Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 17
ÚR BÆJARLÍFINU Reynir Sveinsson Sandgerði Ferðamönnum hefur fjölgað mikið í Sandgerði á þessu ári eins og ann- ars staðar á landinu. Nú eru komin fjögur gistihús á tjaldsvæðinu og hafa þau nýst vel enda er tjaldsvæð- ið vel staðsett og stutt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Nýlega hélt heimatríóið Hobb- itarnir óundirbúna æfingu á tjald- svæðinu. Nefndu þeir dagskrána Á snúrunni enda spiluðu þeir og sungu á palli sem er undir snúrustaurum og tókst mjög vel. Margir mættu til að hlýða á skemmtilegan söng og nærast á pylsum, enda veðrið alveg einstakt    Lélegar merkingar eru á veg- inum sem tengir Sandgerði og Garð við veginn út á Reykjanes. Það hefur skilað litlum árangri að kvarta við Vegagerðina vegna þessara vega- merkinga en á skilti við gatnamótin stendur: Hvalsnes 11 km. Það koma út á Reykjanes vel á annað hundrað þúsund gestir á ári. Aðeins brot af þeim kemur til Sand- gerðis eftir umræddum vegi sem er nr. 45 og heitir Garðskagavegur eins og það er nú gáfulegt. Bæjaryfirvöld í Sandgerði og Garði virðast vera áhugalaus um að reyna að fá þessum merkingum breytt.    Á undanförnum árum hefur veitingastaðurinn Vitinn í Sandgerði sérhæft sig í allskonar krabbarétt- um sem hafa vakið mikla athygli og fengið góða dóma. Hópar fólks koma þangað í krabbaveislu. Þess má geta að inni á veitingastaðnum eru gler- búr með lifandi kröbbum og í bak- garðinum er fjöldi kerja með lifandi kröbbum í sjó sem kemur úr borholu við húsið. Stefán Sigurðsson, veitinga- maður á Vitanum, hefur óskað eftir að merkja lendingarstað fyrir tvær þyrlur norðan við Þekkingarsetur Suðurnesja í Sandgerði. Þar er nóg pláss og stutt að ganga yfir á veit- ingastaðinn. Það hefur færst mjög í vöxt, að efnaðir ferðamenn heim- sæki Ísland og ferðist um á þyrlum. Stefán í Vitanum hefur fengið fyr- irspurnir um hvort hægt sé að koma á þyrlu til Sandgerðis og er vonandi að viðkomandi leyfi fáist.    Halldór Lárusson hefur verið ráðinn skólastjóri Tónlistarskóla Sandgerðis. Halldór hefur verið kennari við Tónlistarskólann í 8 ár. Hann var kjörinn bæjarlistamaður Grindavíkur 2014 og tók við af Lilju Hafsteinsdóttur sem verið hefur skólastjóri í 18 ár. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Pylsur á snúrunni Það var fjölmenni á tjaldsvæðinu í óundirbúinni tónlistarveislu sem nefnd var á Snúrunni. Fjögur ný gistihús í Sandgerði FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ekki er gert ráð fyrir að hægt verði að stækka fangelsið á Hólmsheiði, sem tekið verður í notkun í byrjun næsta árs. Kvennafangelsinu í Kópavogi hefur verið lokað og hegn- ingarhúsið við Skólavörðustíg bíður sömu örlaga. Fangelsin tvö hafa starfað á undanþágu frá Heilbrigð- iseftirlitinu um árabil og ekki staðist kröfur sem gerðar eru til fangelsa hér á landi um aðbúnað fanga. Gert er ráð fyrir 36 nýjum pláss- um á Hólmsheiði, en fangelsin sem verður lokað, höfðu pláss fyrir 20 fanga samtals. Nýja fangelsið verð- ur um 3.600 fermetrar að stærð, en heildarkostnaður við framkvæmd- irnar er um 2,7 milljarðar. Ekki möguleiki á stækkun Eftirspurn eftir fangelsisplássi hefur stóraukist á síðustu árum en afplánunardómum hefur fjölgað ört og þeir jafnframt þyngst. Margir bíða afplánunar og fangelsi landsins eru yf- irfull. Páll Win- kel, forstjóri Fangelsismála- stofnunar, segir að árin fyrir og eftir hrun hafi refsingar þyngst um 35% á ári. Af- plánunarár í ein- stökum tilvikum eru því fleiri. „Nánast enginn afplánar í íslensku fangelsi í dag sem ekki hefur verið dæmdur fyrir meiriháttar brot,“ segir Páll. Aðspurður um stækkunarmögu- leika fangelsisins á Hólmsheiði seg- ir Páll að ekki hafi verið gert ráð fyrir stækkun, þrátt fyrir aukna eft- irspurn eftir fangelsisplássi. „Það var ekki pólitískur áhugi á því að stækka fangelsið eða gera ráð fyrir stækkunarmöguleikum,“ segir Páll, og bætir við að Fangelsismálastofn- un hafi gert grein fyrir möguleika á stækkun fangelsisins í undirbúningi framkvæmdanna. Spurður um fjölgun plássa