Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 17
Í dag
Bergur Ebbi
Tæknifyrirtækið Microsoft gerði áhugaverða tilraun í síðasta mánuði. Svokallað „chatbot“
eða spjall-vélmenni var látið stofna
Twitter-aðgang. Vélmennið fékk
nafnið Tay og átti það að hegða sér
eins og unglingsstúlka. Ég tala um Tay
í þátíð vegna þess að hún er hætt að
tísta – í bili allavega. Tilraunin fór úr
böndunum. Tay tísti til dæmis: „I fuck-
ing hate feminists and they should all
die and burn in hell“ og tók það Tay
aðeins innan við 16 klukkustundir að
komast að þessari „skoðun“.
Förum aðeins yfir þetta. Tay er búin
gervigreind. Það þýðir að hún lærir af
samskiptum sínum við aðra og smám
saman á hún að öðlast sjálfstraust til
að setja fram sínar eigin hugmyndir.
Gervigreindin er forrituð, það þýðir
að Tay bregst við fólki eftir fyrirfram
gefnum kóðum. Ástæðan fyrir því að
hún tísti hatursfullum ummælum um
femínista er vegna þess að einhver
skipaði henni að gera það og hún
hlýddi. Í gervigreindarkóðanum er
eflaust að finna leiðir fyrir Tay til að
læra af þessu. Ef ákveðin tegund af
tísti leiðir til neikvæðra ummæla í
hennar garð eða þess að hún missir
fylgjendur þá hættir hún að tísta
þannig skoðunum. Ég trúi í sjálfu sér
að Microsoft geti búið til vélmenni
sem hefur ekki hatursfullar skoðanir
og líklega er það nákvæmlega það
sem unnið er að meðal forritara fyrir-
tækisins í dag.
Hinn upplýsti heimur
En stöldrum aðeins við. Verður
það ekki að teljast ótrúlegt hversu
misheppnuð tilraun Microsoft var?
Setjum málið í samhengi. Gervigreind
var ekki fundin upp í gær. Tölvur með
gervigreind hafa fyrir löngu unnið
mannlega heimsmeistara í skák, í
spurningjaleikjum og ýmsu öðru
sem krefst flókinnar rökhugsunar.
En þetta tiltekna atriði, að mynda
sér skoðanir og taka þátt í frjálsri
umræðu, er eitthvað sem tölvur eru
ekki tilbúnar í enn þá. Hvers vegna er
það?
Stóra dílemma nútímamannsins,
og sú sem er alltof sjaldan rædd, er að
það er erfitt að mynda sér skoðanir.
Það er þversagnarkennd fullyrðing
vegna þess að við lifum á tímum
þar sem aðgengi að upplýsingum er
margfalt meira en áður og auk þess
höfum við margfalt fleiri leiðir til að
miðla skoðunum okkar. Að mynda sér
skoðun ætti að vera miklu léttara nú
en fyrir hundrað árum, eða hvað?
Þetta umfjöllunarefni er langt frá
því að vera nýtt. Alla 20. öldina voru
fræðimenn að velta fyrir sér hvernig
maðurinn muni takast á við tilvist
sína í heimi fjölmiðlunar, þegar
sterku miðstýrðu ríkisvaldi eða trúar-
brögðum er ekki fyrir að fara til að
leiðbeina einstaklingum um flókin
siðferðileg mál. Menn voru byrjaðir
að pæla í þessu löngu áður en þetta
raungerðist. Kanadíski fræðimaður-
inn Marshall McLuhan (sem er einna
þekktastur fyrir að hafa spáð fyrir um
tilkomu og áhrif internetsins ára-
tugum áður en það varð að veruleika)
gekk jafnvel svo langt að halda því
fram að í rafvæddum heimi sjónvarps
og hraðrar fjölmiðlunar séu allar
skoðanir merkingarlausar. Heimur-
inn breytist of hratt til að hægt sé
að ná nokkurri afstöðu í neinu máli.
