Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015 Þegar ég hugsa til Ólafar frænku minnar kemur fyrst upp í hugann glað- lyndi, jákvæðni og seigla. Við kynntumst fyrst sem unglingar þegar við hittumst á Bjargi við Sundlaugaveg, í húsi afa og ömmu, en þá bjó Gígí móðursystir mín ein í húsinu og við gistum þar okkur öllum til mikillar skemmtunar. Við Ólöf skiptumst á sögum um ástir og ævintýri og alltaf var stutt í hláturinn hjá okkur. Við endur- nýjuðum kynnin þegar ég flutti til Akureyrar árið 1982 en þar bjó Ólöf með eignmanni sínum. Þau höfðu eignast börnin sín tvö, Sigríði og Harald. Ásdís, dóttir mín, og Sigríður urðu góðar vinkonur; lífið lék við okkur og við vorum og báðar þakklátar fyrir barnalán okkar. Síðan kom reiðarslagið þegar Ólöf veiktist hastarlega. Ég get varla lýst því hve ég dáðist að seiglu frænku minnar í veikind- um hennar. Hún gekk í gegnum veikindin af svo mikilli reisn og æðruleysi að aðdáunarvert var; í gegnum veikindi sem hefðu bugað flesta á skömmum tíma – en ekki Ólöfu. Við hittumst nokkrum sinn- um síðasta vetur og fann ég glöggt hve mér þótti vænt um frænku mína í bland við aðdáun á þreki hennar, lífsvilja og bar- áttu hennar fyrir að láta ekki í minni pokann fyrir ófyrirséðum örlögum sem svo grimmilega settu strik í lífsreikning hennar. Við Ólöf vorum búnar að mæla okkur mót á ákveðnum degi fyrir skemmstu en af þeim fundi varð aldrei því Ólöf kvaddi þennan heim og okkur öll áður en af þeim fundi varð. Bara ef við hefðum ákveðið að hittast aðeins fyrr; fengið eina sam- verustund í viðbót og hlegið saman eins og á Bjargi þegar við vorum litlar og lífið blasti við. Ég sakna þeirra stunda – sem aldrei koma aftur. Ólöf Einarsdóttir ✝ Ólöf Einars-dóttir fæddist 3. júlí 1960. Hún lést 23. júní 2015. Útför Ólafar fór fram föstudaginn 3. júlí 2015. Hvíl í friði, kæra frænka og vinur. Petrína (Peta). Með fallegasta brosið og besta hjartað. Þannig minnist ég vinkonu minnar Ólafar. Við kynnt- umst í Laugalækj- arskóla haustið 1973 í gegnum sameiginlega vinkonu okkar Kristínu Þórar- insdóttur, Dídí. Við vorum óharðnaðir ung- lingar sem voru að feta sín fyrstu spor í átt til fullorðins- ára. Við héldum út í lífið í Levi’s-gallabuxum, rúllukraga- peysu úr Vinnufatabúðinni á tréklossum eða trömpurum eftir því sem við átti. Við hittumst nánast daglega og löbbuðum niður Laugaveginn á kvöldin og fengum okkur pylsu, og stund- um lítið prins og kók á Halló, hittum stráka á rúntinum og fórum í Tónabæ um helgar. Drukkum pilsner mjög hratt og héldum að við yrðum fullar. Hlustuðum á Lög unga fólks- ins. Fórum í Raggabúð á Laugalæknum í frímínútum og keyptum sleikjó. Heimsóttum ömmurnar á Austurbrún. Pöss- uðum á kvöldin, buðum strákum í mat. Fórum á Rauðhettu ’74. Fórum til spákonu. Trúðum hvor annarri fyrir leyndó. Þú varst falleg, brosmild og glæsi- leg og eftir þér var tekið. Ég kynntist þinni einstöku og elskulegu fjölskyldu, mömmu þinni og Helgu frænku, móður- systur þinni. Alltaf var stutt í gleðina. Pabbi þinn eitthvað áhyggjufyllri út af strákastandi dótturinnar en stutt í stríðnina og kærleikann hjá honum. Þú varst einkadóttirin, systir bræðra sem elskuðu þig. Stolt foreldra þinna og Einsa, Sig- valda og Óla. Við borðuðum „tuskubrauð“ á Laugarnesveginum þegar þú varst að elda fyrir bræðurna. Áttum gott og áhyggjulaust líf. Þannig leið tíminn. Svo kynntist þú strák og varðst bomsí og orðin mamma 17 ára, Sirrý fædd og alvara lífs- ins tók við. Þú hófst búskap með Hannesi. Heimili þitt var á Ak- ureyri en við áttum í stopulu símasambandi. Seinna kom ann- að barnið, Halli, í líf þitt. Þú, sjómannsfrúin, lærðir tækniteiknun og söng, rakst heimili og vannst með náminu. Þú hafðir mikla sönghæfileika. Svo kom áfallið, þú veiktist og á tímabili var þér vart hugað líf. Svörtustu spár sögðu að lífs- líkur þínar væru litlar. Eins og oft í alvarlegum veik- indum slitnaði upp úr hjóna- bandinu. Þið Hannes skilduð. En hrakspár læknavísind- anna áttu ekki við um þig. Þú reist upp úr veikindunum eins og