Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015 ÞÚNÝTURÞESSAÐMOKA INNKÍLÓMETRUNUMÁCANNONDALE …OGVELURLENGRILEIÐINAHEIM. 529.900,- CAAD86TIAGRA SYNAPSEULTEGRACARBON56CM210.000,- HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 VERSLAÐU Á WWW.GÁP.IS LEIKASÉRUMHELGAR &HJÓLA Í VINNUNAÁVIR KUMDÖGUM! Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Meira úrval Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga PLÍ-SÓL GARDÍNUR Láttu sólina ekki trufla þig í sumar Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ágúst Þór Árnason, brautarstjóri við lagadeild Háskólans á Akureyri, telur liggja í augum uppi að dregið hafi úr stuðningi landsmanna við það að Ís- land gerist aðili að Evrópusamband- inu, í kjölfar þeirra atburða sem átt hafa sér stað í Grikklandi og Evrópu undanfarnar þrjár vikur. Í skoðanakönnun sem MMR gerði í febrúar á þessu ári um afstöðu al- mennings til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið, voru 48,5% and- víg aðild, en 33,3% voru hlynnt. Ágúst Þór sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að það sem hefði gerst í Evrópu, þegar Grikkir voru neyddir til samninga við ESB og evruríkin í síðustu viku, hefði verið lykilskref í þróun Evrópusambandsins, sem margir vildu ugglaust að ekki hefði verið tekið. „Auðvitað var það rætt á sínum tíma, þegar evran var tekin upp, að Grikkland ætti ekki að vera með í myntbandalaginu um evruna. Þá voru m.a. banda- rískir hagfræð- ingar gagnrýndir fyrir kalda peningahyggju og fullyrt í Evrópu að bandarísku hagfræðing- arnir skildu ekki Evrópuhugsjónina. Það er sennilegt að mörgum Evr- ópuþjóðum hafi fundist ótækt að Grikkland, vagga evrópsks lýðræðis, væri ekki með,“ sagði Ágúst Þór, „og það átti ekki síst við um Þjóðverja, sem réðu alltaf ferðinni að stórum hluta.“ Spurður hvaða áhrif hann teldi að atburðirnir í Grikklandi og Evrópu hafi á fylgi almennings á Ís- landi við það að Ísland gangi í Evr- ópusambandið sagði Ágúst Þór: „Um- ræðan um aðild Íslands er ekki dauð, en ég held það sé augljóst, að fylg- ismönnum aðildar Íslands að ESB hafi fækkað eftir það sem gerst hefur í Grikklandi. Afstaða margra þeirra sem eru fylgjandi ESB-aðild, hefur einkennst af nánast trúarlegri sann- færingu, og þeir eru ekki að skipta um skoðun, hvað sem gerst hefur í Grikklandi. En aðrir hafa örugglega breytt um afstöðu og fylgi þeirra við aðild hefur dofnað. Ég held að talsmenn þess að við- ræðunum yrði lokið með samningum sem yrðu svo bornir undir þjóðina, hljóti að fara að átta sig á því að sú krafa hafði ekkert gildi og enga þýð- ingu og var aldrei í boði,“ sagði Ágúst Þór. „Ef við erum eitthvað að færast nær Evrópusambandinu, með einum eða öðrum hætti, þá verðum við að koma á fót einhvers konar rannsókn- arbatteríi, sem þarf að vera eins óháð ríkisvaldinu og mögulegt er. Rann- saka þyrfti hvað möguleg aðild gæti þýtt og reyna að greina hverjar fyr- irsjáanlegar og ófyrirsjáanlegar af- leiðingar yrðu,“ sagði Ágúst Þór. Dregið úr ESB-stuðningi  Ágúst Þór Árnason segir að afstaða ESB-aðildarsinna hafi „einkennst af nánast trúarlegri sannfæringu“  Rannsaka þyrfti hvað möguleg aðild að ESB gæti þýtt Ágúst Þór Árnason AFP Bundestag Þýska þingið samþykkti í gær 3. pakkann til Grikklands. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirritaði í dag kaupsamning við Faxaflóahafnir sf. um kaup á lóðum í Gufunesi, Geldinganesi og Eiðs- vík. Landið í Gufunesi er lóð Áburð- arverksmiðjunnar en lóðirnar í Eiðsvík eru tveir skikar sem liggja að henni. Samanlagt er svæðið 221.472 fermetrar að stærð. Kaup- verðið á því landi í heild er 242,8 milljónir kr. Svæðið í Geldinganesi er 70 hektarar. Með kaupunum nú hefur borgin eignast allt land í nesinu en borgin hafði áður keypt þar land af Faxaflóahöfnum. Kaupverðið er 103,5 milljónir kr. Heildarverð allra skikanna er því 346,3 milljónir kr. Hugmyndasamkeppni Ekki hefur verið tekin ákvörðun um framtíðarnýtingu svæðisins. Borgin hefur efnt til samkeppni um framtíðarskipulag svæðisins og er skilafrestur til 18. ágúst. Sam- kvæmt tilkynningu frá Reykjavík- urborg er tilgangur samkeppninnar að stuðla að góðu heildarskipulagi sem tryggir líflega og skynsamlega nýtingu svæðisins í samræmi við markmið aðalskipulags. Gufunes Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri. Borgin kaupir lóð Áburðarverksmiðjunnar Vísitala leiguverðs á höfuðborg- arsvæðinu var 142,3 stig í júní 2015 og lækkar um 1,9% frá fyrri mán- uði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,4%. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóð- skrár Íslands. Þetta er í fyrsta skipti sem gögn um leiguverð birtast síðan verkfalli lögfræðinga hjá sýslumönnum lauk og birtust því núna gögn fyrir apríl, maí og júní. Í apríl lækkaði vísitala um 0,3%, í maí varð hækkun upp á 1,4% og í júní lækkaði svo um 1,9%, eins og áður sagði. Morgunblaðið birti í gær fréttir um að vísitala fasteignaverðs hefði lækkað um 0,2% í apríl. Að sögn Ásgeirs Jóns- sonar voru mögulegar útskýringar á þeirri lækkun að aukin velta væri á markaði um gæðaminni sérbýli. Athygli vekur að leiguverð fyrir stúdíóíbúðir vestan Kringlumýr- arbrautar hefur aldrei mælst hærra þrátt fyrir fyrrnefnda heild- arlækkun vísitölu. Birtingu vísitöl- unnar er ætlað að varpa ljósi á þró- un leiguverðs. isak@mbl.is Vísitala leiguverðs lækkaði í júní Loftrýmisgæsla Atlantshafsbanda- lagsins við Ísland hefst að nýju fimmtudaginn 23. júlí næstkomandi með komu flugsveitar tékkneska flughersins. Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi, að því er fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar. Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C orrustuþotur. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 25.-29. júlí. Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmis- gæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að þessu verkefni ljúki 27. ágúst en þá kemur til landsins flugsveit danska flughersins. Verk- efnið er framkvæmt af Landhelg- isgæslu Íslands. Tékkar gæta loftrýmisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.