Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Fyrir krakka er þetta beinlínis
hættulegt því að þær eru mjög
herskáar,“ segir Þórsteinn Ragnars-
son, forstjóri Kirkjugarðanna, og
vísar í máli sínu til þess ófremdar-
ástands sem nú er uppi í duftgarð-
inum í Sóllandi austan við Öskjuhlíð.
Hefur þar stór hópur fugla,
einkum gæsir, lagt svæðið undir sig
og heldur til við leiðin í garðinum.
Þar vappar fuglinn um ásamt ófleyg-
um ungum sínum og étur gras. Líkt
og flestir aðrir fuglar ver gæsin
unga sína af miklum krafti og eiga
því þeir sem sækja garðinn heim oft
fótum sínum fjör að launa.
„Þetta er orðið mjög mikið
vandamál og eigum við í hreinustu
vandræðum með þessa fugla,“ segir
Þórsteinn og bendir á að búið sé að
setja upp sérstaka fuglafælu við
duftgarðinn sem mynda eigi nokk-
urs konar hljóðgirðingu um svæðið.
Segir Þórsteinn tækið fyrst hafa
verið tekið í notkun í fyrra og virkað
þá vel. Í ár virðist gæsin hins vegar
leiða hljóðfæluna hjá sér með öllu.
„Þær eru bara búnar að venjast
hljóðinu og hafa fært sig upp á skaft-
ið með tilheyrandi sóðaskap,“ segir
hann.
Lætur ekki stugga við sér
Aðspurður segir Þórsteinn
næstu skref að leita á náðir mein-
dýravarna Reykjavíkurborgar. „Ég
vil fá til mín meindýraeyði til þess að
leggja á ráðin um hvað hægt sé að
gera,“ segir hann og heldur áfram:
„Það eru komnar margar kvartanir
undan þessu en við getum ekkert
stuggað við gæsinni með neinum
öðrum hætti en nú þegar er gert.“
Guðmundur Björnsson,
rekstrarstjóri meindýravarna
Reykjavíkurborgar, segir dýrafælu
á borð við þá sem notast er við í duft-
garðinum oft vera skammgóðan
vermi.
Verpti undir hljóðfælunni
„Það er mjög gjarnan þannig
með öll hljóð sem notuð eru til að
fæla dýr. Þau virka bara í ákveðinn
tíma en svo hættir þetta að virka.“
Spurður hvort hann viti fleiri
dæmi þess að óæskilegir fuglar
hunsi hljóðfælu kveður Guðmundur
já við. „Þetta var sett upp við flug-
völl og menn hættu að trúa á tækið
þegar gæsin verpti undir því.“
Að sögn Guðmundar er ekki
með öllu ljóst hvað hægt er að gera í
stöðunni. „Þetta er mjög viðkvæmt
svæði og menn væntanlega ekki til-
búnir að gera hvað sem er.“
Meindýraeyðir verði
sendur í duftgarðinn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gæsaskítur Fuglarnir í duftgarðinum í Sóllandi valda mörgum ama enda er sóðalegt um að litast eftir þá.
Hópur gæsa hefur lagt undir sig duftgarðinn í SóllandiParatilboð á
Albir Playa
10. og 17. júlí
Verð frá
*á mann m.v. 2 fullorðna í vikuferð á Albir Playa hótelinu
með hálfu fæði.
99.900 kr.*
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri hefur formlega óskað eftir
viðræðum við Illuga Gunnarsson
menntamálaráðherra um hug-
myndir um aukinn sveigjanleika
á milli skólastiga. Í bréfi til
menntamálaráðherra kemur
fram að hugmyndirnar snúist um
að kanna kosti þess og galla að
flytja samræmd próf 10. bekkjar
til vors í 9. bekk, og gefa þeim
nemendum sem það kjósa kost á
að hefja fyrr nám í framhalds-
skóla. Útskrift geti orðið að vori
í 9. bekk eða um áramót í 10.
bekk.
Borgin reki framhaldsskóla
Í öðru lagi að hleypt verði af
stokkunum verkefni, í borginni í
heild eða einstökum hverfum,
þar sem nemendum á efstu árum
grunnskóla verði gert ennþá auð-
veldara að ljúka skilgreindum
áföngum fyrsta árs í framhalds-
skólanámi samhliða námi í ní-
unda og tíunda bekk.
Í þriðja lagi að efnt verði til
viðræðna um rekstur Reykjavík-
urborgar á einum eða fleiri
framhaldsskólum í tilraunaskyni,
til að auka samfellu í námi og
vinna að ofangreindum
áherslum.
