Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015 þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðu í gær að ekki hefðu komið fram nein- ar upplýsingar um að 24 ára maður, sem skaut fjóra sjóliða til bana í Chattanooga í Tennessee í fyrra- dag, hefði tengst hryðjuverka- samtökum. Maðurinn beið bana í árásinni en yfirvöld sögðu að ekki væri enn vitað hvort hann hefði fyr- irfarið sér eða fallið í skotbardaga við lögreglu. Maðurinn fæddist í Kúveit, en var bandarískur ríkis- borgari og stundaði framhalds- skólanám í Chattanooga. Talið er að hann hafi verið einn að verki. Yfirvöld í Tennessee sögðu að fyrir árásina hefði ekkert komið fram sem benti til þess að hætta stafaði af manninum. The New York Times hafði eftir embættis- mönnum að yfirvöld hefðu rann- sakað fyrir mörgum árum hvort faðir árásarmannsins tengdist hryðjuverkasamtökum. Ástæðan var sú að hann hafði styrkt stofnun sem grunuð var um að vera viðriðin hryðjuverkasamtök. Faðirinn var þó ekki ákærður og tekinn af lista yfir menn sem grunaðir voru um að tengjast hryðjuverkastarfsemi. Engin þekkt tengsl við hryðjuverkasamtök AFP Árásin var gerð í herstöð í Chattanooga. FJÓRIR SJÓLIÐAR BIÐU BANA Í SKOTÁRÁS Í TENNESSEE Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þing Þýskalands samþykkti í gær með miklum meirihluta atkvæða að heimila ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara að hefja aftur viðræður við Grikki um að veita þeim ný lán vegna skuldavanda Grikklands. Viðræðurnar voru samþykktar með 439 atkvæðum gegn 119, en 40 sátu hjá, þótt 65 þingmenn í mið- og hægriflokki Merkel, Kristilegum demókrötum, greiddu atkvæði gegn viðræðunum eða sætu hjá. Merkel sagði í ræðu fyrir at- kvæðagreiðsluna að það væri „ábyrgðarleysi“ ef Þjóðverjar og önnur evruríki reyndu ekki til þraut- ar að koma Grikklandi til hjálpar. Hún lýsti viðræðunum um aðstoðina sem „síðustu tilraun“ og sagði að Þjóðverjar gætu ekki horft upp á það að Grikkjum „blæddi út“. Efnahags- hrun í Grikklandi gæti leitt til „glundroða og ofbeldis“. Margir fréttaskýrendur í öðrum löndum hafa gagnrýnt Merkel fyrir að vera of ósveigjanleg og harðdræg í viðræðunum við Grikki og neita að veita þeim ný lán nema þeir fallist á niðurskurð ríkisútgjalda og skatta- hækkanir. Í Þýskalandi hefur hún á hinn bóginn verið gagnrýnd fyrir að hafa sýnt Grikkjum linku með því að samþykkja að nota þýskt skattfé til að veita þeim stór lán sem verði lík- lega aldrei endurgreidd. Skammtímalán samþykkt Þjóðþing átta evruríkja þurfa að samþykkja lánapakkann og stjórnin á Spáni hyggst einnig bera hann undir þing landsins þótt henni beri ekki lagaleg skylda til þess. Þing Austurríkis heimilaði aðstoðina í gær og hún var samþykkt í Finn- landi og Eistlandi í fyrradag og Frakklandi og Grikklandi á miðviku- dag. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær þing Lettlands, Slóvakíu og Spánar greiða atkvæði um málið. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins skýrði frá því í gær að öll aðildarríki þess hefðu samþykkt sjö milljarða evra skammtímalán til Grikklands. Lánið á að gera landinu kleift að greiða næstu afborgun af láni frá Evrópska seðlabankanum á mánudaginn kemur og fleiri afborg- anir á næstu fjórum vikum á meðan gengið er frá endanlegum samningi um lánapakkann. Gert er ráð fyrir að hægt verði að opna gríska banka að nýju á mánudag þar sem Evrópski seðlabankinn hefur samþykkt að veita þeim aukna lausafjáraðstoð. Bankarnir hafa verið lokaðir í tæpar þrjár vikur. Merkel fékk grænt ljós  Þingið samþykkti viðræður við Grikki AFP Á þingi Angela Merkel og Wolfgang Schäuble fjármálaráðherra. Mikil andstaða meðal Finna » Ný skoðanakönnun bendir til þess að 53% Þjóðverja styðji viðræður um nýjan lána- pakka til Grikklands en 42% séu á móti því. » Um 57% Finna eru andvíg frekari fjárhagsaðstoð við Grikkland og aðeins 26% eru hlynnt henni, ef marka má nýja könnun í Finnlandi. 