Morgunblaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdastjórinn Hrönn hefur stundum þurft að berjast fyrir tilvist eina kvikmyndamenningarhúss landsins.
myndagerð, söðlaði um og hóf nám í
alþjóðastjórnmálum með kvikmynda-
gerð sem aukafag.“
Sá tilvonandi í næsta húsi
Hrönn var varla búin að tylla niður
tám í Brooklyn þegar hún kynntist
tilvonandi eiginmanni sínum, Steven
Reid Meyers, skólafélaga vinar síns,
Þorgeirs Guðmundssonar, í Col-
umbia-háskólanum í New York.
„Toggi hafði lofað að lána mér
myndavél sem hann átti með vini sín-
um. Þegar ég síðan bað hann um vél-
ina í tölvupósti sendi hann skeytið
áfram til þessa vinar síns, sem reynd-
ist vera Steven og bjó steinsnar frá
íbúðinni minni í Brooklyn,“ segir
Hrönn og bætir við að hún hafi
MJÖG oft þurft að nota þessa vél
næstu vikurnar.
Samt var aldrei meiningin hjá
henni að eignast útlenskan mann.
„En svo fannst mér auðvitað gegna
allt öðru máli þegar í ljós kom að
hann hafði tvisvar komið til Íslands,
þekkti marga Íslendinga og ég gat
meira að segja talað við hann um
Rúnar Júl.,“ segir hún.
Þau rugluðu fljótlega saman reyt-
um og fóru að pæla í hvar þau ætluðu
að búa í framtíðinni. Hrönn lauk námi
vorið 2006, vann á börum hér og þar á
Manhattan og rakaði að eigin sögn
inn seðlum. „Mér fannst fráhrindandi
hugmynd að verða millistéttarmann-
eskja í bandarískri stórborg. Lífið
þar er alltaf eins, hvort sem maður er
tvítugur eða sextugur. Allir vinir okk-
ar í New York leigja og eiga hvorki
börn, hús, bíl né kött. Þeim þykir
gríðarleg ákvörðun að eignast barn,
en fá sér kannski smáhund.“
Öfugt við þau Steven sem áttu von
á barni 2007. Þótt þau væru ekki þá
staðráðin í að búa á Íslandi, komu þau
heim, eignuðust Nínu Þyri í lok árs-
ins og keyptu sér íbúð. „Korteri síðar
fór landið á hausinn og við urðum hér
föst. Ég vann m.a. stuttlega hjá 365
miðlum, í Eymundsson og að lista-
verkefninu Gyðjan í vélinni fyrir
Listahátíð Reykjavíkur. Steven hefur
kennt við Kvikmyndaskóla Íslands
frá því við fluttum, og rekur núna eig-
ið fyrirtæki, Reykjavík Film Aca-
demy, ásamt Togga, og er ráðgjafi
hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands.“
Siðameistari í kröppum dansi
Innan tíðar fór Hrönn að svipast
um eftir föstu starfi. Þegar sendiráð
Bandaríkjanna auglýsti eftir siða-
meistara 2008 fannst henni liggja
beint við að sækja um, enda með
haldgóða þekkingu á bandarísku
samfélagi og alþjóðastjórnmálum
sem og viðburðastjórnun. „Ég var
ráðin og send í þjálfun til Washington
DC. Eins og starfsheitið gefur til
kynna felst starfið í að fylgja eftir að
allar venjur og reglur séu í heiðri
hafðar samkvæmt bæði íslenskum og
alþjóðlegum stöðlum varðandi bréfa-
skriftir, samúðarkveðjur, boð, borð-
hald, boðslista og sitt hvað fleira.
Siðameistari heldur utan um og
skipuleggur viðburði á vegum sendi-
ráðsins, raðar til borðs og þess hátt-
ar. Stundum þarf hann að setja sam-
an til borðs fólk sem hann veit að
hatar hvað annað. Þá getur komið í
hlut siðameistara að vera málamiðlari
eða bara stilla upp stórri blóma-
skreytingu.“
Efalítið hefur Hrönn haft ráð undir
rifi hverju í starfi siðameistara. Hún
lenti þó í vanda þegar Julian Ass-
ange, stofnandi WikiLeaks, kom í boð
sendiráðsins, sem maki ónefnds þing-
manns – sem sjálfur mætti ekki. „Ég
kunni ekki við annað en að hleypa
honum inn. Mér fannst þetta vand-
ræðalegt og ímyndaði mér að allir
héldu að hann væri í slagtogi með
mér. Svo fannst mér enn pínlegra
þegar hann mætti nokkrum dögum
seinna í jólaföndrið af því hann hafði
gleymt frakkanum sínum.“
Eftir að WikiLeaks lak skjölunum
um stríðsreksturinn í Írak, viður-
kennir Hrönn að um stund hafi
hvarflað að sér að Assange hefði í
heimsókninni komið fyrir tölvubúnaði
í sendiráðinu. „Og ég væri þá sam-
sek,“ segir hún hlæjandi.