með öðrum leiðum segir Páll að áður þyrfti að ráðast í aðgerðir í eldri fangelsum vegna aðbúnaðar fang- anna. „Óskandi væri að næstu skref yrðu úrbætur á aðbúnaði fanga á Litla-Hrauni áður en stækkun yrði skoðuð þar,“ segir hann. Einnig sé ákjósanlegt að skoða stækkun opna fangelsisins að Sogni. Fleiri möguleikar afplánunar Páll telur mikilvægt að sjónum sé líka beint að öðrum úrræðum við fullnustu refsinga en fangelsisleið- inni. „Að mínu mati ættum við að rýmka rafrænt eftirlit í lok afplán- unar. Við höfum gert tilraunir með ökklabönd í nokkur ár og það hefur gengið mjög vel. Þetta er æskilegt þrep í losun fanga en einnig ódýr- ara,“ segir Páll, en töluverð útgjöld fylgja hverjum fanga sem afplánar refsingu í fangelsi. Hann telur jafnramt að rýmka eigi heimildir Fangelsismálastofn- unar til að veita möguleika á af- plánun með samfélagsþjónustu, hún reynist föngum einnig vel. „Það er eðlilegt að leita annarra leiða sem geta að hluta til komið í stað innilok- unar í fangelsi. Eins og staðan er verðum við þó að vinna í afplánunar- biðlistanum,“ segir Páll. Ekki mögulegt að stækka fang- elsi á Hólmsheiði  Aukin eftirspurn eftir plássi Morgunblaðið/Júlíus Hólmsheiði Áætlað er að fangelsið á Hólmsheiði verði tekið í notkun í byrjun næsta árs. Ekki var pólitískur vilji til að stækka við fangelsið eða gera ráð fyrir stækkunarmöguleikum þrátt fyrir fleiri og þyngri afplánunardóma. Páll Winkel Bjarni Steinar Ottósson bso@mbl.is Guðmundur Halldórsson, skordýra- fræðingur og rannsóknarstjóri hjá Landgræðslu ríkisins, segir það ekki mundu koma sér á óvart ef lúsmý yrði hér staðbundið í framtíðinni. Svipaðar tegundir eru þekktar í nágrannalönd- unum og í raun hafi t.d. verið beðið eftir því að moskítóflugur færu að nema hér land. Ekkert væri þekkt því til fyrirstöðu að slíkar flugur gætu þrifist hér og vetur ekki svo kaldir að það ætti að ganga af þeim dauðum. Fréttir af lúsmýi hafa trúlega ekki farið framhjá mörgum síðustu daga en fregnir tóku að berast af þessum vágesti í vikunni. Mýið virðist eins og er halda sig í Kjósinni og Mosfells- sveit og leggst þar bæði á heimamenn og sumarhúsaeigendur, svo að stór- sér á þeim. Nákvæm greining á þeirri tegund mýflugna sem um ræðir hefur ekki fengist staðfest en Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun, telur hana líklegast til- heyra ættkvíslinni Culocoides. Teg- undir úr henni hafa ekki þekkst hér á landi fyrr, en í nágrannalöndum okk- ar herja þær á menn og fé og geta borið á milli búfjársjúkdóma. Alda nýrra tegunda á nýrri öld Frá aldamótum hefur Guðmundur séð margar tegundir nema hér land, sumar skaðvalda. „Það er asparglytta sem menn á höfuðborgarsvæðinu hafa orðið mikið varir við og síðan birkikemba sem líka hefur valdið nokkrum usla. Þetta kemur hvort tveggja í kringum 2000. Um 10-15 nýir skaðvaldar hafa numið hér land á undanförnum fáum árum. Það líður oft dálítill tími því að tegund er staðfest í landinu þar til maður sér hvað þetta er mikill skað- valdur.“ Ekki er hægt að segja til um hvern- ig tegundirnar berast hingað. Ein- hverjar gera það af sjálfsdáðum en Guðmundur segir flutninga til lands- ins það umfangsmikla að engin leið sé að loka á þetta. Skordýr geta borist með jarðvegi með plöntum, utan á bíl- um og í dekkjum sem flytjast beint inn til landsins auk almennra vöru- flutninga. Aðeins þurfi einstök tilvik til þess að ný tegund setjist að. Festi tegundir sig í sessi er fátt til ráða. Eitrun feli í sér of skaðleg efni og sé ekki raunhæf. Lúsmý hér til frambúðar?  Margar nýjar skordýrategundir hafa borist til landsins undanfarna áratugi Ljósmynd/Erling Ólafsson Lúsmý veldur um þessar mundir usla í sveitum á Suðvesturlandi. Bitvargur » Lúsmýið er talið tilheyra ætt blóðsugna sem finnst í lönd- unum í kring. » Smávaxnar flugurnar þurfa helst logn til þess að athafna sig. » Ekki verður vart við bitin strax en roði, kláði og bólga fylgja á eftir. » Skyldar tegundir bera sum- ar með sér búfjársmit en smit i mönnum er ekki þekkt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.