Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 24
Anna Rún á og rekur litla gjafa-
vöruverslun á netinu, Home-
Store.is, og starfar sem lífsstíls-
leiðbeinandi hjá Herbalife. Hún
hefur einnig unnið sem sminka
í hlutastarfi í fjöldamörg ár.
Anna Rún segist ávallt hafa haft
mikinn áhuga á tísku.
„Ég fylgist með enda hef ég
unnið í förðunar- og stílistaheim-
inum í mörg ár. Ég get þó ekki sagt
að ég elti tískuna sérstaklega, er
frekar fylgin mér þegar kemur að
stíl og litavali þó maður verði auð-
vitað fyrir áhrifum af tískunni,“
segir hún.
En hvernig myndi hún lýsa stíl
sínum? „Ég elska að vera „casual
cool“ í bland við smá glamúr og
rómantík. Ég er mikil kjólastelpa
en finnst æðislegt líka að poppa
upp til dæmis gallabuxur með
Kron Kron skónum mínum, flott-
um fylgihlutum og töff jakka.“
Anna Rún segist kaupa flest
sín föt erlendis. „Uppáhaldsbúðin
mín er Free People í New York en
þaðan koma flestir kjólarnir mínir,
svo klikkar H&M aldrei. Hér heima
versla ég oftast í Júníform, Andreu,
Kron eða Farmers Market.“
Önnu Rún finnst fátt betra en að
gera góð kaup. „Ég tek tarnir í fata-
kaupum og reyni oftast að fá mikið
fyrir peninginn. Með árunum eyði
ég minna í mig og meira í börnin
mín þrjú en ég hreinlega elska að
dressa þau upp.“
Innt eftir uppáhaldsflíkinni
lendir Anna Rún í vanda. „Mér
finnst mjög erfitt að gera upp á
milli en hlébarðajakkinn minn
sem og svarti „busi ness“-jakkinn
minn eru löngu orðnir klassísk-
ir og nýtast mér yfir allt. Einnig
elska ég New York-kjólana mína og
svo gæti ég ekki verið án íþrótta-
fatanna minna sem ég nota alltaf
á Fit Camp-útiæfingunum sem við
erum með í vinnunni.“
En hvað langar hana í næst?
„Mig er lengi búið að langa í stutt-
an ljósan gallajakka sem pass-
ar við allt og viti menn, ég fann
hann og keypti í fyrradag. Næst á
eftir honum vantar mig helst nýja
hlaupa skó og svo langar mig mikið
í flottan svartan ermalausan sam-
festing.“
Anna Rún segist vera algjör
krummi í sér og laðist að því sem
glitrar. „Mínir veikleikar eru gling-
ur, gull, pallíettur, kögur, feldir og
blúndur.“
Fylgihlutir eru í miklu upp-
áhaldi hjá Önnu Rún. „Persónulega
líður mér eins og ég sé ber ef ég
er ekki með skart. Uppáhaldsfylgi-
hluturinn minn er þó án efa Louie
Vuitton-taskan mín sem maðurinn
minn gaf mér fyrir nokkrum árum.
Ég tek hana með mér hvert sem er.“
En hvað er fram undan? „Fram-
undan hjá okkur í Rokkkór Íslands
er að halda áfram að æfa nýtt og
spennandi efni en við verðum með
stóra tónleika í haust þar sem lög
frá áttunda áratugnum verða á dag-
skrá.
Einnig erum við að fara að taka
þátt í spennandi söngleikjaverkefni
og halda áfram upptökum í hljóð-
veri fyrir geisladiskinn okkar sem
við hlökkum mikið til að gefa út.
Annars ætla ég að skreppa með
betri helmingnum mínum til Stokk-
hólms um helgina og sjá hana Adele
mína stíga á svið. Get með sanni
sagt að ég sé að farast úr spenn-
ingi – þetta verður ansi ljúf helgi.“
GlinGur, Gull
oG blúndur
Anna Rún Frímannsdóttir segist alger krummi í sér og dregst að gulli
og glingri. Hún leyfir hér lesendum að líta inn í skápinn sinn. Í kvöld
syngur hún með kórnum sínum í Bæjarbíói en þá heldur Rokkkór
Íslands „sing along“-tónleika þar sem áhorfendur geta tekið undir.
Anna Rún í einum af uppáhaldskjólum sínum sem hún keypti í Free People í New York.
Þá eru hún í rúskinnssjakka úr Vila og skóm úr Kronkron. MYNd/SteFáN
Louis Vuitton-taskan er í miklu uppá-
haldi svo og Ray Ban-sólgleraugun.
Rósóttur kjóll, keyptur í Uraban Outfitters.
Önnu Rún þykir gaman að
vera með hatt en pallíettu-
jakkinn er keyptur í River
Island.
Uppá-
haldsjakki
Önnu
Rúnar er
hlébarða-
jakki úr
H&M. á
myndinni er
einnig hlé-
barðahattur
sem hún keypti
í Bandaríkj-
unum.
Kron Kron-
skór eru í
uppáhaldi
hjá Önnu
Rún.
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
GLÆSILEG BUXNASENDING
FRÁ GARDEUR
LÆKKAÐ VERÐ!
Verð fyrir afnám
tolla 21.980
Verð nú
17.980
2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ l í F S S T í l l
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-6
5
5
8
1
9
4
1
-6
4
1
C
1
9
4
1
-6
2
E
0
1
9
4
1
-6
1
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K