Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015
Að innan frá með Birkisafanum og utanfrá með Birki Scrub og Birki Cellolite olíunni Birki Cellolite olían hjálpar til
við að draga úr og koma í veg fyrir appelsínuhúð* - í samhljómi við mann og náttúru, www.weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
*Niðurstöður vísindalegra rannsókna (Derma Concept GmbH) Þéttleiki húðarinnar
jókst um 35% eftir 28 daga notkun með Birki Cellolite olíunni og Birkisafanum og
mýkt húðarinnar varð 21% meiri.
Meðhöndlaðu appelsínuhúðina heildrænt
Ég á gamlan en þó
síungan vin sem reynd-
ar er ekki af þessum
heimi, þó að hann hafi
vissulega gengið hér
um. Ungur ákvað ég að
fylgja honum að mál-
um, gera að minni
helstu fyrirmynd og
leggja allt mitt traust á.
Ég verð honum reynd-
ar aldrei líkur og er í
rauninni þess ekki verður að reima
skóna hans og hvað þá að bera tösk-
urnar hans. Ástæða þess að hann er
minn besti vinur sem ég set allt mitt
traust á er ekki síst framganga hans
í þessari veröld og orðin sem hann
mælti eitt sinn svo eftirminnilega:
1) „Í heiminum hafið þér þreng-
ing. En verið hughraust. Ég hef
sigrað heiminn.“
2) „Ég er ljós heimsins. Sá sem
fylgir mér mun ekki ganga í myrkri
heldur hafa ljós lífsins.“
3) „Ég er vegurinn, sannleikurinn
og lífið, enginn kemur til föðurins,
nema fyrir mig.“
4) „Ég er upprisan og lífið. Sá sem
trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.
Og hver sem lifir og trúir á mig mun
aldrei að eilífu deyja.“
5) „Komið til mín, öll þið sem
erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég
mun veita yður hvíld.“
6) „Ég verð með þér
alla daga allt til enda
veraldar.“
7) Hann sagðist vilja
gefa mér frið sem
heimurinn ekki þekkti
og vildi ekki taka á
móti. Frið sem er æðri
mannlegum skilningi,
en enginn og ekkert
megnaði frá mér að
taka.
8) Hann hvatti mig
til að elska náunga minn og allt mitt
samferðafólk og dæma það ekki.
9) Hann bað mig jafnframt um að
elska óvini mína og biðja fyrir þeim
sem vilja mér illt eða ofsækja mig.
Vinátta sem varir að eilífu
Og þótt allnokkuð sé nú um liðið
frá því þessi orð voru mælt, jafnvel
um tvöþúsund ár, þá eru þau enn í
fullu gildi. Jafnvel aldrei fremur en
einmitt í dag. Guð gefi að ég gleymi
þeim aldrei! Því að þeim fylgir líf og
andi sem varðar okkur veginn til ei-
lífrar þátttöku. Orðinu sem varð
hold og gekk um á meðal okkar.
Ósegjanlega þakklátur
Ég er ósegjanlega þakklátur fyrir
þá miklu náð og óútskýranlegu for-
réttindi að fá að vera sá smælingi
sem Guð hefur opinberað sjálfan sig
fyrir. Fagnaðarerindi sitt, fyrirgefn-
ingu og kærleika. Hvílíkur ólýsan-
legur fögnuður og friður sem því
fylgir. Hamingja sem leiðir til
þakkargjörðar hvern dag sem smit-
ast vonandi áfram í kærleika frá
hjarta til hjarta. Þótt vissulega sé
farvegurinn torfær á stundum og
mátturinn veikur.
Faðmur sem ég vil
hvíla í að eilífu
Jesús er Guð þinn, því aldrei skalt
gleyma. Hann gengur við hlið þér og
leiða þig vill. Þú eilífa lífið átt honum
að þakka. Hann sigraði dauðann og
lífið gaf þér. Guðs son á himni nú
vakir þér yfir. Hann gleymir ei bæn
þinni hver sem hún er. Líf mitt sé
falið þér, eilífi faðir. Faðminum
þínum ég hvíla vil í.
Með kærleiks-, sumar- og friðar-
kveðju. Lifi lífið!
Orð sem gott er að hvíla í
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
»Ég er ósegjanlega
þakklátur fyrir þá
miklu náð og þau óút-
skýranlegu forréttindi
að fá að vera sá smæl-
ingi sem Guð hefur opin-
berað sjálfan sig fyrir.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Mikill fjöldi lausna barst við sum-
arsólstöðugátunni og voru flestir
með rétta lausn á henni.
Lausnin er:
Má sín lítils máttur öllum mótbyr í
margur hefur lent í því
og misst við dug að byrja á ný.
För til bóta finnst við stuðning ferðlangs
forsjón ríkir þeim til gangs
og ferðin verður ekkert hangs.
Saman landa sigri og anda sveittir létt
sannarlega faðmast þétt
synir landsins breyta rétt.
St.P.H.
Vinningarnir eru bækur frá For-
laginu.
Hallfríður Einarsdóttir, Brekku-
götu 14, 600 Akureyri, fær bókina
Ljós af hafi eftir M.L. Stedman.
Sigurgeir Jónsson, Gvendarhúsi,
900 Vestmannaeyjum, fær bókina
Blóð í snjónum eftir Jo Nesbø.
Dóra Magnúsdóttir, Blásölum 24,
201 Kópavogi, fær bókina Mörk,
saga mömmu, eftir Þóru Karítas
Árnadóttur.