Áhyggjurnar íþyngdu henni þó
ekki meira en svo að hún stein-
gleymdi þeim í fæðingarorlofi 2010
þegar Úrsúla Sigrún leit dagsins ljós.
Á heimavelli
Þrátt fyrir ánægjuleg ár sem siða-
meistari kveðst Hrönn ekki hafa get-
að hugsað sér að vera búrókrati í al-
þjóðasamskiptum til frambúðar.
„Bandaríkin eru annað mesta skrif-
ræðisríki í heimi á eftir Kína. Ég var
orðin þreytt á hvað allt var þungt í
vöfum. Mig langaði að vinna í frjórra
og meira skapandi umhverfi og sótti
því um auglýsta stöðu framkvæmda-
stjóra Heimilis kvikmyndanna. Og
hér er ég enn. Ásamt því að sinna
þremur dætrum, en sú yngsta, Mía
Margrét, er tæplega ársgömul.“
Ein spurning í lokin – hvað ef dæt-
urnar vilja taka þátt í fegurðar-
samkeppni?
„Dætur mínar mega gera það sem
þær vilja þegar þær eru orðnar stór-
ar. Ef þær færu í fitness eða fegurð-
arkeppni liði mér þó örugglega svipað
og lögfræðingi í Garðabænum sem á
barn í pönkhljómsveit og býr í komm-
únu.“ vjon@mbl.is
Ungfrú Ísland Hrönn var í 3. sæti,
enda passaði hún inn í staðlaðar
mælieiningar um hæð og þyngd.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015
Árið 2000, á ári
drekans (2000),
fékk Hrönn þá
flugu í höfuðið að
gera heimildar-
mynd um fegurð-
arsamkeppni. Hún
hafði velt fyrir sér
hvað fólk gerði
sem tæki þátt í
slíkri keppni, þ.e.
hvernig það færi
að því að „keppa“
í fegurð. Til þess
að komast að því
af eigin raun
skráði hún sig í
fegurðarsam-
keppnina Unfrú Ís-
land.is og tók
fljótlega stefnuna
á sigur – því eins
og hún sagði sjálf:
„Aðalatriðið er
ekki að vera með,
heldur að vinna.“
Í skóm drekans
vann Edduverð-
launin árið 2002
sem besta
heimildarmynd
ársins.
Heimildarmynd ársins 2002
Í SKÓM DREKANS
Vestfirðingar og nærsveitungar full-
yrða að þeir sem einu sinni mæti á
Ögurballið geti ekki hætt og mæti
aftur og aftur, ár eftir ár. Þetta forn-
fræga ball hafði legið niðri um skeið
þegar það var endurvakið 1998 og
verður það haldið í kvöld, 18. júlí, í
samkomuhúsinu Ögri í Ísafjarðar-
djúpi. Ef að líkum lætur verður fjörið
ekki minna en undanfarin ár.
Þórunn og Halli leika fyrir dansi og
lofað er góðri stemningu sem ómar
yfir Djúpið sem og í minningu sér-
hvers manns um langan tíma.
Þegar hlé verður á dansinum er
gestum boðið upp á rabarbaragraut
með rjóma eins og löng hefð er fyrir.
Grauturinn mun sérstaklega vera
framreiddur til að tryggja að gestir
sem margir hverjir koma langt að
hafi næga orku til að koma sér heim
eftir ballið.
Andlit Ögurballsins 2015 er Herdís
Sigurbergsdóttir.
Næg tjaldstæði eru á staðnum, en
einnig er hægt að gista á Heydal og
Reykjanesi. Aldurstakmark á dans-
leikinn er 18 ár og allur ágóði rennur
óskiptur til viðhalds og uppbygg-
ingar samkomuhússins í Ögri sem er
gamalt ungmannafélagshús, byggt
1926.
Ögurball 2015
Sveitaball Allur ágóði rennur til viðhalds og uppbyggingar samkomuhússins.
Boðið upp á rabarbaragraut
á elsta sveitaballi Vestfjarða
Mán. - fim. kl. 09-18 - Föstud. kl. 09-17
Lokað á laugardögum í sumarÞITTERVALIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,FRAMHLIÐUM,
KLÆÐNINGUMOGEININGUM
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
HÁGÆÐADANSKAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
15ÁRA
STOFNAÐ2000