Fréttablaðið - 29.04.2016, Side 12
af öllum tram
pólínum
frà föstudeg
i til sunnuda
gs
SPARIÐ
25 %
IT DOESN’T GET BIGGER THAN THIS!
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
29
.0
4
-0
1.0
5
20
16
.
Reykjavík, 29. apríl 2016
kvika.is
Kvika banki hf. hefur gefið út sex mánaða víxla að
fjárhæð 2.000 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í
víxlaflokknum KVB 16 0923 og er heildarheimild
flokksins 2.000 m.kr. Fjármálaeftirlitið staðfesti
lýsingu vegna umsóknar um töku víxlanna til viðskipta
í gær, þann 28. apríl, og sótt hefur verið um töku
víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands.
Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12
mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum
Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík.
Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu útgefanda
www.kvika.is/um-kviku/fjarfestar.
Ég hef stundum sagt
að fólk hafi misst
trúna á jakkafötunum. Það
var ekki lengur nóg að koma
fram í jakkafötum og þylja
upp fín orð.
á að nálgast þetta sem heilbrigðis-
vandamál. Ég er ekki að tala um sölu,
dreifingu og framleiðslu. Það er
annar pakki. En neyslan sem slík á
ekki að vera refsiverð að okkar mati.
Í því felst engin vörn fyrir vímuefni.“
Hefur þú notað ólögleg vímuefni?
Já.
Var það vesen? Eftir á að hyggja, já.
Var það þá kannabis? Ertu hættur
því í dag? Já.
Helgi segist hafa fengið meðbyr
með þessum skoðunum sínum.
„Fólki er samt oft illa við þetta fyrst
um sinn vegna þess að það óttast að
þetta gefi þau skilaboð að vímuefni
séu í lagi. Það eru ekki skilaboðin.
Ástæða þessarar stefnu er að vímu-
efni eru hættuleg. Það er þess vegna
sem við eigum ekki að refsa fyrir
þau. Alveg eins og við refsum ekki
fólki með aðra sjúkdóma.“
Jakkafötin gjörsigruð
Það verður ekki komist hjá því að
spyrja, hvernig var á þingi í Wintris-
vikunni? „Rosalegt. Maður var ein-
hvern veginn hissa en samt ekki. Ég
var alltaf meira hissa á því að það
hefði komist upp um þetta en á því
að þetta hefði átt sér stað.
Maður er kannski orðinn dimm-
sýnn en ég held að Ísland sé svolítið
blint á fjármálasiðferði. Hrunið var
hluti af alþjóðlegu hruni en mér
fannst það sýna vel hvað við vorum
barnaleg þegar kemur að öllu sem
varðar fjármál. Ég á erfitt með að
undanskilja nokkurn frá þeim dómi.
Mér finnst það einkenni íslensks
hugarfars og íslenskrar vanþekking-
ar á fjármálum. Við erum mjög ung
þegar kemur að þessum fjármála-
pælingum. Það eru Evrópuþjóðir
sem eiga mörg hundruð ára banka-
sögu á meðan við vorum frumstæð
fram á tuttugustu öld.“
Helgi telur að hrunið hafi dregið
úr trúverðugleika stjórnmála.
„Ég hef stundum sagt að fólk hafi
misst trúna á jakkafötunum. Það
var ekki lengur nóg að koma fram í
jakkafötum og þylja upp fín orð. Þess
vegna er svo mikilvægt að fólk segi
af sér þegar stór álitamál koma upp.
Það ríkir dæmigerður afneitunar-
kúltúr í pólitíkinni. Þegar eitthvað
kemur upp og menn greinir á hvort
það sé siðlegt eða ekki, þá er mikil-
vægt að halda trúverðugleika og
hafa umræðuna yfirvegaða og mál-
efnalega. Það er eiginlega ekki hægt
þegar við erum t.d. með forsætisráð-
herra sem heldur dauðahaldi í sætið
sitt þegar eitthvað gengur á.“
Hann segir lekamálið skýrt dæmi.
„Hanna Birna hélt í ráðherrastólinn
þar til aðstoðarmaðurinn var búinn
að játa. Þegar allt var komið í rjúk-
andi rúst. Ef hún hefði sagt af sér
þegar lögreglurannsókn hófst hefði
hún hugsanlega getað staðið uppi
sigurvegari. Hún hefði öðlast trú-
verðugleika sem hún glataði gjör-
samlega með þrásetunni.“
Haust er teygjanlegt hugtak
Hvers vegna er ekki komin dagsetning
á kjördag? „Það er hluti af þessum
trúverðugleikavanda. Ég hef heyrt
22. október en það er óstaðfest enn
þá, eftir því sem ég best veit.
Menn segja að haustið sé teygjan-
legt hugtak? „Já. Meðan þetta er ekki
á hreinu þá verð ég að segja að ég á
bágt með að sjá að þetta verði. Líka
að fenginni reynslu. Menn ætluðu í
þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnar-
skrá meðfram forsetakosningum, svo
þegar dró nær, þá var það ómögulegt.
Menn ætluðu í þjóðaratkvæði um
ESB, og svo gerðist það ekki. Það er
reynslan sem við höfum, plús þessi
afneitunarkúltúr og því miður kæmi
það mér ekkert á óvart þó að í haust
yrði einhver ástæða fyrir því að það
væri ekki ,,hægt að halda kosningar
núna“.“
Vaxtarverkirnir
Þið Ólöf Nordal eruð náin, ekki satt?
„Í þingsal hugsa ég að við séum eins
náin og pólitískir andstæðingar
verða. Ég get ekki leynt því að ég hef
miklar mætur á henni.“
Finnst þér vera hroki í samstarfs-
mönnum þínum? „Sumum. Þetta er
auðvitað misjafnt. En það er ekki
hægt að láta eins og það sé í lagi
hvernig Sigmundur Davíð lét alltaf.
Það er ekki í lagi. Birgitta orðaði það
vel [í fyrirspurnartíma Alþingis].
Hann greinir spurninguna, útskýrir
fyrir áhorfendum hvað var verið að
spyrja um og svo kemur skætingur.“
Það var kallaður inn vinnustaða-
sálfræðingur í ykkar þingflokk út af
innbyrðisdeilum. Hvernig gekk það?
„Mjög vel. Ég mæli með þessu
fyrir hvern sem er. Það er svo margt í
mannlegum samskiptum sem er þess
virði að hugsa um. Það er ekkert borð-
leggjandi hvernig mannleg samskipti
eru sem uppbyggilegust og sérstak-
lega ekki undir miklu álagi, í pínu-
litlum þingflokki með brjálað fylgi
og endalausa aðsókn og enga burði
til að díla við það. Það væri skrýtið ef
allt væri alltaf á lygnum sjó.“
visir.is Lengri útgáfa af greininni
er á Vísi
↣
2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-7
E
0
8
1
9
4
1
-7
C
C
C
1
9
4
1
-7
B
9
0
1
9
4
1
-7
A
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K