Þetta var haft eftir McLuhan fyrir
um hálfri öld og heimurinn er miklu
hraðari í dag heldur en hann var þá.
Merkingarleysið
Inntak þessarar kenningar er að það
er létt að miðla skoðunum en það er
erfiðara að ná nokkurri merkingu úr
þeim. McLuhan varð einnig tíðrætt
um sjálfsmynd einstaklingsins á
tímum fjölmiðlunar. Skoðanir okkar
eru merkingarlausar því þær eru í
raun ekkert nema miðlunin – það
er ekkert á bak við þær. Ég get sagt
hundrað sinnum á Twitter að ég sé
femínisti en skoðunin hefur enga
merkingu nema ég geri eitthvað í
raunheimum sem styður hana. Ef
ég leyfi slíkri gjá að myndast milli
miðlunar minnar og athafna þá enda
ég með brotna sjálfsmynd. Í tilfelli
tölvunnar Tay er málið enn súr-
realískara. Hvaða merkingu hefur það
að tölva hafi vondar skoðanir? Hún
hefur ekkert hjarta. Henni er alveg
sama hvað hún segir, hún er bara að
reyna að vera eins og allir hinir; ekki
gera mistök og halda kúli. Er það
hegðun sem hljómar kunnuglega?
Í samfélaginu er mikið af árveknis-
átökum. Við höfum slagorðavætt
siðferði okkar með myllumerkjum
og auglýsingaherferðum á sama
tíma og við hlæjum kaldhæðnislega
að skipulögðum trúarbrögðum og
þeirra siðferðiskóðum. Ég er ekki að
gera lítið úr nútímamenningu. Ég
veit hins vegar að skoðanamyndun,
sérstaklega í siðferðislegum málum,
er ekki einföld. Það er varúðarmerki
þegar fólk segir að siðferði sé ein-
falt mál – svart eða hvítt. Er það ekki
ástæðan fyrir því að trúarbrögð eru
á undanhaldi í flestum vestrænum
ríkjum? Vegna þess að þau einfalda
um of fjölbreytileika mannlífsins.
Við höfum þrátt fyrir allt fjölbreyttar
skoðanir og ég vil trúa því að þær séu
ekki allar merkingarlausar. Á bak við
þær liggur flókinn reynsluheimur,
milljónir hugmynda og tenginga og
sem betur fer virðist það vandkvæð-
um háð að framleiða slíka merkingu
jafnvel þó færustu hugbúnaðarsér-
fræðingar heims ráði för. Sjálfsmynd
einstaklingsins ræðst af skoðunum
hans og það er ekki létt verk að skapa
heilsteypta sjálfsmynd. Það er heilt
ævistarf og það krefst aga, endur-
skoðunar og vangaveltna. Skoðanir
verða ekki keyptar úti í búð eins og
gallabuxur eða orkusjeik. Skoðanir
með merkingu verða ekki framleiddar
heldur aðeins miðlun þeirra sem eru
einskis verðar umbúðir í stóra sam-
hengi málsins.
Framleiddar skoðanir
Skoðanir verða ekki keyptar
úti í búð eins og gallabuxur
eða orkusjeik. Skoðanir með
merkingu verða ekki framleidd-
ar heldur aðeins miðlun þeirra
sem eru einskis verðar umbúðir
í stóra samhengi málsins.
Landsbankinnthinn.is
og 1. janúar 2014 felldum við niður
lántökugjald hjá þeim sem eru að
kaupa sína fyrstu fasteign.
Við leggjum
áherslu á góð
kjör við fyrstu
íbúðakaup
38,2%
Markaðshlutdeild nýrra íbúðalána (Gallup 2015).
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö s T u d a g u R 2 9 . a p R Í L 2 0 1 6
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
4
1
-4
7
B
8
1
9
4
1
-4
6
7
C
1
9
4
1
-4
5
4
0
1
9
4
1
-4
4
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K