Morgunblaðið - 04.07.2015, Side 49

Morgunblaðið - 04.07.2015, Side 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015 Ísraelska kvikmyndin Gett: The Tri- al of Viviane Amsalev var frumsýnd í Bíó Paradís í gær. Myndin var framlag Ísraels til óskarsverðlaun- anna 2015 og vann þrenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Jerúsalem 2014 auk þess sem hún var sýnd á Cannes. Myndin var einnig tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna sem besta erlenda myndin. Í tilkynningu segir að myndin taki á því vandamáli að í Ísrael er hvorki hægt að gifta sig né skilja á borgaralegan máta, heldur hafa einungis rabbínar vald til að stað- festa skilnað og þá aðeins með fullu samþykki eiginmannsins. Aðalpersóna myndarinnar er Vi- viane, sem hefur í þrjú ár barist fyrir því að fá skilnað við eig- inmann sinn, og gefst ekki upp þrátt fyrir mótlætið. Shlomi Elkabetz og Ronit Elkabetz leikstýra kvikmyndinni. Verðlaunuð Myndin var framlag Ísraels til óskarsverðlaunanna 2015 og vann auk þess þrenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Jerúsalem 2014. Föst í viðjum hjónabands Bíófrumsýning Breski listamaðurinn Nikhil Nat- han Kirsh opnar sýninguna End- urfæðingu í Gallerí Fold klukkan 14 í dag. „Myndaröðina á sýningunni kalla ég Endurfæðingu því fyrsta mál- verkið varð til við fæðingu trúðs. Trúðurinn er í sinni listsköpun ávallt í sköpunarferli sem drifið er áfram af hans eigin ófullkomleika og frelsi hans til að bregða á leik með áhorfendum. Reynsla mín af því að vera trúður hefur hjálpað mér að fjarlægja mig frá ýmsum sjálfsmyndum sem ég hef ýmist sjálfur speglað mig í eða fundið mig í,“ segir Kirsh meðal annars um sýninguna í tilkynningu. Kirsh fæddist árið 1979 í London. Hann stundaði nám við University of Hertfordshire 1997-1998 og lauk BA Honours-prófi í ljósmyndun frá Manchester Met. University 2003. Kirsh opnar sýningu í Gallerí Fold í dag Ljósmynd/Geirix Myndlist Bretinn Nikhil Nathan Kirsh kallar sýningu sína Endurfæðingu. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýningin Mynd // Hlutur verður opnuð í D-Sal Listasafns Reykjavík- ur í dag kl. 15 og er hún sú þriðja í sumarsýningaröð Kunstschlager í safninu. Á hverri sýningu fær einn meðlimur Kunstschlager-myndlist- arhópsins til liðs við sig valinn lista- mann og að þessu sinni er komið að Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur sem valdi Áslaugu Írisi Katrínu Frið- jónsdóttur. Áslaug útskrifaðist frá Listahá- skóla Íslands árið 2006 og lauk meistaranámi frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Hún hef- ur tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis og hélt sína fyrstu einkasýningu í Hverfisgalleríi í mars á þessu ári. Guðlaug útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands fyrir þremur árum og stofnaði og rak galleríið Kunstschlager ásamt fleirum og stóð einnig að útgáfu Gamla sfinxs- ins sem gaf út myndlistartengt efni af ýmsum toga. Guðlaug hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum hér heima og erlendis. Guðlaug og Áslaug sýna ný verk og segir í tilkynningu að fagurfræði þeirra sé ólík. Áslaug notist við dempaða liti, hrá efni eins og steypu, gifs og við og tefli þeim saman við teikningu og málverkið sem verði til sem svar við tilfallandi myndbygg- ingu verkanna. Guðlaug noti hins vegar sterka liti og afgerandi form í verkum sínum, leiki sér að skynvill- um áhorfandans og þenji þannig út víddir miðilsins. Báðar eigi þó sam- eiginlegt að vinna með myndbygg- ingu og form í verkum sínum. Rík efniskennd „Ég hef lengi hrifist af verkunum hennar og fundist einhver sameig- inlegur þráður í verkum okkar,“ seg- ir Guðlaug, spurð að því hvers vegna Áslaug hafi orðið fyrir valinu. En hver er sá sameiginlegi þráður? „Það er þetta óhlutbundna og mjög rík efniskennd í verkum okkar beggja,“ segir Guðlaug. Verk þeirra séu af ýmsu tagi; málverk og skúlp- túrar m.a. og þær vinni með efni á borð við leir og gifs. „Þetta er mjög blandað en við erum báðar að vinna beint í formið, með myndina sem mynd og skúlptúrinn sem hlut en í vinnunni fara verkin að flæða á milli formanna. Myndin verður að hlut og hluturinn að mynd. Það er flæði á milli þessara tveggja þátta,“ segir Guðlaug. -Nú er D-salurinn ekki mjög stór. Skiptið þið honum á milli ykkar eða blandið þið verkunum saman? „Við blöndum þeim saman til að ítreka það sameiginlega í verk- unum,“ svarar Guðlaug. Mynd verður að hlut og hlut- ur að mynd  Guðlaug Mía og Áslaug Íris snúa bökum saman á þriðju sumarsýningu Kunstschlager í D-sal Hafnarhúss Morgunblaðið/Eggert Sumarsýning Guðlaug Mía og Áslaug Íris innan um verk sín í D-Sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi í gær. Vefur Listasafns Reykjavíkur: www.listasafnreykjavikur.is ÍSLENSKT TAL ARNOLD SCHWARZENEGGER EMILIA CLARKE Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus POWERSÝNING KL. 10:30 Ódýrt í bíó TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS SÝND KL. 1:45 SÝND KL. 2 SÝND KL. 2 Miðasala og nánari upplýsingar SÝND Í 2D ÍSL TAL SÝND Í 2D

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.