yngri eru þau Hólmfríður og
Hafliði.
Skúli Þór ólst upp í Melum og
bjó nær alla tíð á Kópaskeri.
Hann gekk í barnaskóla á Snart-
arstöðum. Hann fór síðan í Hér-
aðsskólann á Laugum þar sem
sleppu á vorin. Hann hóf ungur
störf á Vélaverkstæði KNÞ á
Kópaskeri og starfaði þar lengi
og eins þótt annar aðili tæki við
rekstri. Skúli Þór keypti verk-
stæðið ásamt tveimur öðrum í lok
síðustu aldar og rak það, Véla-
verkstæðið Röndina, þar til fyrir
stuttu. Fluttu þau Skúli Þór og
Heiðrún til Húsavíkur um svipað
leyti. Skúli Þór var atkvæðamik-
ill í félagsmálum á Kópaskeri og
nærsveitum og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum. Hann var lengi
slökkviliðsstjóri á Kópaskeri og
var fyrsti umsjónarmaður sjúkra-
bílsins, sem kom til Kópaskers ár-
ið 1980. Hann var mjög virkur í
Kiwanisklúbbnum Faxa og
Rauðakrossdeild héraðsins. Var
umboðsmaður fyrir Sjóvá, OLÍS
og happdrætti DAS. Skúli var
formaður sóknarnefndar Snart-
arstaðasóknar á árunum 2009-
2014.
Útför Skúla Þórs fer fram frá
Snartarstaðakirkju í dag, laug-
ardaginn 4. júlí 2015, og hefst at-
höfnin kl. 14.
hann lauk landsprófi
vorið 1959. Ungur að
árum byrjaði hann
að vinna ýmis störf
til lands og sjávar.
Eftirlifandi eig-
inkona Skúla er
Heiðrún Hallgríms-
dóttir frá Sultum í
Kelduhverfi. Þau
gengu í hjónaband á
Snartarstöðum hinn
16. ágúst árið 1964.
Þeim varð tveggja barna auðið: 1)
Jón Skúli, f. 25. maí 1964. Eig-
inkona hans er Sunan Toplod og
eiga þau þrjú börn, Chanee, Loga
og Alex. 2) Anna, f. 8. september
1965, d. 10. október 2013. Eftirlif-
andi eiginmaður Önnu er Jón
Finnbogason frá Fáskrúðsfirði og
eru börn þeirra Finnbogi og Edda
Heiðrún.
Skúli stundaði sjóinn að nokkru
marki lengi vel og reri á grá-
Það var mikið áfall að fregna
andlát tengdaföður míns Skúla
Þórs Jónssonar, allt virtist í
himnalagi þegar kallið kom. Eftir
sitjum við hnípin sem þekktum
þennan öðling og vitum að lífið
verður aldrei eins. Skúla kynntist
ég þegar við Anna dóttir hans vor-
um að draga okkur saman og tóku
þau Heiðrún mér strax ákaflega
vel. Hófust þar kynni sem aldrei
bar skugga á þau 30 ár sem okkur
Önnu auðnaðist að vera saman.
Ótal margar áttu þær eftir að
verða ferðarnar frá Fáskrúðsfirði
norður á Kópasker og alltaf til-
hlökkun að mæta á Skerið til
þeirra hjóna og margt brallað.
Ófáar voru einnig ferðarnar að
Sultum í Kelduhverfi þar sem þau
hjónin áttu sælureit í fögru um-
hverfi. Skúli var án efa besti mað-
ur sem ég hef kynnst að öðrum
ólöstuðum, hafði einstaklega góða
nærveru, örlátur, greiðvikinn og
ráðagóður um alla hluti. Ég held
að öllum sem kynntust honum hafi
líkað vel við hann, bæði börnum og
fullorðnum. Börnum sínum og
barnabörnum reyndist hann ákaf-
lega vel og vildi allt fyrir þau gera.
Í þrautagöngu veikinda dóttur og
dótturdóttur var Skúli kletturinn í
lífi okkar allra, án hans hefði allt
orðið erfiðara.
Aldrei verður þeim hjónum
fullþakkaður sá stuðningur sem
þau sýndu þegar dóttir þeirra lá
banaleguna og hyldýpi sorgar og
örvinglunar blasti við. Að leiðar-
lokum situr eftir þakklæti fyrir að
hafa fengið að kynnast svo góðum
dreng. Hafi hann þökk fyrir allt og
allt. Heiðrúnu, Jóni, Sunan og
barnabörnum færi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Jón Finnbogason.
