Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tilboðsverð frá19.950 kr.
Flugsæti aðra leiðina. Hótel og íbúðir í
Benidorm, Albir eða Calpe.
Nánar á vita.is
Alicante
Flug tvisvar í viku út október
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444
Ekki eru heimildir til um annað en að þessi ungi
maður hafi verið af fúsum og frjálsum vilja í
gapastokknum á Gásum en á Miðaldadögum eru
til sýnis ýmsar minjar um mannlíf og verslun á
þessum helsta verslunarstað Norðurlands á mið-
öldum. Dagarnir hafa verið árlegur viðburður á
Gásum síðan 2004 og eru því haldnir í tólfta sinn
nú. Hvergi hefur fundist jafnmikið magn minja
um verslunarhætti í landinu á öldum áður.
Hart tekið á óþekkt á Miðaldadögum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Miðaldadagar á Gásum við Eyjafjörð
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Heyskapur er ekki enn hafinn víða á
norðaustanverðu landinu. Sigríður
Jóhannesdóttir, bóndi á Gunnars-
stöðum í Þistilfirði, sagði í gærkvöld
að hún hefði ekki orðið vör við að
neinn væri farinn að slá þar í sveit.
„Við vorum lengi með fé á túnun-
um þetta árið. Afrétturinn tók svo
seint við sér. Við tókum síðasta féð
úr túnunum í lok júní, alveg hálfum
mánuði seinna en í fyrra. Svo hefur
sprottið hægt í þessum kulda sem
hefur verið. En við höfum haft næga
vætu, hana hefur ekki vantað,“ sagði
Sigríður. Hún sagði að venjulega
hefði heyskapur hjá þeim hafist viku
til tíu daga af júlí. Það er því komið
vel viku fram yfir þann tíma nú.
Böðvar Pétursson, bóndi í Bald-
ursheimi í Mývatnssveit, sagði að
þar væri ekki byrjað að heyja.
„Það er svo sem komið gras á
hluta af túnunum. Það er ágæt
spretta þótt það sé ekki mikill hiti.
Það var þurrt í dag, fyrsti þurri dag-
urinn í nær hálfan mánuð,“ sagði
Böðvar í gærkvöld. „Við fórum ekki
að slá fyrir þennan eina dag. Nú fer
okkur að vanta heyskaparveður.“
Hann sagði að það hefði dregist
óvenju lengi að byrja slátt, a.m.k.
miðað við það sem hefur þekkst á
þessari öld. Undanfarin ár hefur
sláttur byrjað 5.-10. júlí. Böðvar
sagði að heyskapur hefði byrjað
mjög seint t.d. sumurin 1993 og 1995.
Þetta væri því ekki einsdæmi.
„Menn eru misjafnlega staddir
niður um Aðaldal og Reykjadal.
Sumir eru búnir með fyrri slátt en
aðrir ekki byrjaðir.“ Böðvar sagði að
góður ágúst gæti bjargað miklu.
„Menn eru ágætlega birgir með hey
frá fyrra ári og þurfa engan methey-
skap í ár til að eiga nóg fóður.“
Sigurgeir B. Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri Búnaðarsambands
Eyjafjarðar, sagði útlit fyrir að hey-
skapur yrði með minna móti í sumar,
nema það rættist úr veðrinu. „Þetta
er seinna á ferðinni og minna heldur
en verið hefur. Þetta lítur ekki sér-
staklega vel út,“ sagði Sigurgeir.
Sláttur hófst síðar í Eyjafirði nú en
undanfarin ár sem hafa verið hlý.
Sigurgeir sagði að margir bændur í
Eyjafirði hefðu náð þokkalegum
fyrri slætti. Ástandið væri verra eft-
ir því sem austar drægi, t.d. austur í
Þistilfirði og á Héraði.
Kornrækt er líka á eftir en seinni
partur sumarsins hefur mikið að
segja fyrir hana. Verði ágúst sólrík-
ur þá getur hún alveg sloppið, að
sögn Sigurgeirs.
