Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015
Í Svínadal Unga fólkið nýtur þess að leika sér í góða veðrinu og svífur áhyggjulaust í lausu lofti innan afmarkaðs svæðis í þeirri vissu að lenda aftur á sama stað fyrir næsta flug.
RAX
Undanfarið hefur
verið unnið að opnun
nýrrar lækninga- og
heilsumiðstöðvar í Ár-
múla 9 sem hefur hlotið
nafnið Klíníkin Ármúla.
Klíníkin býður upp á
fjölbreytta þjónustu
sem sérstaklega er mið-
uð við þarfir kvenna
vegna þess að þeir
læknar sem valist hafa
til starfa þar, hafa sér-
hæft sig í þeim sjúkdómum sem herja
fyrst og fremst á konur. Engan veg-
inn er þó verið að útiloka karla frá
þjónustunni. Orðið kvennaklíník
kemur upp í hugann sem lýsandi fyrir
þá starfsemi sem farið verður af stað
með.
Kvennaklíník
Hugtakið kvennaklíník hefur víð-
tæka merkingu á alþjóðlegum mæli-
kvarða en getur m.a. þýtt eitt eða allt
af eftirfarandi:
Klíník sem sinnir almennum og
sértækum kvensjúkdómum.
Klíník sem meðhöndlar afleiðingar
erfiðrar meðgöngu kvenna sem þurfa
á aðgerðum eða með-
ferð að halda vegna
þess.
Klíník sem sinnir
vandamálum og sjúk-
dómum í brjóstum
kvenna bæði góðkynja
og illkynja.
Klíník sem sérhæfir
sig í hormónameðferð
kvenna af ýmsum
ástæðum.
Klíník sem býður upp
á fjölbreyttar aðgerðir
lýtalækninga bæði í
lækninga- og fegr-
unarskyni.
Klíník sem er meðvituð um að ein-
kenni sjúkdóma hjá konum og körl-
um eru ekki alltaf eins.
Kvennaklíník býður konum gjarn-
an upp á notalegan samverustað þar
sem hægt er að nálgast léttar veit-
ingar ásamt fræðsluefni um heilsu og
áhugamál kvenna.
Klíníkin Ármúla
Klíníkin Ármúla er 80% í eigu
lækna og hjúkrunarfræðings og 20% í
eigu fjárfesta. Klíníkin er eingöngu
rekstrarfélag sem leigir út aðstöðu til
sérfræðilækna en mun sjá um hjúkr-
unarþjónustu og alla almenna stoð-
þjónustu. Rekstrarfyrirkomulagið
hjá Klíníkinni er sambærilegt rekstr-
arfyrirkomulagi eins og t.d. hjá Orku-
húsinu, Domus Medica, Glæsibæ,
Mjódd og víðar, sem hefur gengið vel
og þykir almennt góð viðbót og nauð-
synleg við þá þjónustu sem hið op-
inbera býður upp á. Læknar sem
starfa á Klíníkinni starfa eftir samn-
ingi við Sjúkratryggingar Íslands og
aðra aðila eftir því sem við á.
Læknar koma víðs vegar að
Óhætt er að fullyrða að reynsla
þeirra lækna sem starfa á Klíníkinni
er alþjóðleg, bæði skurðlækna og
svæfingalækna. Helmingur þeirra
kemur á Klíníkina eftir langa fjarveru
í Bandaríkjunum, Englandi, Dan-
mörku og Svíþjóð, fyrst og fremst
vegna þess að Klíníkin býður upp á
starfsaðstæður sem freista þeirra.
Þjónusta í boði
Í Ármúlanum verður annars vegar
boðið upp á viðtöl við lækna í kven-
sjúkdómum, lýtalækningum, almenn-
um skurðlækningum og brjósta-
skurðlækningum.
Hins vegar verða framkvæmdar
skurðlækningar í ofangreindum sér-
greinum á fjórum skurðstofum á
neðri hæð Klíníkurinnar. Skurðstof-
urnar fjórar eru búnar fullkomnum
tækjum og eru aðstæður þær bestu
sem völ er á í dag. Auk skurðlækna
munu starfa reyndir svæfingalæknar
og skurðhjúkrunarfræðingar á Klí-
níkinni. Fyrst og fremst er um svo-
kallaðar dagskurðaðgerðir að ræða,
þ.e. sjúklingar koma í aðgerð að
morgni og fara heim að kvöldi.
Hjá Klíníkinni verður konum veitt
samfelld og heildstæð þjónusta.
Dæmi: kona sem finnur hnút í brjósti
kemur í myndatöku, fer í skoðun hjá
lækni beint í framhaldi af því og síðan
fær hún tímasetningu á fyrirhugaðri
aðgerð ef við á. Annað dæmi: kona
sem er með legslímuflakk kemur til
kvensjúkdómalæknis sem hefur sér-
þekkingu á þessum sjúkdómi. Áhugi
er á að opna göngudeild fyrir konur
sem þjást af þessum sársaukafulla og
erfiða sjúkdómi. Þriðja dæmið: kona
sem kemur til skurðlæknis af því að
hún þjáist af erfiðleikum við þvaglát
og hægðalosun eftir erfiða með-
göngu. Skurðlæknir sem lengi hefur
sérhæft sig í vandamálum af þessu
tagi mun starfa á Klíníkinni. Fjórða
dæmið: kona sem þjáist af vöðvabólg-
um í hálsi og herðum vegna þungra
brjósta og fer í brjóstaminnkun hjá
lýtalækni.
Víðtæk þjónusta undir sama
þaki
Í Ármúla 9 starfar einnig heima-
þjónusta Sinnum, hjúkrunarþjónusta
Karitas og sjúkrahótel þar sem sjúk-
lingum og aðstandendum býðst að
dvelja, sem kemur sér vel ekki síst
fyrir sjúklinga af landsbyggðinni. Að
auki verður aðgangur að sjúkraþjálf-
un og líkamsrækt í húsinu sem allir
geta notið góðs af. Þessi félög eru
óháð Klíníkinni en starfa undir sama
þaki og bjóða upp á margs konar
samlegðaráhrif.
Það er ljóst að mikilvæg viðbót við
heilbrigðisþjónustuna er í augsýn.
Við bjóðum alla sem eiga erindi í
Klíníkina Ármúla velkomna og mun-
um leggja okkur fram við að uppfylla
þarfir og óskir okkar skjólstæðinga.
Eftir Sigríði
Snæbjörnsdóttur » Óhætt er að fullyrða
að reynsla þeirra
lækna sem starfa á Klín-
íkinni er alþjóðleg, bæði
skurðlækna og svæf-
ingalækna.
Sigríður Snæbjörns-
dóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Tímamót í heilbrigðisþjónustu