Það er rétt um mánuður síðan
við hjónin dvöldum í nokkra daga
á Akureyri og höfðum ákveðið að
skreppa til Húsavíkur og heim-
sækja þau hjónin Skúla Þór og
Heiðrúnu og skoða nýju heim-
kynni þeirra. Skúli hafði samband
við okkur og sagði að best væri að
koma á mánudaginn, það væri lítil
sem enginn úrkoma og Víkur-
skarðið nokkuð greiðfært. Hita-
stigið var þannig að öll úrkoma
sem myndi falla yrði slydda eða
jafnvel snjókoma. Það var líka
eins gott, því daginn eftir var
slydduhraglandi á Húsavík.
Við mættum á mánudeginum
og sátum hjá þeim í góðu yfirlæti
þar sem góðgæti var á borðum
eins og ávallt þegar þau voru
heimsótt.
Þau sýndu okkur nýju íbúðina
með stolti og tóku fram að nú
stæði til að mála húsið að utan, svo
var Skúli Þór búinn að ákveða að
byggja pall fyrir framan íbúðina
og sýndi okkur hvernig hann ætl-
aði að hafa hann. Aðspurður hvort
hann væri búinn að jafna sig eftir
síðustu aðgerð og hvort hann væri
ekki stirður eftir að hafa ekki mátt
hreyfa sig svo lengi svaraði hann
því til að hann væri heldur betur
búinn að jafna sig og væri fær í
flestan sjó. Færi reglulega út að
ganga og svo væru næg verkefni
framundan. Í framhaldinu stakk
hann upp á því að við færum í smá-
bíltúr, svona rétt út á nes að skoða
nýja veitingastaðinn sem verið
væri að byggja niðri við sjávar-
mál. Þetta var eins og fyrir nokkr-
um árum, þegar þau bjuggu enn á
Kópaskeri og við vorum hjá þeim í
góðu yfirlæti, „eigum við ekki að
skreppa í smábíltúr“ og þá var far-
ið fyrir Sléttu, Raufarhöfn og svo
farin ný leið, svokölluð Hófa-
skarðsleið, til Þórshafnar, við yrð-
um að skoða hana. Þetta kallaði
hann bara smábíltúr, fyrir utan
allan þann fróðleik sem við feng-
um að njóta. Hann var með betri
leiðsögumönnum. Þegar við
kvöddumst þetta kvöld sagði Skúli
að þetta væri ómögulegt svona,
við yrðum að hittast fljótlega aftur
þegar sumarið og sólin væru kom-
in og gera eitthvað meira. Sum-
arið kom og sólin og þegar hún
hafði náð hámarki og gott betur
berast okkur þær harmafregnir
að Skúli Þór sé látinn.
Það var eins og tíminn stöðv-
aðist og það dimmdi yfir. Það er
erfitt að lýsa þeim tilfinningum
sem brutust fram. Eftir að þær
fjöruðu út komu fram gleðitilfinn-
ingar, gleðin yfir öllum þeim
minningum sem Skúli Þór hafði
skapað í hjörtum okkar og finnst
okkur, sem systur og mági, það
forréttindi að hafa fengið að
ganga með þeim öðlingsmanni
Skúla Þór hans æviskeið og eiga
með honum gleðistundir bæði hér
fyrir sunnan og ekki síst norður á
Kópaskeri. Það hlaut að koma að
því að Skúli og Heiðrún flyttu nær
sínum nánustu og eftir það var
erfitt að ímynda sér Kópasker án
Skúla Þórs, svo sterk voru tengsl
hans við æskustöðvarnar. Þótt
það sé komið að tímamótum og
Skúli Þór hafi skroppið í bíltúr
einn síns liðs er engin ástæða til að
kveðja, því Skúli Þór og allar
minningarnar um hann munu
fylgja okkur það sem eftir er.
Kæra Heiðrún, við viljum votta
þér, fjölskyldu þinni, öllum ætt-
ingjum og vinum okkar dýpstu
samúð. Minningar um yndislegan
mann munu ávallt lifa.
Hólmfríður og Jón H.
„Má ég vera lengur úti,“ spurði
fimm ára drengur ömmu sína í
fyrrasumar, við erum stödd á ætt-
aróðalinu okkar í Sultum, komið
kvöld og tími fyrir litla drengi að
fara í háttinn. „Gerðu það, mað-
urinn sem heitir Skúli er svo
skemmtilegur og góður við mig.“
Já, það var einmitt það, drengur
hafði hitt hann Skúla og hann eins
og allir aðrir sem honum kynnt-
ust, börn og fullorðnir, drógust að
honum. Augu barnsins leiftruðu,
hann er vinur minn. Elsku góði
Skúli, með hlýja brosið sitt og sem
góðvildin streymdi frá, hefur
kvatt okkur allt of snemma. Minn-
ingarnar streyma fram. Heiðrún
systir mín og Skúli krjúpandi við
altarið í Snartarstaðakirkju fyrir
rúmum 50 árum.
