Fréttablaðið - 29.04.2016, Qupperneq 37
Kynningarblað Komdu vestur
29. apríl 2016 9
Öll hönnun og skipulag hótelsins
hefur að markmiði að gestir komi
og upplifi eitthvað nýtt og öðru-
vísi. Hótel Glymur er svokall-
að „boutique“ hótel. Mikið er lagt
upp úr að skapa gestum gott og af-
slappað andrúmsloft. Hótel Glym-
ur var opnað í september 2001 og
endurbætt árið 2006 í samvinnu
við innlenda og erlenda hönnuði
og listamenn.
Stórglæsileg herbergi
Á Hótel Glym eru 22 stórglæsileg
herbergi á tveimur hæðum með
baðherbergi og setustofu á neðri
hæðinni og svefnherbergi á efri
hæðinni. Herbergin eru vel búin
með þráðlausu interneti og sjón-
varpi. Hvert herbergi er sérhann-
að, útbúið hágæða ítölsku leður-
sófasetti og skreytt einstökum
listaverkum. Eitt herbergi er á
jarðhæð með aðgengi fyrir hjóla-
stóla og þar er einnig verönd.
Tvær glæsilegar svítur eru á
jarðhæð með eigin verönd og út-
gangi í heitu pottana. Mikið er lagt
í að skapa gott og afslappað and-
rúmsloft í svítunum með smekkleg-
um innréttingum og fallegum lista-
verkum. Svíturnar eru með öllum
sama búnaði og herbergin auk full-
kominna hljómflutningstækja.
Öll herbergi hafa mjög stóra
glugga þar sem hægt er að njóta
hins stórkostlega útsýnis yfir
Hvalfjörðinn eða upp að Skarðs-
heiðinni. Hvert herbergi er ein-
stakt með sérsmíðuðum húsgögn-
um. Við hótelið eru tveir stórir,
heitir pottar sem eru afar vinsæl-
ir og mikið notaðir. Að auki eru sex
fullbúin lúxushús í boði með öllu
því sem þarf til að gera góða dvöl
betri. Hvert hús er með verönd og
heitum potti.
Margrómaður matseðill
Hægt er að njóta ljúffengra mál-
tíða í þessu fallega umhverfi.
Veitingastaður Hótels Glyms
er þekktur fyrir glæsilegan à
la carte matseðil, margrómað
morgun verðarhlaðborð, fallega
framreiðslu og metnaðarfulla
þjónustu. Útsýnið úr matsalnum
er einstakt þar sem öll suðurhlið
hótelsins er gluggaveggur. Lögð
er áhersla á íslenskan gæðamat.
Hægt er að skoða matseðilinn á
heimasíðu hótelsins. Á glerglugg-
um á bar er að finna nokkur ljóða
Hallgríms Péturssonar en þekk-
astur er Hallgrímur fyrir Passíu-
sálmana.
Haustið 2014 fékk Hótel
G l y m u r v i ð u r k e n n i n g u
frá World Travel Awards
Verðlaun þessi eru veitt í mörgum
flokkum og voru Hótel Glym veitt
verðlaun sem Iceland’s leading
boutique hotel 2014 eða í flokki
lítilla, nýmóðins hótela í Evrópu.
Í nágrenni hótelsins má finna
afþreyingu á borð við gönguferð-
ir, veiði, hestaferðir, fjórhjólaferð-
ir svo eitthvað sé nefnt. Að auki
eru nokkrir golfvellir í stuttri
akstursfjarlægð frá hótelinu.
Hægt er að fá upplýsingar og/eða
bóka gistingu með því að hafa sam-
band við skrifstofuna í síma 430
3100 eða senda póst á netfangið
info@hotelglymur.is. Heimasíðan
er www.hotelglymur.is
Glæsihótel umvafið fögru landslagi
Glymur í Hvalfirði er glæsilegt og heimilislegt hótel í aðeins 50 km fjarlægð frá Reykjavík. Fallegt umhverfi og víðáttufagurt landslag umlykur
hótelið. Afslappað andrúmsloft og veitingastaður með fjölbreyttu úrvali ljúffengra veitinga. Þarna eru auk þess frábærar gönguleiðir.
Það er ekki amalegt að sitja yfir ljúffengum kvöldverði og horfa yfir fallega náttúruna allt í kring.
Öll herbergi eru búin lúxushúsgögnum þannig að vel fer um gesti.
Heitir pottar eru við hótelið og þeir eru mikið notaðir af gestum.
Glæsileg svíta á Hótel Glymi.
Herbergin eru öll eins og eitt stórt listaverk.
Hótel Glymur baðað í norðurljósum.
margar frábærar gönguleiðir eru allt í kringum hótelið.
Gjafabréf
Gjafabréf Hótels Glyms hafa
verið afar vinsæl, hægt er að
velja um marga pakka og vinsælt
er að kaupa sérsniðin gjafabréf
sem henta hverjum og einum.
Öll gjafabréf gilda í eitt ár, alla
daga ársins. Hótel Glymur er
opið allt árið.
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-4
C
A
8
1
9
4
1
-4
B
6
C
1
9
4
1
-4
A
3
0
1
9
4
1
-4
8
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K