Fréttablaðið - 29.04.2016, Síða 34
Almennt má segja að
menning sé afar mikil í
héraðinu öllu og má sem
dæmi nefna hinar ýmsu
hátíðir.
Guðrún Jónsdóttir
„Við sem búum og störfum á Vestur
landi þekkjum vel hversu marga
heillandi staði svæðið hefur upp á
að bjóða,“ segir Geirlaug Jóhanns
dóttir, sveitarstjórnarfulltrúi og
formaður byggðaráðs Borgarbyggð
ar. Náttúran er fjölbreytt með ótal
gönguleiðum og áskorunum í fjalla
mennsku. Eiríksjökull er hæsta
fjall Vesturlands, 1675 metra hár,
og gnæfir yfir uppsveitum Borg
arfjarðar. „Þar hefur einmitt orðið
gríðarlega mikil uppbygging í
ferðaþjónustu á síðastliðnum miss
erum með opnun Hótels Húsafells
síðastliðið sumar og ísgöngum í
Langjökli. Ísgöngin eru orðin sterk
ur segull fyrir ferðamenn og aðsókn
að þeim var langt umfram vænting
ar og spár á fyrsta starfsári,“ segir
Geirlaug og bætir við að enn bætist
í afþreyingar flóruna í Borgarfirðin
um í sumar þegar náttúrulaugarnar
Krauma verða opnaðar við Deildar
tunguhver sem er vatnsmesti hver
í Evrópu og fjölsóttur ferðamanna
staður sem slíkur.
Menntahérað með tvo háskóla
Paradísarlaut og Hreðavatn eru á
meðal eftirlætisstaða Geirlaugar en
hún stundar kennslu við Háskólann
á Bifröst og líður hvergi betur en
í Norðurárdalnum. „Við erum stolt
af menntahéraðinu okkar en ekkert
annað sveitarfélag en Borgarbyggð
og Reykjavík státar af tveimur há
skólum og þessar rótgrónu stofn
anir á Bifröst og Hvanneyri hafa
miklu þýðingu fyrir Vesturland,
meðal annars vegna möguleika
heimafólks á að stunda fjölbreytt
háskólanám í heimabyggð og vegna
þess að þetta eru dýrmætir vinnu
staðir fyrir háskólamenntað fólk.“
Falleg náttúra, fossar og eldfjöll
Geirlaug segir að engan skyldi
undra að Vesturland hafi verið valið
sem einn af áhugaverðustu áfanga
stöðum heims 2016 samkvæmt
leiðsögubókaútgefandanum Lonely
Planet. „Lonely Planet valdi Vestur
land meðal annars sökum rólyndis
legs yfirbragðs svæðisins auk þess
sem gott er að gera út frá Vestur
landi þegar kemur að því að kanna
náttúru. Fallegir fossar, gott að
gengi að jöklum, eldfjöll og hraun
breiður eru meðal sérstöðu svæð
isins. Mikil saga sem svæðið hefur
upp á að bjóða bætir einnig sér
stöðu Vesturlands.“ Í Borgarnesi
er sagan hreinlega áþreifanleg og
er Skallagrímsgarðurinn gott dæmi
um hvernig heiti landnámsmanna
hafa fest rætur í.
Lifandi menning
Safnahús Borgarfjarðar stendur
við Borgarfjörðinn og hýsir fimm
söfn auk glæsilegrar fuglasýn
ingar og ljósmyndasýningar um
refi og refaskyttur. Guðrún Jóns
dóttir er forstöðumaður Safna
húss. „Safnahús er einmitt einn
þeirra staða sem Lonely Planet
mælir sérstaklega með á Vestur
landi og það er mikill heiður
fyrir söfnin. Það er sérstaklega
vegna tveggja grunnsýninga sem
heita Börn í 100 ár og Ævintýri
fuglanna. Þær eru báðar hann
aðar af Snorra Frey Hilmars
syni sem er hæfileikaríkur lista
maður og hefur fengið lof fyrir
frumleika og snjallar lausnir í
framsetningu. Sýningarnar henta
öllum aldri og jafnt Íslendingum
sem erlendum gestum og hafa
þær verið afar vinsælar. Í sumar
erum við svo líka með sýninguna
Refir og menn, en þar eru sýnd
ar ljósmyndir eftir Sigurjón Ein
arsson og viðfangsefnið er refa
veiðimenn við vinnu sína. Sú sýn
ing var nýlega opnuð og stendur
fram í nóvember,“ segir Guðrún.