fuglinn Fönix. Þú fluttir til Reykjavíkur árið 1990, þá orð- inn löggiltur öryrki, og sam- skipti milli okkar hófust á ný. Þú kynntist Óskari, ástinni þinni og eftirlifandi eiginmanni. Þið áttuð yndisleg ár og stóðuð saman í blíðu og stríðu og þú blómstraðir. Það var gott að eiga þig að. Komst alltaf færandi hendi þeg- ar þú komst í heimsókn og áttir alltaf eitthvað handa börnunum mínum sem dáðu þig. Þú gleymdir engum. Þú varst uppá- halds og besta vinkonan. Við töluðum mikið saman og yfirleitt stóðu samtölin langt fram á nætur. Það féll aldrei skuggi á þessa 42 ára vináttu. Þú gerðir allt sem þú gast fyrir mig. Þú varst einstök perla. Þú varst vinkon- an. Það verður erfitt að lifa lífinu án þín og heimurinn er fátæk- ari. Ég votta fjölskyldu þinni, vinum og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Hvíl í friði, elsku Ólöf mín. Hulda Gestsdóttir. Mikið er skrítið að sitja nú við skriftir á minningargrein um þig, elsku Ólöf. Okkur og krökkunum var mikið brugðið við fréttirnar af fráfalli þínu, Ólöf okkar af þriðju hæðinni. Sárt var að heyra að þetta hafði gerst svo snögglega, vonum að þér líði betur, elsku Ólöf. Löng var baráttan sem þú stóðst í með heilsuna þína, en alltaf stóðst þú upprétt og leist glæsi- lega út. Þær eru margar góðar minningarnar sem við eigum með þér og Óskari. Þú tókst börnum okkar alltaf sem barna- börnunum þínum og bankaðir upp á með jólagjafir, sumargjaf- ir og afmælisgjafir handa þeim á hverju ári og kenndir þeim að malla karamellur sem slógu all- hressilega í gegn, svo eitthvað sé nefnt. Krakkarnir tóku ekki annað í mál þegar fara átti með pakka til ykkar en að fara öll saman til ykkar því þau hlökk- uðu svo mikið til að fá að hitta þig, þú hafðir svo góða nærveru og þeim þótti svo vænt um að fá að hitta þig sem oftast. Við horfðum nokkrum dögum eftir fréttirnar, öll fjölskyldan, á fal- lega glerverkið sem þú og Ósk- ar gáfuð okkur í brúðkaupsgjöf sem hangir í eldhúsglugganum og varð okkur hugsað til þín. Minningarnar um þig munu lifa með okkur um ókomna tíð. Hvíldu í friði, elsku Ólöf okkar. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til allra að- standenda. Sigmundur, Tinna, Anton, Emilíana og Valur í Andrésbrunni. Elskuleg mágkona mín Ólöf Einarsdóttir lést 23. júní sl. langt um aldur fram. Ólöf er öllum þeim sem hana þekktu mikill harmdauði. Hún var yndisleg manneskja, svo hlý og góð og alltaf tibúin til hjálpar ef einhver þurfti á slíku að halda. Létt og kát, brosmild og hafði alltaf nóg að gefa öðrum, þótt oft ætti hún sjálf við mikil og alvarleg veikindi að stríða. Það var samt alltaf nóg eftir handa öðrum hjá henni. Ég kynntist Ólöfu fyrst, þegar hún og Óskar yngri bróðir minn felldu hugi saman. Ólöf var á þessum tíma fráskilin kona með tvö stálpuð börn. Það var auð- séð að þar var á ferðinni sönn ást af beggja hálfu. Og til að gera langa sögu stutta hófu þau fljótlega sambúð og Óskar, sem að eðlisfari var mjög glaðsinna og hlýr maður, tók stoltur við stjúpbörnunum og reyndist þeim sannarlega góður faðir. Hinn 20. júní 2004 gengu þau í hjónaband á 50 ára afmælisdegi brúðgumans. Hamingjan blasti við þeim og lífið var dásamlegt. Þau byggðu sér sameiginlegt heimili í Andrésbrunni 15 í Grafarholti. Það var fallegt og vel búið heimili og alltaf svo gaman að koma þangað í heim- sókn á afmælum og alls kyns viðburðum. Ólöf var einstaklega mikill fagurkeri á alla hluti í kringum sig. Hún var sérlega góður kokkur og ótrúlega flink í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Það var sama hvort um var að ræða bakstur, mat- reiðslu, handavinnu eða skraut- list, allt lék í höndunum á henni. En svo dimmdi yfir þessu ást- ríka, yndislega lífi þeirra. Óskar greindist með alzheimersjúk- dóminn aðeins 54 ára gamall. Það var mikið áfall fyrir litlu fjölskylduna og alla þá sem tengdust þeim fjölskyldu- og vinaböndum. En Ólöf stóð sterk og full af ástúð og umhyggju við hlið manns síns. Það var ótrú- legt að sjá og upplifa hvernig þau í sameiningu börðust á móti þessum