Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015 Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Gestir staðarins vita að Kex er lif- andi hostel. Þetta er ekki bara dvalarstaður, það er alltaf eitthvað í gangi,“ segir Benedikt Reynisson, tónlistar- og kynningarstjóri Kex hostels en tónleikahátíðin KEX- Port fer fram í fjórða skiptið í portinu á bak við hostelið í dag. Emmsje Gauti lokar kvöldinu „Þetta verður með sama sniði og síðustu ár, tólf tíma tónleikar frá hádegi til miðnættis. Þarna verða tólf fjölbreytt atriði úr næstum því öllum geirum. Þarna verður til dæmis að finna hip hop, rokk, og raftónlist. Tónleikahátíðin er haldin til heiðurs útvarpsstöðinni KEXP sem er með aðsetur í Seattle í Bandaríkjunum. Útvarpsstöðin er búin að vinna mikið og gott starf fyrir íslenska tónlist í Bandaríkj- unum sem og í raun víða um heim í gegnum vefsíðuna youtube. Hún er búin að vera að senda beint út frá Kex í tengslum við Iceland Airwa- ves frá árinu 2011. Með þessum viðburði er í raun bara verið að þakka KEXP fyrir það sem stöðin hefur gert fyrir Kex og íslenska tónlist í heild,“ segir Benedikt. Tónleikahátíðinni verður streymt beint frá þremur stöðum á alnet- inu, KEXP síðunni kexp.org, ís- lensku síðunni kexland.is og Music- Reach.tv. „Þetta er fjórða skiptið sem við- burðurinn er haldinn. Það er alltaf stefnt á að hafa fjölbreytta dagskrá og reynt að fá rjómann af því sem er að gerast í íslensku tónlistarflór- unni. Það hefur tekist einstaklega vel upp í ár og frábærir listamenn að koma fram. Sóley er náttúrlega frábær og svo verða þarna Teitur Magnússon, Futuregrapher, Gísli Pálmi og Agent Fresco svo nokkrir séu nefndir. Svo er Emmsje Gauti búinn að vera á góðu flugi þetta ár- ið, hann lokar hátíðinni í ár. Hann er búinn að eiga nokkra frábæra tónleika í ár og það var til að mynda talað um að hann hefði átt hátíðina Aldrei fór ég suður,“ segir hann. Hægt að streyma á netinu Meðal annarra listamanna sem koma fram á KEXPort í ár má nefna Kæluna Miklu, Markús & the Diversion Sessions og Valdi- mar. Benedikt segir von á fjölda gesta, í raun fleiri en staðurinn tekur. „Það er frábær veðurspá og það eru hátt í þrjú þúsund og fimm- hundruð einstaklingar búnir að melda sig á facebook, við erum því að búast við dágóðum fjölda. Það er samt ljóst að við berum ekki þrjú þúsund og fimm hundruð manns í einu. Við eigum þó von á því að það verði þarna renningur allan daginn. Tónleikarnir eru nátt- úrlega í portinu og það er ágætis svæði þarna í kring sem hægt er að standa á og hlýða á tónlistina. Ef maður kemst ekki að þá getur maður engu að síður streymt þessu á netinu eins og áður segir,“ segir hann. Þess má geta að KEXP mun senda út frá Iceland Airwaves í ár líkt og síðustu ár. „Það er mikill kærleikur á milli KEXP og Kex hostels,“ segir Benedikt að lokum. Mikill kærleikur milli KEXP og Kex  Tónleikahátíðin KEXPort haldin í fjórða skiptið við Kex hostel í dag Morgunblaðið/Eggert Tónleikahátíð Portið á bak við Kex hostel verður eflaust troðið í dag en auk tónlistarinnar er von á frábæru veðri. 12:00 Sóley 13:00 Teitur Magnússon 14:00 Kælan Mikla 15:00 Futuregrapher 16:00 Markús & the Diversion Session 17:00 Valdimar 18:00 Rökkurró 19:00 Muck 20:00 Gísli Pálmi 21:00 DJ Yamaho 22:00 Agent Fresco 23:00 Emmsje Gauti Dagskrá KEXPort Rokk Muck spilar harðkjarna rokk en sveitin stígur á svið klukkan 19. Lok Emmsje Gauti lýkur KEXPort. Kraftur Agent Fresco spila kl. 22. Rapp Gísli Pálmi byrjar kl. 20. Pönk Kælan stígur á svið kl. 14.Upphaf Sóley byrjar dagskrána. Söfn • Setur • Sýningar Sunnudagur 19. júlí: Tveir fyrir einn af aðgangseyri Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal Fólkið í bænum á Veggnum Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horninu Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Að lesa blóm á þessum undarlega stað á Torgi Hið íslenska biblíufélag 200 ára á 3. hæð Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð og kaffihús Nesstofa við Seltjörn: Sýningin Nesstofa-Hús og saga er opin þriðjudaga-sunnudaga frá 13-17 Listasafn Reykjanesbæjar Huldufley, skipa- og bátamyndir Kjarvals „Klaustursaumur og Filmuprjón“ Textíll í höndum kvenna. Byggðasafn Reykjanesbæjar Konur í sögum bæjarins. Brot úr sagnaþáttum Mörtu Valgerðar. Bátasafn Gríms Karlssonar 6. júní – 23. ágúst Opið alla daga 12.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS SAGA - ÞEGAR MYNDIR TALA 22.5. - 6.9. 2015 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst 2015 Sumartónleikar - þriðjudag kl. 20.30 - Pamela De Sensi, flauta og Júlíana Rún Indriðadóttir, píanó Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015 VATNSLITASMIÐJA kl. 14-15. Tilkynnið þátttöku í síma 515 9600 Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Enginn staður – íslenskt landslag Íslensk náttúra séð með augum átta samtímaljósmyndara. Keramik –úr safneign Opið 12-17, fim. 12-21 lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Veitingahúsi Kapers Hádegismatur, kaffi og meðlæti Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands SAFNAHÚSIÐ Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið daglega frá kl. 10-17. Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Opið daglega frá 10-17 GEYMILEGIR HLUTIR Að safna í söguna Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.