Ég var bara átta ára þá og man
ekki betur en hann Skúli hafi allt-
af verið í fjölskyldunni. Alltaf
hægt að leita til hans með allt
stórt og smátt og það gerðum við í
fjölskyldunni óspart, enda öllu
kvabbi tekið með sama hlýja bros-
inu. Samverustundir heima í
sveitinni okkar við að koma hlut-
unum í betra horf eða bara að gera
sér glaðan dag, dansa í hlöðunni,
syngja saman, borða saman, já
borða saman, þá sagði Skúli:
„Þetta er ekki amalegt.“ Nei-
kvæðni var ekki til í hans fari. Það
eru forréttindi að hafa þekkt slík-
an mann. Við hittumst í hinsta
sinn í maí síðastliðnum við mat-
jurtagarðinn heima.
Við hjónin að pota niður ró-
fufræi. Heiðrún og Skúli með ró-
fufræ líka og nokkrar forræktaðar
kartöflur í mjólkurfernum. 23.
júní kom ég aðeins við í Sultum, sá
að hjólhýsið þeirra var komið á
reitinn og gladdist mjög því ég var
viss um að þá myndum við hittast
um næstu helgi. Daginn eftir um
miðjan dag lagði hann Skúli okkar
af stað í gönguferð í dásamlegu
veðri, já sumarið var loksins kom-
ið, þá kom kallið, lokaútkall. Þeir
eru ekki margir sem ná fullorðins-
aldri og fara í gegnum lífið án þess
að vera nokkurn tímann hallmælt,
en þannig tel ég að Skúli minn hafi
skilið við þetta jarðlíf. Virtur og
dáður af öllum. Þau hjón þurftu að
þola það sem enginn á að þurfa að
þola, að fylgja barni sínu til grafar.
Yndisleg dóttir þeirra, Anna, var
jarðsungin frá Snartarstaðakirkju
hinn 19. október 2013, aðeins 48
ára. Það voru þung spor.
Nú verður kletturinn okkar
sem aldrei brást lagður til hinstu
hvílu.
Skúli Þór verður jarðsunginn
frá Snartarstaðakirkju, kirkjunni
sem honum þótti svo óendanlega
vænt um. Þakka þér, kæri mágur,
fyrir hverja stund sem við höfum
átt saman.
Fyrir traustið og hlýjuna. Fyrir
brosin og tárin. Fyrir elskusemi
þína okkur hjónum, dætrum og
barnabörnum til handa.
Elsku Heiðrún mín, nú tínum
við fram allar bestu minningarnar
og yljum okkur við þær. Við
Freyr, Elva, Ása Björg og þeirra
fjölskyldur sendum þér og fjöl-
skyldu þinni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Minning um einstakan mann
lifir.
Friðbjörg Hallgrímsdóttir
(Vava).
Elsku besti frændi minn, Skúli
Þór, er fallinn frá, svo alltof
snemma og alltof snöggt. Fregnir
af fráfalli hans komu sem reiðars-
lag, margar spurningar vakna
sem aldrei verður svarað. Hann er
nú farinn á vit Önnu sinnar sem
lést fyrir tæpum tveimur árum,
langt fyrir aldur fram.
Skúli var einstakur maður, það
vita allir sem hann þekktu. Þvílíkt
ljúfmenni er vart hægt að finna.
Alltaf stutt í hláturinn og glettn-
ina. Skúli var mér einstakur
frændi. Tók mér alltaf opnum
örmum, hafði einstaklega gaman
af að fylgjast með því sem við
Anna brölluðum saman í æsku.
Þegar aðrir fussuðu þá glotti
Skúli. Hann hafði einstakt jafnað-
argeð og var kletturinn sem allir
gátu treyst á. Hann rétti ávallt
hjálparhönd með bros á vör.
Þær voru ófáar ferðirnar sem
ég fór norður bæði sem barn og
síðar með fjölskyldu mína. Við
reyndum ávallt að koma við hjá
Skúla sem opnaði heimili sitt fyrir
okkur, bauð mat og gistingu en
það sem ég sótti umfram allt í var
nándin við þennan einstaka
frænda. Það fylgdi honum svo
mikil gleði og hlýja.
Minningarnar munu lifa um
aldur og ævi og er ég endalaust
þakklát fyrir þær stundir sem ég
fékk með þessum einstaka frænda
mínum. Hans verður sárt saknað,
alla tíð. Ég votta fjölskyldu Skúla
mína dýpstu samúð, hugur minn
er hjá ykkur öllum á þessum erf-
iðu tímum.
Lára.