andstyggilega vágesti. Ólöf gerði allt sem hún gat til þess að Óskar hennar gæti lifað sem bestu og eðlilegustu lífi. Þrátt fyrir hennar miklu og erf- iðu veikindi lét hún ekki bugast og oft held ég að hún hafi gengið ansi nærri sér til þess að láta allt ganga upp. Að lokum varð baráttan of hörð og Óskar henn- ar varð að vistast á hjúkrunar- heimili fyrir alzheimersjúk- linga. En Ólöf gaf ekkert eftir, hún heimsótti hann daglega, umvafði hann ást og umhyggju svo unun var að fylgjast með. Þess á milli þurfti hún sjálf að leggjast inn á spítala vegna sjúkdóms síns og eins komu Karitas-konur heim til hennar til að hjálpa henni við lyfjagjöf og fylgjast með ástandi hennar. Aldrei datt mér í hug að hún ætti eftir að fara héðan á undan elskunni sinni, honum Óskari, en staðreyndin er önnur og eng- inn fær flúið örlög sín. Nú er það hún sem bíður eftir Óskari sínum handan okkar lífs og mik- ið held ég að það verði ástríkir fagnaðarfundir þegar þar að kemur. Ólöfu minni þakka ég innilega fyrir allt það sem hún var okkur fjölskyldunni og ekki síst honum Óskari okkar. Sjáumst síðar í sólríka himna- ríkislandinu. Guð geymi þig. Þín mágkona, Pétrína. ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir, mágkona, frænka og vinkona, ELÍSABET SIGRÚN EINARSDÓTTIR, Framnesvegi 57, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi hinn 25. júní. Útför hennar fer fram fimmtudaginn 9. júlí klukkan 15 frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á félagið Umhyggju. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslunnar í Fossvogi fyrir einstaka alúð þess og virðingu. Fyrir hönd aðstandenda, . Karen G. Elísabetardóttir, Óli Örn Atlason, Hanna Rún Ágústsdóttir, Arnar Elís Ágústsson. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVERRIR SIGURJÓNSSON húsasmíðameistari, Þorlákshöfn, lést 1. júlí. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn fimmtudaginn 9. júlí kl. 14. . Hrönn Sverrisdóttir, Guðni Pétursson, Hlín Sverrisdóttir, Hreggviður Jónsson, Hlynur, Leifur, Arna, Alma Rún og Sverrir. Faðir okkar, BALDUR BÖÐVARSSON, Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi, lést 1. júlí á lungnadeild Sjúkrahússins í Fossvogi. Útförin verður frá Neskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir. . Bryndís Baldursdóttir, Haukur Baldursson, Hrafn Baldursson, Jón Baldursson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN AÐALSTEINSDÓTTIR (SÍDA), Jötunfelli, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 28. júní. Hún verður jarðsungin frá Glerárkirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 13.30. . Ragnhildur Benediktsdóttir, Einar Pálsson, Bára Benediktsdóttir, Kristján Torfason, Víðir Benediktsson, Jenný Ragnarsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Ari Jóhann Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þórsteinn var yndislegur dreng- ur og hvers manns hugljúfi. Hann var mjög félagslyndur og fannst mest gaman þegar nóg var af fólki í kringum hann og mikið gekk á. Hann hafði mjög skemmtilegan húmor og þegar einhverjum varð á að hella niður, brjóta eitthvað eða verða fyrir öðrum minniháttar óhöppum skellihló hann og fallegu augun hans tindruðu. Það má segja að honum hafi ekki mislíkað það neitt þótt starfs- fólkið læddist ekkert um eða eins og við sögðum oft „væru eins og risaeðlur“ í kringum hann. Við á Skammtímavistun erum fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessum ljúfa og blíð- lynda dreng með fallegu augun og léttu lundina. Þórsteinn Arnar Rúnarsson ✝ ÞórsteinnArnar Rún- arsson fæddist 1. júní 1997. Hann lést 13. júní 2015. Útför hans fór fram 26. júní 2015. Okkur langar til að kveðja hann Þórstein okkar með nokkrum versum úr ljóðinu Kveðju eftir Bubba Morthens. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Aðalbjörg, Áslaug, Kristján, Sigríður K., Ragnheiður, Kristín Á., Guðrún, Þráinn, Kristín L. og Erla. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, þó að grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.