17% höfðu ekki gert upp hug sinn. Madríd. AFP. | Starfsfólk Prado- safnsins í Madríd, stærsta listasafns Spánar, brýnir yfirleitt fyrir gestum að snerta ekki ómetanleg málverkin sem þar eru sýnd. Nú eru þeir aftur á móti hvattir til að þreifa á mynd- unum á sérstakri sýningu sem sett var upp til að gera blindu fólki kleift að njóta meistaraverkanna með snertiskyninu. José Pedro González, 56 ára blind- ur Spánverji, kom á safnið á dögun- um og renndi fingrunum hægt yfir eftirmynd af einu þekktasta verki Diego de Velázquez, fremsta listmál- ara Spánar á 17. öld, Apolló í smiðju Vúlkans. Hann þreifaði á öllum myndfleti málverksins þar sem róm- verski guðinn Apolló ræðir við Vúlk- an, guð smíða og elds. Það er eitt af sex eftirmyndum, sem gerðar voru sérstaklega fyrir sýninguna, af verk- um listmálara á borð við El Greco og Francisco Goya. Þegar eftirmyndirnar voru gerðar var beitt rismyndatækni sem breytir áferð verksins, þannig að það verður upphleypt, til að gera blindu fólki kleift að sjá verkið fyrir sér í hug- anum með því að nota snertiskynið. „Frábær sýning“ Á safninu eru vatnsskálar fyrir blindrahunda og gestirnir geta hlýtt á upplýsingar um hvernig best er að kanna listaverkin með því að snerta þau. González hefur farið nokkrum sinnum á sýninguna frá því að hún var opnuð í janúar. „Þetta er frábær sýning,“ sagði hann. „Hingað til hef- ur eina leiðin, sem blindir hafa haft til að sjá listaverkin fyrir sér, falist í því að fá lýsingar á þeim frá öðrum.“ Listasöfn í öðrum löndum hafa beitt sömu tækni til að gera eftir- myndir af málverkum fyrir blinda en þær hafa verið minni og aðeins í svarthvítu, að sögn sýningarstjórans Fernandos Perez Sues. Í eftir- myndunum í Prado-safninu eru hlut- föllin þau sömu og í frummyndunum, en þær eru hafðar smærri til að auð- velda gestunum að snerta allan myndflötinn. Sýningunni lýkur 15. október og verkin verða síðan sýnd í fleiri spænskum borgum. AFP Snerting José Pedro González þreifar á Mónu Lísu, málverki ítalska listmálarans Leonardos da Vinci. Fá að njóta listaverk- anna með snertingu  Sýning fyrir blinda gesti á Prado-safninu í Madríd David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að hefja þyrfti „ýtarlega umræðu“ um hvernig bregðast ætti við fréttum um að árásum máva á fólk og gælu- dýr hefði fjölgað. Forsætisráðherrann sagði þetta í útvarpsviðtali eftir að breskir fjöl- miðlar skýrðu frá því að mávar hefðu drepið að minnsta kosti tvo hunda í Cornwall, auk þess sem fuglarnir hefðu valdið meiðslum á fólki og stolið matvælum, að sögn fréttavefjar The Telegraph. Þar er tekið fram að stjórn Camerons hafði ákveðið að fella niður fjár- veitingu til rann- sókna á árásar- gjörnum mávum vegna þess að þær væru ekki í forgangi. Came- ron tók fram að mávarnir væru verndaðir en sagði að ljóst væri að eitthvað þyrfti að gera í málinu. ÁRÁSUM MÁVA Á FÓLK FJÖLGAR Í BRETLANDI Vill umræðu um árásargjarna máva Allir þurfa eitt- hvað að éta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.