Skjótt skipast veður í lofti. Ég
fékk áfall þegar ég frétti að elsku-
legur bróðir minn, Skúli Þór, væri
dáinn. Það gat ekki verið. Hann
sem var svo hress og kátur fyrir
nokkrum dögum.
Ég man vel þegar hann fædd-
ist. Ég var bara fjögurra ára og
var mjög hissa að sjá þetta litla
kríli. Ég passaði hann stundum
þegar hann komst á legg. Hann
var svo sætur með sinn krullaða
koll. Það var gaman að alast upp á
Kópaskeri, að leika sér í fjörunni
og fara bátsferðir með pabba og
afa. Skúli var svolítill slysarokkur.
Meðal annars datt hann tvisvar í
sjóinn af bryggjunni. Í seinna
skiptið óð hann í land, karl-
mennskan uppmáluð aðeins sex
ára gamall, og varð ekki meint af.
Skúli fór í Laugaskóla en var að
öðru leyti sjálfmenntaður. Fljótt
kom í ljós hvað hann var mikill
snillingur í höndunum. Bílavið-
gerðir og hverskyns vélar og röra-
lagnir léku í höndum hans. Hann
gat gert við allt, enda rak hann
lengi bílaverkstæðið Röndina.
Skúli var hvers manns hugljúfi.
Það geislaði af honum gleðin og
hlýjan sem var smitandi, enda átti
hann marga vini. Það er skarð fyr-
ir skildi eftir slíkan mann.
Mesta gæfa Skúla var að giftast
sinni yndislegu konu, Heiðrúnu
Hallgrímsdóttur. Þau settust að á
Kópaskeri, fyrst heima hjá for-
eldrum okkar á efri hæðinni á
Melum, en síðan byggðu þau nýtt
hús. Hann var sá eini af okkur
systkinunum sjö sem bjó áfram á
Kópaskeri, allt þar til hann flutti
til Húsavíkur fyrir rúmu ári. Þau
eignuðust tvö börn, Jón Skúla og
Önnu, en urðu fyrir þeirri sáru
sorg haustið 2013 að missa dóttur
sína aðeins 48 ára gamla. Það er
skammt stórra högga á milli. Ég
vil þakka bróður mínum allar góð-
ar samverustundir. Elsku Heið-
rún, Jón Skúli og fjölskylda og
Jónsi og fjölskylda, við hjónin
vottum ykkur okkar dýpstu sam-
úð. Megi guð og gæfan fylgja ykk-
ur.
Sveininna Jónsdóttir.
Skúli Þór Jónsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
GÍSLI ELÍASSON,
Hrafnistu í Reykjavík,
fyrrverandi verksmiðjustjóri SR á
Siglufirði,
lést á Landspítalanum 30. júní.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
.
Jens Gíslason, Kristín María Eggertsdóttir,
Dagmar Jensdóttir, Heiðar J. Sveinsson,
María Jensdóttir, Ásgeir Gunnarsson,
Elsa Jensdóttir, Vilhjálmur Skúlason
og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Sléttuvegi 23,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut fimmtudaginn 2. júlí.
.
Valur Sigurbergsson,
Ingveldur J. Valsdóttir, Hreggviður Daníelsson,
Björg Valsdóttir, Jörgen H. Valdimarsson,
Theódór H. Valsson, Auður Inga Þorsteinsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, eiginmaður, bróðir,
tengdafaðir og afi,
DR. PÉTUR H. BLÖNDAL
alþingismaður,
lést á heimili sínu þann 26. júní í faðmi
fjölskyldunnar. Útförin fer fram
í kyrrþey að ósk hans.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Minningarsjóð krabbameinslækningadeildar.
.
Davíð Blöndal,
Dagný Blöndal,
Stefán Blöndal,
Stella María Blöndal,
Baldur Blöndal,
Eydís Blöndal,
Eyrún Rós Árnadóttir,
Svanfríður Blöndal,
Hjörtur Blöndal,
Lárus Blöndal,
Kristín Blöndal,
tengda- og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓR VIGNIR STEINGRÍMSSON,
fv. yfirvélstjóri hjá
Landhelgisgæslunni,
Hlíðarhúsum 3, áður Arahólum 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 12. júní.
Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.
.
Kristín Þórsdóttir,
Rannveig Þórsdóttir,
Þorsteinn Ólafs, Lára Kristjánsdóttir,
Ólafur Kristinn Ólafs, Soffía G. Jóhannesdóttir,
Andri Már Bjarnason,
Daníel Þór Valdimarsson, Rebekka Rún Hjartard.,
Þór Steinar Ólafs, Björg Magnea Ólafs,
Kristján Már Ólafs,
Halldóra Sigurlaug Ólafs, Magnea Jónína Ólafs
og barnabarnabarn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800