Bændur víða ekki byrjaðir að heyja
Kuldi og vætutíð hafa seinkað slætti m.a. í Þistilfirði og Mývatnssveit Útlit er fyrir að hey verði
með minna móti í sumar nema það rætist úr veðrinu Góður ágústmánuður getur bjargað miklu
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þistilfjörður Sigríður Jóhannesdóttir, bóndi á Gunnarsstöðum, á óslegnu
túni. Fénu var beitt lengi á túnin í vor því afrétturinn tók svo seint við sér.
Dregið var í áskrifendahappdrætti
Morgunblaðsins í gær. Upp kom
nafn Hans Herbertssonar fram-
haldsskólakennara og hlaut hann í
vinning glæsibifreið af gerðinni
Mercedes-Benz B Class með fjór-
hjóladrifi og 7Gtronic sjálfskiptingu.
Verðmæti vinningsins er tæpar sjö
milljónir króna.
„Ég varð hissa, eins og eflaust
flestir sem fá svona,“ sagði Hans
þegar hann var spurður hvernig
honum hefði orðið við tilkynninguna
um vinninginn. Hann sagði að það
væri skemmtilegur sumarglaðning-
ur að vinna bílinn. Hans kvaðst ætla
að nota helgina til að hugsa um
hvernig hann hygðist nýta sér vinn-
inginn en hann fær bílinn afhentan
næstkomandi mánudag.
„Mig hefur alltaf dreymt um að
eiga Benz. Kannski er þessi bíll þó í
það minnsta. Við hjónin erum bæði í
golfi og þurfum að koma fyrir tveim-
ur golfkerrum, golfsettum og svona í
bílnum. Við eigum eftir að tala við þá
í Öskju um hvað við gerum.“
Aðspurður kvaðst Hans hafa verið
áskrifandi að Morgunblaðinu í meira
en 40 ár.
Áskrifendahappdrættið var sam-
starfsverkefni Morgunblaðsins og
Bílaumboðsins Öskju ehf., umboðs-
aðila Mercedes-Benz á Íslandi. Jón
Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri
Öskju, ræsti forritið sem dró út nafn
vinningshafans. Honum til aðstoðar
voru Magnús E. Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
Árvakurs hf., útgefanda Morgun-
blaðsins, og Arna Rut Hjartardóttir,
markaðsfulltrúi Öskju.
Framhaldsskólakennari
vann Mercedes-Benz
Morgunblaðið/Kristinn
Happdrættið F.v.: Magnús E. Krist-
jánsson, Jón Trausti Ólafsson og
Anna Rut Hjartardóttir.
Hefur dreymt
um að eiga Benz
Á fimm bensínstöðvum N1 er selt
áfengi. Allar þessar bensínstöðvar
eru einnig veitingastaðir, eins og í
tilfelli Olís, sem var sagt frá í Morg-
unblaðinu í gær, en Olís hefur fengið
vínveitingaleyfi á þremur bens-
ínstöðvum yfir verslunarmannahelg-
ina.
„Við erum með vínveitingaleyfi á
helstu veitingastöðum N1 á lands-
byggðinni,“ segir Guðný Rósa Þor-
varðardóttir, framkvæmdastjóri ein-
staklingssviðs hjá N1, en veitinga-
staðirnir eru allir samtengdir
bensínstöðvum N1. Þessar fimm
bensínstöðvar eru í Borgarnesi,
Staðarskála, á Blönduósi, Egils-
stöðum og á Hvolsvelli. „Við byrj-
uðum að selja léttvín og bjór í Stað-
arskála og á Blönduósi 2008, síðar
bættust Borgarnes og Egilsstaðir
við og nú síðast Hvolsvöllur á síðasta
ári,“ segir Guðný. „Við erum að
koma til móts við óskir okkar við-
skiptavina, ekki síst erlendra ferða-
manna, sem eru vanir að geta fengið
sér léttvín og bjór með mat. Þessar
N1 stöðvar eru allar þjónustustöðv-
ar sem eru einnig veitingastaðir með
vínveitingaleyfi.“
isb@mbl.is
N1 hefur
selt áfengi
frá 2008
Vínveitingaleyfið
tengt veitingasölunni