Morgunblaðið - 18.07.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2015
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa
samþykkt til auglýsingar tillögu að
nýju deiliskipulagi fyrir Barónsreit
og Laugavegsreit í miðborginni.
Áformað er að byggja upp reitina
á næstu fjórum árum. Fjöldi íbúða
er óráðinn en heimilt er að byggja
allt að 220 íbúðir á reitunum.
Skipulag Barónsreits hefur
breyst mikið og er nú gert ráð fyrir
einum 16 hæða íbúðaturni við Skúla-
götuna en ekki þremur 15 hæða eins
og áður. Þá verður hætt við að rífa
hús sem nú hýsir KEX hostel sem
og fleiri hús sem víkja áttu fyrir ný-
byggingum á reitunum tveimur.
Á milli þessara þriggja turna áttu
að vera 6 hæða háhýsi og hefur jafn-
framt verið hætt við þau.
Gömul hús með inngörðum
Örn Tryggvi Johnsen, verkefna-
og rekstrarstjóri hjá ÞG Verktök-
um, segir skipulag Laugavegsreits-
ins líka hafa breyst. Þar sé nú
áformað að verði lítið þorp gamalla
húsa með inngörðum og stígum.
Hætt er við að reisa verslunar-
miðstöð á svæðinu en á þensluár-
unum fyrir hrun voru uppi hug-
myndir um stórt verslunarhúsnæði
á reitnum, sem sneri að Laugavegi í
suðri og að Hverfisgötu í norðri.
Eins og sjá má á myndinni vinstra
megin hér fyrir ofan verða viss
kaflaskil á austari hluta Laugavegs-
reitsins, það er þeim hluta sem er
fjær á myndinni, með því að þar rís
stórhýsi á lóð sem nú er bílastæði.
Á jarðhæð verður þjónusta en
íbúðir á efri hæðum. Bílastæði verða
í kjallara undir húsinu, sem og undir
öðru fjölbýli á reitunum.
Sunnan við þessa lóð er stórhýsið
Laugavegur 77 sem margir þekkja
sem fyrrverandi útibú Landsbank-
ans.
Fram hefur komið í kynningarefni
frá Reykjavíkurborg að Upphaf
fasteignafélag áformi að byggja fjöl-
býlishús á þessari lóð. Upphaf hefur
sama heimilisfang og rekstrar-
félagið GAMMA. Þar á bæ var vísað
á fulltrúa SA verks en hann svaraði
ekki skilaboðum síðdegis í gær.
Laugavegur 73 verður fluttur
Vestur af Laugavegi 77 verða
talsverðar breytingar. Á Laugavegi
65, sem er á horni Vitastígs, stendur
til að reisa viðbyggingu sem gömul
teikning er til af eftir Guðmund H.
Þorláksson. Þá verður heimilt að
hækka húsin Laugavegur 65-67. Á
Laugavegi 73 er nú veitingahús. Það
hús verður flutt á lóðina Hverfisgata
86, sem verður tvískipt lóð. Þá verð-
ur húsið Hverfisgata 92 flutt á lóð
sem nú er merkt Hverfisgata 88.
Hverfisgata 92 verður áfram á sama
stað. Munu þessi þrjú hús, gömlu
húsin við Vitastíg og húsin Lauga-
vegur 65-69 mynda „Vitaþorpið“.
Örn Tryggvi segir Halldór Eiríks-
son, arkitekt hjá Tark, og sam-
starfsmenn hans hafa unnið skipu-
lagstillögurnar fyrir hönd ÞG Verk.
Mikil ánægja sé með Laugaveg-
stillöguna.
„Það þykir gott við Laugavegs-
tillöguna að í henni er lögð mikil
áhersla á verndun gamalla húsa.
Það er mikil ánægja með þá tillögu
hjá Minjastofnun og öllum sem að
henni hafa komið. Þarna er nánast
verið að byggja upp nýtt Grjótaþorp
sem hefur vinnuheitið Vitaþorp, með
tilflutningi gamalla húsa og upp-
byggingu nýrra í þeim skala að það
passi við gömlu byggðina.“
Félagið Rauðsvík á byggingar-
lóðir á Barónsreit. Það er tengt
verktakafyrirtækinu ÞG verk. Arcus
á helmingshlut í félaginu Rauðsvík.
Örn Tryggvi segir að ef allt geng-
ur að óskum verði deiliskipulagið
samþykkt í byrjun árs 2016. Von-
andi verði hægt að hefja fram-
kvæmdir upp úr því. Ef allt gangi
upp geti framkvæmdum við reitina
verið lokið í árslok 2019. Samkvæmt
skipulaginu er heimilt að byggja 70
til 120 íbúðir á Barónsreit. Heimildir
á Laugavegsreitnum eru ögn víð-
tækari. Þar er gert ráð fyrir 18 til
liðlega 100 íbúðum. Örn Tryggvi
tekur að lokum fram að 5% íbúð-
anna verði félagslegar íbúðir, 10% í
langtímaleigu.
Teikning/Tark arkitektar
Tveir reitir Hverfisgatan skilur að Barónsreitinn (til vinstri á myndinni) og Laugavegsreitinn.
Gjörbreytir gömlum borgarhluta
Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir nýjum 16 hæða turni við Skúlagötu og nýjum húsum á Barónsreit
Á Laugavegsreit verða hús færð til í nýju „Vitaþorpi“ Stórhýsi rís norðan við Laugaveg 77
Teikning/Tark arkitektar
Nýr turn við Skúlagötuna Fyrirhugaður 16 hæða turn er lengst til hægri á teikningunni.
Morgunblaðið/Kristinn
Bílastæði víkur Á þessari lóð mun rísa fjölbýlishús með þjónustu á 1. hæð.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Vandaður þýskur gæðafatnaður á
frábæru verði!
St. 36–42,5
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
· Opið kl. 10–15 í dag ·
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
UTSALA
UTSALA
UTSALA
FRANK LYMAN GLÆSIKJÓLAR
STÓRÚTSALA 40–50% AFSL.
Skoðið laxdal.is/kjólar