Illugi Gunnarsson mennta-
málaráðherra segir að þegar hafi
farið fram óformlegar viðræður
og að málið hafi verið í skoðun í
ráðuneytinu um hríð. Hann segir
að ágætur samhljómur sé á milli
borgarinnar og ráðuneytisins um
aukinn sveigjanleika.
„Ég fagna þessum áhuga.
Reykjavík er stærsta sveitarfé-
lagið og eins hefur komið fram
áhugi hjá öðrum sveitarfélögum
um að þau komi að rekstri fram-
haldsskóla,“ segir Illugi.
Ekki til þess að spara krónur
Spurður segir hann að tillög-
urnar séu ekki hugsaðar til þess
að spara peninga. „Ég held að í
svona málum eigi menn ekki
endilega að horfa á að hér
sparist einhverjar krónur og aur-
ar. Ég held að það sem sett sé í
menntakerfið sé fjárfesting sem
skilar sér margfalt út í sam-
félagið. Þarna er eingöngu verið
að hugsa um umbætur í kerfinu
sem leiði til þess að hægt verði
að sinna ólíkum þörfum nem-
enda,“ segir Illugi.
Nemendur fyrr í framhaldsskóla
Borgarstjóri vill viðræður um meiri sveigjanleika í námi Þegar verið rætt
óformlega, segir menntamálaráðherra Hægt verði að sinna ólíkum þörfum
Dagur B.
Eggertsson
Illugi
Gunnarsson
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samræmd próf Sumum mun gefast
kostur á að sækja framhaldsskóla
að loknum samræmdum prófum.
Dunja Mijatovic,
sérfræðingur í
fjölmiðlalögum og
fulltrúi Öryggis-
og samvinnustofn-
unar Evrópu á
sviði sjálfstæðis
fjölmiðla, fagnaði
í gær ákvörðun
Alþingis um að
nema ákvæði um
guðlast úr hegningarlögum.
Mijatovic, sem er um þessar
mundir í opinberum erindagjörðum
í Sarajevo, höfuðborg Bosníu og
Hersegóvínu, sagði lög sem kveða á
um bann gegn guðlasti ekki sam-
rýmast frjálsri tjáningu fólks og trú-
frelsi þess.
„Lýðræði gerir kröfu um að hægt
sé að ræða allar hugmyndir á op-
inberum vettvangi og að hægt sé að
gagnrýna allar hugmyndir og trúar-
kenningar þó svo að umræða af
þeim toga kunni að vera stuðandi,
truflandi eða móðgandi,“ sagði Mi-
jatovic. Hún bætti við að Ísland og
Noregur hefðu rutt veginn og sett
fordæmi fyrir aðildarríki Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu.
ash@mbl.is
Fagnar ákvörðun
þingsins um afnám
banns við guðlasti
Dunja Mijatovic
Davíð Þór Björgvinsson, settur sak-
sóknari í Guðmundar- og Geirfinns-
málinu svonefnda, telur að rök séu
fyrir endurupptöku á máli Sævars
Ciesielski, Tryggva Rúnars Leifs-
sonar og Alberts Klahn Skaftasonar.
Áður hafði hann mælt með því að
mál Guðjóns Skarphéðinssonar yrði
tekið upp aftur.
Lúðvík Bergvinsson, lögmaður
Tryggva Rúnars Leifssonar og af-
komenda Sævars Ciesielski í
tengslum við endurupptöku mála
þeirra, sagði í samtali við mbl.is í
gær það vera mjög ánægjulegt og
mikilvægt að hægt yrði að taka þessi
mál upp að nýju.
„Tilraunir hafa verið gerðar til
þess, en ný gögn og sjónarmið hafa
verið lögð fram og á það er fallist af
hálfu setts ríkissaksóknara. Bæði
dómfelldi og saksóknari leggja til
endurupptöku. Það er þá endurupp-
tökunefndar að ákveða hvað á að
gera,“ segir Lúðvík.
Hafþór Sævarsson, sonur Sævars
Ciesielski, var að vonum ánægður
með niðurstöðuna en sagðist þó ekki
hafa gert ráð fyrir öðru en að nið-
urstaðan yrði þessi.
Það er löngu tímabært að afmá
þennan smánarblett af íslenska rétt-
arkerfinu,“ sagði Hafþór í samtali
við mbl.is í gær en hann hefur barist
fyrir því að málið verði tekið upp aft-
ur frá því Sævar lést árið 2011.
gunnardofri@mbl.is
Rök fyrir endur-
upptöku málsins
Guðmundar- og Geirfinnsmáli ólokið
Morgunblaðið/Rósa Braga
Skýrsla Starfshópur kynnti niður-
stöður skýrslu sinnar árið 2013.