Vinningshafar geta vitjað vinning-
anna í móttöku ritstjórnar Morgun-
blaðsins eða hringt í 569-1100 og
fengið bækurnar sendar heim.
Morgunblaðið þakkar þeim sem
sendu lausnir.
Lausn sumarsólstöðugátu
Hornvík er hættuleg
tófum.
Herjuð af sjómanna-
bófum,
kvikasilfruðum selum
og skotglöðum
landeignadelum.
Hálsaskógarkyn-
slóðin, sem nú er upp
á sitt fegursta og
ræður flestu í þessu
landi, ólst upp við að öll dýrin í
skóginum ættu að vera vinir og
ekkert þeirra mætti éta annað.
Einnig að í því samfélagi væri
Mikki refur grunnhygginn og lítt
ógnandi sprelligosi.
En þegar ofangreind kynslóð,
svo veruleikafirrt í þessum efnum
sem raun ber vitni, er á fáum ár-
um búin að 10-15 falda refastofn-
inn, er heldur betur farið að
harðna á dalnum fyrir nytja- og
farfuglastofnum og sauðfé bænda,
„því óargadýrsins eðlið grimmt á
sér í heila fylgsni dimmt“.
Það vitum við best sem höfum
séð illa dýrbitnar kindur, á annan
tug þrastarunga vella út úr gininu
á nýskotinni grenlæðu, aleyðingu
vænna kríuvarpa á 2-3 vornóttum,
stórspillt æðarvörp eða fundið
stálskolta rebba læsast um hönd
sína eða stígvélatá. Svo vitnað sé
til annarra þjóða er hatursfyllsta
bölbæn á keltneska tungu eitthvað
á þessa leið: Megi refur grenja sig
undir dyrahellu þinni.
Hálsaskógarheilkennið
Í fyrravor sendu stjórnir allra
sauðfjárræktarfélaganna í
Strandasýslu, sjö að tölu, þáver-
andi umhverfisráðherra, S.I.J., er-
indi þess efnis að aflétta friðun
refa á Hornströndum og ráða
veiðistjóra til að halda refastofn-
inum innan eðlilegra stærðar-
marka. Við vorum ekki virt svars,
en aðspurður svaraði ráðherra
sunnlenskum bónda því að það
væri erfitt að snúast gegn tófunni,
hún væri svo vinsæl.
Sama erindi var sent nýjum um-
hverfisráðherra eftir áramótin og
þar virðist líka eins og að biðja
fjandann um vel kristna sál að fá
viðbrögð. Sauðfjárbændur úr Döl-
um og Djúpi sem sitja á alþingi
gera sig „fræga“ með öðru og
dapurlegra móti en sinna þessu
hagsmunamáli kjósenda sinna.
Um tíma mátti ekki birta mynd-
ir af dýrbitnum kindum í Bænda-
blaðinu vegna hættu á að lesendur
þyrftu áfallahjálp og útbreiðsla
blaðsins dægist saman.
Og Ester Rut komst upp með
það í fjölmiðlum, ómótmælt, að
refurinn hefði numið hér land
fyrstur spendýra og ætti því allan
rétt, væri kórónan á sköpunar-
verkinu og við yrðum bara að þola
þann óskunda sem hann gerði.
Lofsvert framtak Hornvík-
inga
Tíu refahræ, sem Ester Rut
hnaut um á fjörukambinum í
Hornvík síðasta sumar, hafa orðið
hennar sönnun þess að refastofn-
inum á landinu öllu hafi farið
hrakandi síðan 2008.
Hátt magn kvikasilfurs nefnir
hún líklegasta dánarorsök, þó að á
átta mánuðum hafi
henni ekki unnist tími
til að fá það staðfest.
Ferðamenn ýti einnig
undir drykkjuskap hjá
refum, sem valdi þeim
skorpulifur. Yrðlingar
liggi dauðir á og við
greni. Hið sanna er að
sjómenn leita oft land-
vars í Hornvík og æfa
skotfimi sína á tófun-
um í fjörunni. Land-
eigendur gera einnig
hreint fyrir sínum
dyrum áður en ferðamannatíminn
byrjar. Yrðlingarnir svelta svo í
hel, þegar annað foreldri eða bæði
eru fallin frá. Tímabundna refa-
rýrnun í Hornvík er því ekki einu
sinni hægt að yfirfæra á Horn-
strandir, hvað þá landið allt.
„Doktor Mýsla“
Að síðustu, vegna þess að Ester
Rut er nú nýverið orðin doktor í
hagamúsum út á þá „uppgötvun“
sem ég vissi nú fyrir 10 ára aldur,
að músum líði betur og tímgist
hraðar í skóglendi en á berangri,
eru hér í lokin aðsend erindi sem
nefnast „Óbein útför“.
Skjalfannarbóndinn skellti
skottið af doktor mýslu.
Nú kvalin og kviðlinginn melti
kumluð í Hornstrandasýslu.
Upprisin aftur mýsla
aukist að frægð og sóma
þó meindýramálasýsla
misjafna hljóti dóma.
Hornstrandarefir
á heljarþröm?
Eftir Indriða
Aðalsteinsson
Indriði Aðalsteinsson
»Ester Rut komst
upp með það í
fjölmiðlum, ómótmælt,
að refurinn hefði numið
hér land fyrstur
spendýra og ætti
því allan rétt.
Höfundur er sauðfjárbóndi
á Skjaldfönn v/Djúp.
- með morgunkaffinu
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift