Fréttablaðið - 29.04.2016, Síða 4
www.apotekarinn.is
- lægra verð
NICOTINELL Afslátturinn gildir af:· 204 stk. pökkum· Öllum bragðtegundum
· Öllum styrkleikum
15%AFSLÁTTUR
Nicotinell-204-15%-5x10-apotekarinn copy.pdf 1 15/03/16 15:11
SAMFÉLAG Herdís Storgaard, hjúkr-
unarfræðingur og forstöðumaður
Miðstöðvar slysavarna barna, er
farin að flytja út þekkingu á sviði
öryggis barna. Fjöldi gesta víðsvegar
að úr heiminum hefur heimsótt mið-
stöðina og sjálf hefur hún farið víða
til að veita faglega ráðgjöf. Herdís
var á dögunum að koma úr fimmtu
fræðsluferð sinni til Rúmeníu.
„Sem aðildarríki að Evrópusam-
bandinu þarf Rúmenía að uppfylla
ýmsar kröfur og hefur fengið veglega
styrki til þess. Sameiginlegt verkefni
Íslands, Noregs og Liechtenstein
styrkir lönd sem eru að taka á sínum
málum með allt sem snýr að fólki og
var mér boðið að kynna mitt verk-
efni og starf til fjölda ára. Markmiðið
er að auka öryggi í öllum grunn-
skólum Rúmeníu,“ greinir Herdís frá.
Yfirvöld í Brasov ákváðu að gera
einn grunnskóla borgarinnar að
fyrirmyndarskóla varðandi öryggi
barna sem starfsmenn annarra
grunnskóla landsins myndu læra
af. „Ég þjálfaði alla kennarana
þar og leiðbeinendur sem gætu
haldið þjálfuninni áfram fyrir aðra
skóla. Ég gerði verkferla og kenndi
áhættumat og er nú að leggja loka-
hönd á handbók. Í henni verður
sérstakur kafli um samskipti skóla
og foreldra en þau hafa verið
vandamál í Rúmeníu. Þegar her-
agi ríkir ekki lengur kunna menn
kannski ekki alveg að fara með
frjálsræðið. Starfsmenn skólanna
þurfa meðal annars að ræða við for-
eldra um mataræði, svefn og hreyf-
ingu barna. Ráðgert er að kennarar
verði með námskeið fyrir foreldra
þegar börn byrja í grunnskóla og
að foreldrarnir fái skriflegar leið-
beiningar.“
Herdís segir fulltrúa foreldrafé-
laga í Brasov hafa heimsótt samtök
foreldrafélaga á Íslandi og einn-
ig íslenska skóla. „Fólkið er mjög
áhugasamt og það hefur verið auð-
velt að vinna með því. Allt er gert af
mikilli alúð.“
Það eru ekki bara stjórnvöld í
Rúmeníu sem hafa beðið Herdísi
um að miðla af þekkingu sinni
heldur einnig stjórnvöld í Jórdaníu.
Hún er auk þess í samstarfi við
félagasamtök á Grænlandi.
Miðstöð slysavarna barna er ein-
göngu rekin með styrkjum frá IKEA
og Sjóvá. Námskeiðin þar eru for-
eldrum að kostnaðarlausu.
ibs@frettabladid.is
Flytur út fræðslu um slysavarnir
Fjöldi gesta víðsvegar að úr heiminum hefur heimsótt Miðstöð slysavarna barna til að kynna sér starfið þar.
Erlend stjórnvöld biðja Herdísi Storgaard forstöðumann að koma til að fræða og miðla af þekkingu sinni.
Herdís Storgaard, sem er lengst til hægri, er hér á fundi með foreldrum í grunnskóla í Brasov í Rúmeníu.
Aðalmeðferð hjá Milestone-mönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur 2014 þar sem allir
voru sýknaðir. Hæstiréttur sneri þeim dómi við. FRéttABlAðið/GVA
DóMSMáL Hæstiréttur dæmdi Karl og
Steingrím Wernerssyni ásamt Guð-
mundi Ólafssyni til fangelsisvistar í
gær. Með þessu sneri Hæstiréttur við
sýknuúrskurði Héraðsdóms Reykja-
víkur frá því í desember árið 2014.
Karl var dæmdur í 3,5 ára fangelsi,
Steingrímur í tvö ár og Guðmundur
í þrjú. Þá voru endurskoðendurnir
Margrét Guðjónsdóttir og Sigurþór
Guðmundsson dæmd í níu mánaða
skilorðsbundið fangelsi til tveggja
ára og svipt endurskoðandaleyfi í sex
mánuði.
Málið varðar misnotkun hinna sak-
felldu á stöðu sinni innan Milestone
með því að valda fyrirtækinu gífur-
legu fjártjóni með því að láta félagið
efna samninga sem voru því óvið-
komandi auk þess að hafa stundað
bókhaldsbrot. Þar er um að ræða
greiðslur úr félaginu til Ingunnar
Wernersdóttur, systur Karls og Stein-
gríms, árin 2006 og 2007. Allir sak-
borningar neituðu sök.
Saksóknari taldi að Karl, Steingrím-
ur og Guðmundur hefðu í sameiningu
tekið ákvörðun um að greiða Ingunni
um 4,8 milljarða og losa hana þannig
undan eign sinni í Milestone. – srs
Wernerssynir dæmdir í fangelsi
Heiðrún stendur í kæruferli í Níkaragva.
LöGreGLuMáL Sett hefur verið af
stað söfnun til þess að hjálpa Heið-
rúnu Mjöll Bachmann, 21 árs gam-
alli íslenskri au pair í Níkaragva,
með lögfræðikostnað en Heiðrún
kærði nauðgun síðastliðinn föstu-
dag.
Heiðrún steig fram í Fréttablað-
inu í gær og sagði sögu sína. Þar
kom fram að fórnarlömb þurfa að
ráða lögfræðing í Níkaragva í stað
þess að saksóknari sæki málið. Í
kjölfarið kviknaði hugmynd að
söfnuninni í Facebook-hópnum
Aktívismi gegn nauðgunarmenn-
ingu.
Söfnunarreikningur var svo
stofnaður síðdegis í dag en reikn-
ingsnúmerið er 0137-05-060188 og
kennitalan 191294-3519.
Heiðrún er orðlaus yfir þeim
stuðningi sem hún hefur fengið í
dag eftir að viðtalið við hana birtist.
„Mér datt alveg í hug að það yrðu
viðbrögð og allt það en mér datt
ekki í hug að það færi í gang söfnun
í mínu nafni. Ég er orðlaus og þakk-
lát,“ segir Heiðrún sem segist hafa
verið nálægt því að gefast upp í gær.
Hún sé hins vegar mjög ánægð með
það í dag að hafa stigið fram. – skh
Aktívistar safna
fyrir Heiðrúnu
Ég er orðlaus
og þakklát,
Heiðrún Mjöll Bachmann
Sameiginlegt
verkefni Íslands,
Noregs og Liechtenstein
styrkir lönd sem eru að taka
á sínum málum með allt sem
snýr að fólki og var mér
boðið að kynna mitt verk-
efni og starf til fjölda ára.
Herdís Storgaard,
hjúkrunarfræðingur
og forstöðumaður
Miðstöðvar slysa-
varna barna
2 9 . A p r í L 2 0 1 6 F ö S T u D A G u r4 F r É T T i r ∙ F r É T T A B L A ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-4
7
B
8
1
9
4
1
-4
6
7
C
1
9
4
1
-4
5
4
0
1
9
4
1
-4
4
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K