Starfsemi Safnahúss er mikil
væg fyrir ört vaxandi framboð
á ferðaþjónustu í Borgarnesi og
nágrenni og húsið er með lifandi
menningarstarfsemi sinni orðinn
snar þáttur í mannlífi svæðisins
bæði sumar og vetur. „Almennt
má segja að menning sé afar mikil
í héraðinu öllu og má sem dæmi
nefna hinar ýmsu hátíðir svo sem
Brákarhátíð, Sauðamessu, Reyk
holtshátíð og flotta mótorhjóla og
fornbílahátíð sem verður haldin í
Borganesi 7. maí næstkomandi. Og
svo má nefna að þann 5. maí heldur
Tónlistarfélag Borgarfjarðar upp
á hálfrar aldar afmæli sitt með því
að bjóða til tónlistarhátíðar heilan
dag með fjölbreyttri tónlist.“
Vesturland er sannarlega einn af
áhugaverðustu áfangastöðum heims
Borgarfjörður hefur upp á marga heillandi staði að bjóða. Þar er fjölbreytt og falleg náttúra, jöklar, fossar, eldfjöll og hraunbreiður.
Það er víða fallegt á Vesturlandi. Hvanneyri með Brekkufjall og Skarðsheiði í baksýn. MYND/GEIRLAUG JÓHANNSDÓTTIR
„Norska húsið er afar merkilegt
hús og við fáum mikið af erlend
um ferðamönnum í heimsókn en
Íslendingar eru líka tíðir gestir,“
segir Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri
byggðasafns Snæfellinga og Hnapp
dæla en safnið er til húsa í einu
sögufrægasta húsi Vesturlands.
Sögu Norska hússins má rekja til
ársins 1832 en þá lét Árni Ó. Thor
lacius (18021891) reisa húsið og
flutti inn timbur frá Noregi til bygg
ingarinnar. Húsið er 500 fermetrar
að stærð og fyrsta tvílyfta íbúðar
húsið sem reist var á Íslandi. Það
var um áratuga skeið eitt af þrem
ur stærstu húsum landsins en meg
inþorri íslendinga bjó í torfhúsum
á 19. öld. Nokkrir eigendur voru að
húsinu eftir lát Árna. Lengst af var
Norska húsið bæði íbúðarhús og at
vinnuhúsnæði. Þar var meðal ann
ars rekin saumastofa, ýmsar versl
anir, pakkhús, tónlistarskóli, gisti
hús og veitingasala. Um skeið var
húsið fjölbýlishús og bjuggu þá
yfirleitt fjórar fjölskyldur í húsinu.
Árið 1970 keypti sýslunefnd Snæ
fells og Hnappadalssýslu húsið
fyrir byggðasafn sýslunnar og hóf
ust framkvæmdir við að færa húsið
aftur til þess horfs sem var þegar
það var reist. Árið 2001 var á mið
hæð hússins opnuð fastasýning á
heimili heldri fjölskyldu í þéttbýli
þar sem stuðst er við það sem til er
um innbú og heimilishætti Árna og
Önnu Thorlacius.
„Á safnloftinu erum við svo með
ýmsa gamla muni úr sýslunni til
sýnis og á jarðhæðinni eru breyti
legar sýningar,“ segir Hjördís. „Í
lok maí mun til dæmis verða opnuð
sýning á húsgögnum frá húsgagna
verksmiðjunni Aton, sem starfrækt
var í Stykkishólmi á árunum 1969
til 1975. Þá er safnbúðin okkar afar
skemmtileg, Krambúðin, en þar selj
um við handverk, íslenska hönnun,
minjagripi og fleira.“
Safn í sögufrægu húsi
Norska húsið er ein af perlum Stykkishólms. Þar er Byggðasafn Snæfells- og
Hnappadalssýslu til húsa auk þess sem þar er rekin skemmtileg safnbúð. Húsið
var byggt 1832 og var áratugum saman eitt af þremur stærstu húsum landsins.
Heimili Árna og Önnu Thorlacius hefur
verið sviðsett í húsinu en þau létu reisa
húsið 1832. Krambúðin kallast safnbúð Norska hússins og þar kennir ýmissa forvitnilegra grasa.
Norska húsið í Stykkishólmi var reist á 19. öld og var fyrsta tvílyfta húsið á Íslandi.
Í áratugi var það eitt af þremur stærstu húsum landsins.
Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri Byggða-
safns Snæfells- og Hnappadalssýslu,
segir mikinn gestagang í Norska
húsinu. MYNDIR/BYGGðASAfN SNæfELLS- oG
HNAPPADALSSýSLU
Safnbúðin okkar er
afar skemmtileg, Kram-
búðin, en þar seljum við
handverk, íslenska
hönnun, minjagripi og
fleira. Hjördís Pálsdóttir
KoMDU VESTUR Kynningarblað
29. apríl 20166
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-6
0
6
8
1
9
4
1
-5
F
2
C
1
9
4
1
-5
D
F
0
1
9
4
1
-5
C
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K